Dagblaðið Vísir - DV - 11.03.2013, Page 15

Dagblaðið Vísir - DV - 11.03.2013, Page 15
Ég var heppinn Ég er miklu frekar athyglissjúk Ekki taka matar- gerðina of alvarlega Steinar B. Aðalbjörnsson er staðráðinn í því að læra af hjartaáfallinu. – DVDiljá Ámundadóttir hefur engan áhuga á pólitík. – DVKatrín Björk gefur góð ráð fyrir fermingarveislur. – DV Skoða þarf þveranir Spurningin „Já, að sjálfsögðu. List er mikil- væg fyrir samfélagið.“ Maríanna Eva Dúfa Sævarsdóttir 20 ára búðarstarfsmaður „Já. Það þarf að ýta undir list í samfélaginu og styrkja hana.“ Úlfur Reginn Úlfarsson 27 ára vinnur í bókunardeild Hilton „Andstaðan við þau er fyrir neðan allar hellur. Mér finnst þau eiga rétt á sér.“ Anna Margrét Ólafsdóttir 21 árs nemi „Já, mér finnst það. Það minnsta sem við getum gert er að styðja við listir því þær skila svo miklu til baka til okkar.“ Ragnar Láki Jónsson 30 ára tónlistarmaður „Jú, mér finnst þau eiga rétt á sér.“ Sigrún Hanna Klausen 25 ára leikskólakennari Eiga listamanna- laun rétt á sér? 1 Bráðkvaddur eftir baráttu við sinuelda Sigvaldi Ásgeirsson, ábúandi á Vilmundarstöðum, varð bráðkvaddur á laugardag. 2 Mistök að gera lítið úr Vigdísi Hauksdóttur Svavar Gestsson segir að Vigdís verði ráðherra komist Fram- sókn og Sjálfstæðisflokkur til valda. 3 „Vil að minn maður viti hver Laddi er, þekki Stundina okkar og svona“ Diljá Ámundadóttir fór í heimsreisu og var ekki opin fyrir því að kynnast karlmönnum mjög náið. 4 Börnin fengu lifrina Helgi Sverrisson fékk nýja lifur. 5 Elti bílstjóra og braut í honum tennur Fórnarlambið leitaði á slysadeild en árásarmaðurinn er enn ófundinn. 6 Fékk sænskt hjarta og féll fyrir Abba Jón Páll Haraldsson fékk nýtt hjarta og féll fyrir sænsku hljómsveitinni Abba í kjölfarið. 7 Útgefandi getur ekki mælt með eigin bók Davíð Þorláksson og SUS-liðar gefa út bókina Málþóf sem inniheldur ræðu Jóhönnu Sigurðardóttur. Mest lesið á DV.is S íldardauðinn í Kolgrafafirði nú í vetur kom stjórnvöldum sem öðrum í opna skjöldu. Erfitt er að finna önnur dæmi um jafn umfangsmikla við- burði af þessu tagi hér við land og jafnvel á heimsvísu. Yfir 50.000 tonn af síld hafa drepist í firðinum, að öllum líkindum af súrefnisskorti. Hrannir af síld hafa þakið fjörur og fjarðarbotninn var nær teppalagð- ur af fiskhræjum um tíma. Áherslur stjórnvalda hafa verið á að taka á bráðavandanum sem skapast hefur við þessar fordæmalausu aðstæð- ur, einkum eftir að ástandið versn- aði til muna við seinni viðburðinn 1. febrúar síðastliðinn. Yfir 15.000 tonn af síld hafa verið grafin í fjörunni við bæinn Eiði og yfir 1.000 tonn af grút verið urðuð á öruggan hátt á næsta viðurkennda urðunarstað. Virkt eftirlit er með ástandi mála á vegum þriggja stofn- ana, þar sem m.a. er gáð að hvort grútarblautir ernir finnast, en stór hluti arnarstofnsins hefur heimsótt Kolgrafafjörð að gæða sér á síldar- hlaðborðinu þar. Tilraunir hafa ver- ið gerðar til að fæla síldina burt frá fjarðarbotninum, en menn verða vart í rónni fyrr en vorgotssíldarstofninn fer að færa sig utar með hækkandi sól. Hreinsunaraðgerðir heimamanna og stjórnvalda hafa bætt ástandið í fjörum verulega, þannig að tjón verð- ur minna en á horfðist. Ef enginn nýr síldardauði verður á næstu vikum ætti ástandið að fara hratt skánandi, óþefurinn sem legið hefur yfir firðin- um að hverfa og grúturinn sem eftir er að brotna niður. Eftir situr hins vegar spurningin um orsök þessa gífur lega fiskdauða, sem klárlega mun fara í sögubækur náttúruvís- indanna og er tilefni ítarlegrar rann- sóknar. Átti þverunin þátt í síldardauðan- um? Margir hafa spurt hvort þver- un Kolgrafafjarðar árið 2004 hafi átt þátt í að skapa þær aðstæður sem drap síldina þar. Sjór streym- ir nú við aðfall og útfiri í gegnum op sem er um 1/10 af breidd fjarðar- ins fyrir þverun. Þrátt fyrir þessa miklu þrengingu gætir sjávarfalla að mestu leyti líkt og áður innan þver- unar. Þetta