Dagblaðið Vísir - DV - 14.01.2013, Side 15
Við vorum rænd
barnæskunni
Það kannast
flestir við þetta
Erna Agnarsdóttir var send níu ára á Kumbaravog. – DVThelma Ásdísardóttir segir flest bæjarfélög eiga dónakall. – DV
Jöfnuður og skuldir
Spurningin
„Já, ég horfði á Kastljósið. Mér
finnst það bara viðbjóður.“
Alexander Arnarsson
17 ára nemi
„Já. Það er hneyksli.“
Eva Lára Hauksdóttir
36 ára móðir
Luciano Becerra
34 ára vinnur á Búllunni
„Já, mér finnst það ógeðslegt.“
Alena Elísa da Silva
16 ára nemi
„Já. Mér finnst það ótrúlega
sorglegt og sorglega ótrúlegt.“
Gestur Baldursson
38 ára plötudólgur
„Já, ég hef nú séð það í
Kastljósinu. Mér finnst það bara
ótrúlegt og hálf ógeðslegt.“
Jóhann Örn Kjartansson
18 ára nemi
Hefurðu fylgst
með málinu um
Karl Vigni?
1 Harðlega gagnrýndir fyrir að nafngreina barnaníðing DV var
á sínum tíma gagnrýnt harðlega fyrir
nafngreina barnaníðing á Patreksfirði.
2 „Var í stöðugu harki, að reyna að redda mér“ Árið 2007 var ekki
gott ár fyrir Guðmund Steingríms-
son, sem ræddi lífið og tilveruna í
helgarblaði DV.
3 „Líf mitt breyttist þennan dag. Ég vissi að mér yrði
aldrei bjargað“ Tina Renton, lærði
lögfræði og kom stjúpföður sínum, sem
misnotaði hana sem barn, í fangelsi 17
árum eftir brotin.
4 Nakin á klósetti við kökuát Leikkonunni Lenu Dunham er gjarnan
stillt upp sem andstæðu grindhoraðra
stallsystra sinna í Hollywood.
5 „Ég varð að læra að fyrirgefa“ Rósa Guðmundsdóttir sagðist í
helgarblaði DV hafa orðið að breytast
til að lifa.
6 „Það eru mörg bæjarfélög sem eiga dónakall“ Thelma
Ásdísardóttir hjá Drekaslóð segir að
barnaníðingar leynist víða.
Mest lesið á DV.is
K
annanir, jafnt sem tilfinning
okkar sem hér búum, sýna að Ís-
lendingar eru upp til hópa eitt-
hvað sem kalla mætti jafnaðar-
menn, hvar í flokki sem þeir standa.
Flest viljum við öflugt velferðarkerfi,
gott mennta- og heilbrigðiskerfi fyrir
alla þegna og hóflegan launamun. Í
rannsókn Jóns Gunnars Bernburg á
viðhorfi Íslendinga til ójöfnuðar kem-
ur fram að rúm 80% aðspurðra vilja
að munur á æskilegum launum í há-
og láglaunastörfum sé í mesta lagi
þrefaldur. Við viljum sem sagt jöfn
tækifæri en að fólk fái fremur hóflega
umbun fyrir erfiði sitt, menntun og
ábyrgð. Raunin er þó önnur og launa-
munur mun meiri.
Flestir virðast líka sáttir við að hið
opinbera noti skatta og bætur til að
jafna kjör fólks eftir þörfum. Nokkuð
almenn sátt virðist ríkja um að þeir
sem hafa hærri tekjur greiði meira til
samfélagsins en aðrir fái fjárhagslegan
stuðning, svo sem barnabætur. Það
kerfi sem við höfum komið okkur upp
til þessa er flókið og áherslur vinstri og
hægri flokka yfirleitt útfærsluatriði.
En svo kom hrun
En svo hrundi allt og ný gerð ójöfnuð-
ar birtist okkur. Byrjað var á að tryggja
allar innistæður svo fjármagnseigend-
ur þyrftu ekki að hafa áhyggjur. Vegna
gengisfalls krónunnar hækkuðu verð-
og gengistryggðar skuldir heimilanna.
Frá áramótum 2007/2008 til ágúst-
mánaðar 2012 hækkuðu eftirstöðvar
verðtryggðra fasteignaskulda heimil-
anna um 384,2 ma.kr. eða 38,2% vegna
hækkunar á vísitölu neysluverðs. Ætla
má að þessi tala sé nú komin upp
fyrir 40%. Á sama tíma hafa laun að-
eins hækkað um tæp 24% að jafnaði.
Skuldarar eru því flestir í vondum mál-
um og eignir „sjálfhverfu kynslóðar-
innar“ hafa þurrkast út. Flest gengis-
tryggð lán voru sem kunnugt er dæmd
ólögleg og þótt bankarnir dragi lapp-
irnar við endurútreikninga má telja
líklegt að áður en yfir lýkur muni þeir
sem þar skulda geta unað við sitt eftir
rúmlega fjögurra ára baráttu. Eftir
stendur að fólk með venjuleg verð-
tryggð lán og þeir sem tóku gengis-
tryggð lán hjá Íslandsbanka (en þau
hafa ekki verið dæmd ólögleg) sitja
eftir með sárt ennið.
