Dagblaðið Vísir - DV - 11.03.2013, Blaðsíða 15
Ég var
heppinn
Ég er miklu frekar
athyglissjúk
Ekki taka matar-
gerðina of alvarlega
Steinar B. Aðalbjörnsson er staðráðinn í því að læra af hjartaáfallinu. – DVDiljá Ámundadóttir hefur engan áhuga á pólitík. – DVKatrín Björk gefur góð ráð fyrir fermingarveislur. – DV
Skoða þarf þveranir
Spurningin
„Já, að sjálfsögðu. List er mikil-
væg fyrir samfélagið.“
Maríanna Eva Dúfa Sævarsdóttir
20 ára búðarstarfsmaður
„Já. Það þarf að ýta undir list í
samfélaginu og styrkja hana.“
Úlfur Reginn Úlfarsson
27 ára vinnur í bókunardeild Hilton
„Andstaðan við þau er fyrir
neðan allar hellur. Mér finnst þau
eiga rétt á sér.“
Anna Margrét Ólafsdóttir
21 árs nemi
„Já, mér finnst það. Það minnsta
sem við getum gert er að styðja
við listir því þær skila svo miklu
til baka til okkar.“
Ragnar Láki Jónsson
30 ára tónlistarmaður
„Jú, mér finnst þau eiga rétt á sér.“
Sigrún Hanna Klausen
25 ára leikskólakennari
Eiga listamanna-
laun rétt á sér?
1 Bráðkvaddur eftir baráttu við sinuelda Sigvaldi Ásgeirsson,
ábúandi á Vilmundarstöðum, varð
bráðkvaddur á laugardag.
2 Mistök að gera lítið úr Vigdísi Hauksdóttur Svavar Gestsson segir
að Vigdís verði ráðherra komist Fram-
sókn og Sjálfstæðisflokkur til valda.
3 „Vil að minn maður viti hver Laddi er, þekki Stundina okkar
og svona“ Diljá Ámundadóttir fór í
heimsreisu og var ekki opin fyrir því að
kynnast karlmönnum mjög náið.
4 Börnin fengu lifrina Helgi Sverrisson fékk nýja lifur.
5 Elti bílstjóra og braut í honum tennur Fórnarlambið leitaði á
slysadeild en árásarmaðurinn er enn
ófundinn.
6 Fékk sænskt hjarta og féll fyrir Abba Jón Páll Haraldsson
fékk nýtt hjarta og féll fyrir sænsku
hljómsveitinni Abba í kjölfarið.
7 Útgefandi getur ekki mælt með eigin bók Davíð Þorláksson
og SUS-liðar gefa út bókina Málþóf
sem inniheldur ræðu Jóhönnu
Sigurðardóttur.
Mest lesið á DV.is
S
íldardauðinn í Kolgrafafirði
nú í vetur kom stjórnvöldum
sem öðrum í opna skjöldu.
Erfitt er að finna önnur dæmi
um jafn umfangsmikla við-
burði af þessu tagi hér við land og
jafnvel á heimsvísu. Yfir 50.000 tonn
af síld hafa drepist í firðinum, að
öllum líkindum af súrefnisskorti.
Hrannir af síld hafa þakið fjörur og
fjarðarbotninn var nær teppalagð-
ur af fiskhræjum um tíma. Áherslur
stjórnvalda hafa verið á að taka á
bráðavandanum sem skapast hefur
við þessar fordæmalausu aðstæð-
ur, einkum eftir að ástandið versn-
aði til muna við seinni viðburðinn 1.
febrúar síðastliðinn.
Yfir 15.000 tonn af síld hafa verið
grafin í fjörunni við bæinn Eiði og
yfir 1.000 tonn af grút verið urðuð á
öruggan hátt á næsta viðurkennda
urðunarstað. Virkt eftirlit er með
ástandi mála á vegum þriggja stofn-
ana, þar sem m.a. er gáð að hvort
grútarblautir ernir finnast, en stór
hluti arnarstofnsins hefur heimsótt
Kolgrafafjörð að gæða sér á síldar-
hlaðborðinu þar. Tilraunir hafa ver-
ið gerðar til að fæla síldina burt frá
fjarðarbotninum, en menn verða vart
í rónni fyrr en vorgotssíldarstofninn
fer að færa sig utar með hækkandi
sól.
Hreinsunaraðgerðir heimamanna
og stjórnvalda hafa bætt ástandið í
fjörum verulega, þannig að tjón verð-
ur minna en á horfðist. Ef enginn nýr
síldardauði verður á næstu vikum
ætti ástandið að fara hratt skánandi,
óþefurinn sem legið hefur yfir firðin-
um að hverfa og grúturinn sem eftir
er að brotna niður. Eftir situr hins
vegar spurningin um orsök þessa
gífur lega fiskdauða, sem klárlega
mun fara í sögubækur náttúruvís-
indanna og er tilefni ítarlegrar rann-
sóknar.
Átti þverunin þátt í síldardauðan-
um?