er ólíkt því sem var t.d. við þverun Gilsfjarðar, þar sem vitað var fyrirfram að fallaskipti myndu breytast, sem hefur haft mikil áhrif á lífríki fjarðarins innan sem utan þverunar. En þótt fallaskipti haldist að mestu er hins vegar ekki tryggt að þverun breyti ekki vistkerfi sjávar. Mikil þrenging fjarðar hefur áhrif á straumakerfi og mögulega þar með þætti eins og súrefnismettun og hr- ingrás næringar- og úrgangsefna. Hafrannsóknastofnun hefur þegar lagt drög að ítarlegri rannsókn á orsökum fiskdauðans í Kolgrafafirði, enda eru mikil efnahagsverðmæti í húfi og ljóst að meta mætti tjónið hvað síldarstofninn varðar í millj- örðum króna. Áhrif þverunarinnar verða skoðuð þar, sem og aðrir þætt- ir. Ljóst er að sú rannsókn mun taka marga mánuði í það minnsta, enda kallar hún á ítarlegar mælingar og rýni á mörgum þáttum. Það auðveld- ar ekki rannsóknina að takmörkuð þekking er á ástandi mála fyrir þver- un, enda eru ítarlegar rannsóknir á straumfræði og vistkerfi fjarða dýrar og þeim því e.t.v. ekki sinnt eins og æskilegt væri við mat á umhverfis- áhrifum. T.d. er lítið vitað um ís- lenskar fjörur sem uppeldisstöðvar fiska, en þar finnast þó m.a. seiði skarkola, hrognkelsa og ufsa og lík- lega þorsks. Það er óvíst hvort rann- sóknin mun skila óyggjandi svari um áhrif þverunar Kolgrafafjarðar á síldardauðann, þótt við hljótum að vona að hún varpi ljósi á þann þátt jafnt sem aðra. Varúðarreglan kallar á endurmat Nú hafa um tíu firðir verið þveraðir á Íslandi, þótt áhrif framkvæmda séu misjöfn. Ásýnd sumra fjarða og líf- ríki hefur gjörbreyst, s.s. í Gilsfirði, á meðan sumar þveranir í fjarðarbotn- um hafa takmörkuð áhrif á fjörðinn í heild og lífríki sjávar þar. Nokkrar þveranir eru nú á samgönguáætlun og undirbúningur framkvæmda við sumar langt kominn. Oftast fæst veruleg samgöngu- bót með þverunum, en við verðum að vita hvaða verði hún er keypt og hvort aðrir kostur séu þá e.t.v. betri þegar upp er staðið. Varúðarreglan er ein af grunnreglum umhverfisvernd- ar, sem þjóðir heims samþykktu í Ríó árið 1992. Í stuttu máli má segja að reglan skyldi okkur til að sýna kapp með forsjá. Ef rökstuddur grunur er uppi um alvarleg umhverfisáhrif að- gerða ber okkur að bæta þekkingu okkar og leita leiða til að koma í veg fyrir umhverfisslys. Vísindaleg óvissa er alltaf til staðar, en hún má ekki vera afsökun fyrir að fara út í van- hugsaðar framkvæmdir. Sumir fræðimenn hafa spurt op- inberlega hvort við höfum óafvitandi skapað eins konar síldargildru í Kolgrafafirði með þverun hans og mikilli þrengingu. Við bíðum svara við þeirri spurningu, en hún er áleitin; möguleiki á slíku var ekki mikið ræddur við þveranafram- kvæmdir til þessa. Við hljótum að endurmeta þveranir fjarða í ljósi at- burðanna í Kolgrafafirði. Mögulega má bæta hönnun þverana og einnig má skoða betur aðrar lausnir við samgöngubætur, s.s. jarðgöng þar sem þar á við eða öflugra viðhald vega. Okkur ber skýr skylda til endur- mats á þverunum samkvæmt var- úðarreglunni. Það snýst ekki einungis um að láta náttúruna njóta vafans, heldur er það hagur okkar sjálfra að koma í veg fyrir umhverfisslys í fram- tíðinni eins og hægt er. Ég kalla eftir upplýstri umræðu um áhrif þverana á lífríki strandsvæða, þar á meðal á nytjastofna. Ég tel einnig rétt áður en lengra er haldið að gera ítarlega úttekt á reynslu okkar af þverunum til þessa og hugsanlegum áhrifum þeirra framkvæmda sem nú eru í bígerð eða á hugmyndastigi. Í boltaleik Hundaeigendur leggja jafnan leið sína á Geirsnef þar sem hvuttar af öllum stærðum og gerðum fá að leika lausum hala. Þessir tveir hundar voru í boltaleik með eigendum sínum á föstudag og virtust hafa gaman af. Mynd Sigtryggur ariMyndin Umræða 15Mánudagur 11. mars 2013 „Mikil þrenging fjarðar hefur áhrif á straumakerfi Kjallari Svandís Svavarsdóttir M y n d S u M a r Li Ð i Á S g Ei r SS O n

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.