Velferðarkerfi andskotans
Eftir hrunið tók við vinstri stjórn sem
lofaði okkur skjaldborg um heimilin en
sagði svo sem ekkert um það hvernig
hún ætti að vera. Hófst svo viðbygging
við velferðarkerfið þar sem þeir sem
þurftu fengu einhvers konar hjálp. Þær
aðgerðir voru í fullri sátt við Alþjóða
gjaldeyrissjóðinn en heimilin voru
ekki spurð. Þar hófst óréttlætið fyrir
alvöru. Öll úrræðin sem boðið hefur
verið upp á miðast við hve miklu hægt
er að ná af fólki án þess að það gefist
upp á að borga. Skuldaúrræðin koma
ágætlega út fyrir þá sem tóku allt á
100% lánum og áttu því í raun aldrei
neitt. Ástæðan fyrir því að þeir fengu
lánin háu var mikil greiðslugeta. Þeir
voru nefnilega með há laun.
Margir þeir sem höfðu með sparnaði
og útsjónarsemi tekist að eignast dá-
góðan hluta í fasteigninni sinni með því
að spara fyrir útborgun og greiða sam-
viskusamlega af lánum í gegnum tíð-
ina eru ekki svo heppnir. Eignarhlutur
þeirra og þar með ævisparnaðurinn
er í mörgum tilfellum gufaður upp og
eignastaðan jafnvel neikvæð. Hækkun-
in á íbúðarláninu jafngildir oft og tíðum
margra ára launum og þá á alveg eftir
að taka tillit til þess að hinn stökkbreytti
höfuðstóll heldur auðvitað áfram að
safna vöxtum og verðtryggingu.
Raunverulegt dæmi
Hjón sem ég þekki skulduðu um 19
milljónir í íbúðinni sinni í árslok 2007
í gengistryggðu láni sem tekið var
árið 2004 hjá Íslandsbanka. Í árslok
2012 stendur lánið í um 36 milljónum.
Hækkunin nemur um 17 milljónum
eða nærri tvöföldun á láninu. Sem bet-
ur fer er fólkið vel menntað og í góð-
um stöðum. Það hefur því getað haldið
áfram að greiða en tekjur þeirra eru
um 650 þúsund á mánuði eftir skatta.
Það gerir 7,8 milljónir á ári. Það myndi
því taka þau rúm tvö ár að vinna bara
fyrir þeirri hækkun sem nú er skollin
á lánið, færi hver einasta útborguð
króna í að greiða af því. Lánið er nú
verðtryggt og ber seðlabankavexti sem
eru um það bil verstu kjör sem bjóðast
á húsnæðislánum í heiminum í dag.
Þau kjör voru ákvörðuð af Alþingi Ís-
lendina með lögum 151/2010, kennd-
um við Árna Pál Árnason sem lagði
þau fram. Lánið hefur alltaf verið í skil-
um en í nokkra mánuði strax eftir hrun
greiddu hjónin einungis vexti. Þessum
hjónum bjóðast í raun engin úrræði.
Árna Páls-lögin skiluðu einungis 5%
lækkun á höfuðstól en mun verri
vaxtakjörum og þótt eignin sé yfir-
skuldsett er hún undir 110% ennþá. Og
þótt þau geti greitt finnst þeim staðan
hvorki sanngjörn né réttlát. En þau fá
þó auknar vaxtabætur. Þannig hefur
hin „norræna velferðarstjórn“ ákveðið
að niðurgreiða vaxtaokur fjármála-
fyrirtækjanna í gegnum heimilin.
Misheppnuð velferð
Staðan er óásættanleg. Þetta vandamál
verður ekki leyst með smáskammta-
lækningum á borð við vaxtabætur eða
einstaklingsmiðuð úrræði í gegnum
umboðsmann skuldara. Það er ekki
hægt að búa í samfélagi sem læt-
ur slíkt óréttlæti viðgangast og hér er
lýst. Ráðast þarf á rót vandans, leið-
rétta lánin og koma hér á eðlilegu
húsnæðis lánakerfi. Það hljóta allir
sannir jafnaðarmenn, hvar í flokki sem
þeir eru, að sjá.
Tignarlegur svanur Það hefur ekki farið illa um fuglana sem haldið hafa til á Reykjavíkurtjörn undanfarna daga. Veðurguðirnir hafa verið í tiltölulega góðu skapi. Hlýtt hefur
verið á landinu og fuglarnir braggast vel. Þó svolítið hafi fryst og snjóað á sunnudag er útlitið til lengri tíma milt. Mynd pREssphoTos.bisMyndin
Umræða 15Mánudagur 14. janúar 2013
Ég skrifaði hana
í rosalegu kasti
Guðmundur Steingrímsson segir árið 2007 ekki hafa verið gott fyrir hann. – DV
Kjallari
Margrét
Tryggvadóttir
„Ráðast þarf á rót
vandans, leiðrétta
lánin og koma hér á eðli-
legu húsnæðislánakerfi.