Margir hafa spurt hvort þver-
un Kolgrafafjarðar árið 2004 hafi
átt þátt í að skapa þær aðstæður
sem drap síldina þar. Sjór streym-
ir nú við aðfall og útfiri í gegnum op
sem er um 1/10 af breidd fjarðar-
ins fyrir þverun. Þrátt fyrir þessa
miklu þrengingu gætir sjávarfalla að
mestu leyti líkt og áður innan þver-
unar. Þetta er ólíkt því sem var t.d.
við þverun Gilsfjarðar, þar sem vitað
var fyrirfram að fallaskipti myndu
breytast, sem hefur haft mikil áhrif
á lífríki fjarðarins innan sem utan
þverunar. En þótt fallaskipti haldist
að mestu er hins vegar ekki tryggt
að þverun breyti ekki vistkerfi sjávar.
Mikil þrenging fjarðar hefur áhrif á
straumakerfi og mögulega þar með
þætti eins og súrefnismettun og hr-
ingrás næringar- og úrgangsefna.
Hafrannsóknastofnun hefur þegar
lagt drög að ítarlegri rannsókn á
orsökum fiskdauðans í Kolgrafafirði,
enda eru mikil efnahagsverðmæti
í húfi og ljóst að meta mætti tjónið
hvað síldarstofninn varðar í millj-
örðum króna. Áhrif þverunarinnar
verða skoðuð þar, sem og aðrir þætt-
ir. Ljóst er að sú rannsókn mun taka
marga mánuði í það minnsta, enda
kallar hún á ítarlegar mælingar og
rýni á mörgum þáttum. Það auðveld-
ar ekki rannsóknina að takmörkuð
þekking er á ástandi mála fyrir þver-
un, enda eru ítarlegar rannsóknir á
straumfræði og vistkerfi fjarða dýrar
og þeim því e.t.v. ekki sinnt eins og
æskilegt væri við mat á umhverfis-
áhrifum. T.d. er lítið vitað um ís-
lenskar fjörur sem uppeldisstöðvar
fiska, en þar finnast þó m.a. seiði
skarkola, hrognkelsa og ufsa og lík-
lega þorsks. Það er óvíst hvort rann-
sóknin mun skila óyggjandi svari
um áhrif þverunar Kolgrafafjarðar á
síldardauðann, þótt við hljótum að
vona að hún varpi ljósi á þann þátt
jafnt sem aðra.
Varúðarreglan kallar á endurmat
Nú hafa um tíu firðir verið þveraðir á
Íslandi, þótt áhrif framkvæmda séu
misjöfn. Ásýnd sumra fjarða og líf-
ríki hefur gjörbreyst, s.s. í Gilsfirði, á
meðan sumar þveranir í fjarðarbotn-
um hafa takmörkuð áhrif á fjörðinn
í heild og lífríki sjávar þar. Nokkrar
þveranir eru nú á samgönguáætlun
og undirbúningur framkvæmda við
sumar langt kominn.
Oftast fæst veruleg samgöngu-
bót með þverunum, en við verðum
að vita hvaða verði hún er keypt og
hvort aðrir kostur séu þá e.t.v. betri
þegar upp er staðið. Varúðarreglan er
ein af grunnreglum umhverfisvernd-
ar, sem þjóðir heims samþykktu í Ríó
árið 1992. Í stuttu máli má segja að
reglan skyldi okkur til að sýna kapp
með forsjá. Ef rökstuddur grunur er
uppi um alvarleg umhverfisáhrif að-
gerða ber okkur að bæta þekkingu
okkar og leita leiða til að koma í veg
fyrir umhverfisslys. Vísindaleg óvissa
er alltaf til staðar, en hún má ekki
vera afsökun fyrir að fara út í van-
hugsaðar framkvæmdir.
Sumir fræðimenn hafa spurt op-
inberlega hvort við höfum óafvitandi
skapað eins konar síldargildru í
Kolgrafafirði með þverun hans og
mikilli þrengingu. Við bíðum svara
við þeirri spurningu, en hún er
áleitin; möguleiki á slíku var ekki
mikið ræddur við þveranafram-
kvæmdir til þessa. Við hljótum að
endurmeta þveranir fjarða í ljósi at-
burðanna í Kolgrafafirði. Mögulega
má bæta hönnun þverana og einnig
má skoða betur aðrar lausnir við
samgöngubætur, s.s. jarðgöng þar
sem þar á við eða öflugra viðhald
vega. Okkur ber skýr skylda til endur-
mats á þverunum samkvæmt var-
úðarreglunni. Það snýst ekki einungis
um að láta náttúruna njóta vafans,
heldur er það hagur okkar sjálfra að
koma í veg fyrir umhverfisslys í fram-
tíðinni eins og hægt er. Ég kalla eftir
upplýstri umræðu um áhrif þverana
á lífríki strandsvæða, þar á meðal á
nytjastofna. Ég tel einnig rétt áður
en lengra er haldið að gera ítarlega
úttekt á reynslu okkar af þverunum
til þessa og hugsanlegum áhrifum
þeirra framkvæmda sem nú eru í
bígerð eða á hugmyndastigi.
Í boltaleik Hundaeigendur leggja jafnan leið sína á Geirsnef þar sem hvuttar af öllum stærðum og gerðum fá að leika lausum hala. Þessir tveir hundar voru í boltaleik með
eigendum sínum á föstudag og virtust hafa gaman af. Mynd Sigtryggur ariMyndin
Umræða 15Mánudagur 11. mars 2013
„Mikil
þrenging
fjarðar hefur áhrif
á straumakerfi
Kjallari
Svandís
Svavarsdóttir
M
y
n
d
S
u
M
a
r
Li
Ð
i Á
S
g
Ei
r
SS
O
n