Dagblaðið Vísir - DV - 13.03.2013, Qupperneq 4
4 Fréttir 13. mars 2013 Miðvikudagur
Jón varði ríkisstjórnina falli
n Vantrauststillaga Þórs Saari felld
J
ón Bjarnason, fyrrverandi þing-
maður Vinstri grænna og ráð-
herra í ríkisstjórn Jóhönnu
Sigurðardóttur, sat hjá við at-
kvæðagreiðslu um vantrauststillögu
gagnvart ríkisstjórninni á mánudag.
Þrjátíu og tveir greiddu atkvæði
gegn vantrauststillögu Þórs Saari en
29 voru henni hlynntir. Tillagan var
studd af þingmönnum Hreyfingar-
innar, Sjálfstæðisflokksins og Fram-
sóknarflokksins. Tveir þingmenn
Bjartrar framtíðar og Jón Bjarnason
vörðu stjórnina falli.
Þór lagði fram tillöguna vegna
stjórnarskrármálsins en hann og aðr-
ir þingmenn Hreyfingarinnar hafa
gert þá kröfu að stjórnarskrármálið
hljóti afgreiðslu í þeirri mynd sem
það er fyrir þinglok. Árni Páll Árna-
son, formaður Samfylkingarinnar,
Katrín Jakobsdóttir, formaður Vinstri
grænna, og Guðmundur Steingríms-
son, formaður Bjartrar framtíð-
ar, hafa lagt til að breytingar ákvæði
stjórnarskrárinnar verði breytt til
að hægt sé að afgreiða breytingar á
næsta þingi.
Þingmenn stjórnarandstöðunnar
sem studdu tillöguna gerðu það hins
vegar flestir á öðrum forsendum en
Þór. Í umræðum um tillöguna lýstu
þingmenn stjórnarandstöðunnar
hver á fætur öðrum því yfir að þeir
styddu vantraust vegna annarra
verka ríkisstjórnarinnar.
Jóhanna Sigurðardóttir sagði að
tillagan væri heimskuleg og Stein-
grímur J. Sigfússon sagði að Þór væri
að leiða Sjálfstæðisflokk og Fram-
sóknarflokk til valda. „Þetta er stór-
brotið. Tillagan gengur út á að leiða
Sjálfstæðisflokk og Framsóknarflokk
til valda, núna strax, fyrir kosningar,“
sagði hann í umræðunum. n
Ósáttur borgarstjóri:
„Dónaskapur
og frekja“
„Þetta er algjörlega óþolandi
dónaskapur og frekja,“ segir Jón
Gnarr, borgarstjóri Reykjavíkur,
um bifreiðaeigendur sem hafa lagt
bílum sínum ólöglega þvers og
kruss um borgina. „Þetta er ekki
ásættanleg hegðun í siðmennt-
uðu samfélagi,“ segir borgarstjór-
inn á Facebook-síðu sinni, en
hann vísar þar til myndar sem
lögreglan á höfuðborgarsvæðinu
sendi frá sér fyrr á þriðjudag, með
þessum skilaboðum: „Þessir ungu
menn, fyrirmyndarvegfarendur,
áttu erfitt með að skilja aðgangs-
hörku ökumanna þessara bifreiða
á dögunum og sendu okkur því
þessa mynd. Þótt við séum að
flýta okkur og þótt að ekkert stæði
sé laust alveg við innganginn, er
stundum gott að velta fyrir sér að
allar okkar gjörðir hafa afleiðingar.
Er sanngjarnt að þessir vegfarend-
ur þurfti að þvælast út á götu, ein-
faldlega vegna þess að ökumenn
þessara bifreiða fundu sér ekki
löglegt stæði?
Látum þetta ekki henda okkur.
Leggjum löglega.“
Jón vill breyta því hvernig tekið
er á slíkum „subbuskap“ og vill
auknar heimildir til að draga bíla
á brott. „Við erum að vinna að því
að fá heimild frá innanríkisráðu-
neytinu sem gefur Bílastæðasjóði
leyfi til að láta draga burt ólöglega
lögðum ökutækjum á kostnað
eiganda. Vonandi verður það til
að útrýma þessum hvimleiða og
hættulega plebbaskap,“ segir hann.
Laun hækka
Regluleg laun voru að meðaltali
0,8 prósentum hærri á fjórða
ársfjórðungi 2012 en í ársfjórð-
ungnum á undan. Frá fyrra ári
hækkuðu laun um 4,8 prósent að
meðaltali, hækkunin var 5,1 pró-
sent á almennum vinnumarkaði
og 4,0 prósent hjá opinberum
starfsmönnum. Þetta kemur fram
í tölum sem Hagstofa Íslands birti
á þriðjudag. Þar kemur fram að
frá fyrri ársfjórðungi hafi mest
hækkun reglulegra launa mælst
í fjármálaþjónustu, lífeyrissjóð-
um og vátryggingum, eða um 1,3
prósent.
Sat hjá Jón Bjarnason greiddi ekki atkvæði
með tillögunni.
Ekki skoðað tölvu-
póst þingmanna
n Annar innherjasvikadómurinn sem fellur í máli hjá sérstökum
E
ftirlitsaðilar eins og Fjármála-
eftirlitið hafa ekki látið reyna
á heimild sem þeir hafa til að
óska eftir aðgangi að tölvu-
pósti Alþingismanna eða
starfsmanna hins opinbera vegna
rannsókna á meintum efnahagsbrot-
um sem tengjast hruninu. Tölvu-
póstur er gjarnan mikilvæg heimild í
rannsóknum eftirlitsaðila á efnahags-
brotum, til dæmis í ákæru sérstaks
saksóknara gegn fyrrverandi starfs-
manni Glitnis, Friðfinni Ragnari Sig-
urðssyni.
Dæmdur fyrir innherjasvik
Glitnismaðurinn fyrrverandi var
dæmdur í tólf mánaða fangelsi
fyrir innherjasvik í Héraðsdómi
Reykjaness á mánudaginn. Friðfinn-
ur seldi hlutabréf sem hann átti í
Glitni fyrir rúmlega nítján milljónir
króna í aðdraganda hrunsins 2008,
nánar tiltekið í mars, apríl og septem-
ber 2008. Þótti dómaranum í málinu
sannað að upplýsingarnar sem með-
al annars komu fram í tölvupósti Frið-
finns Ragnars um vitneskju hans um
slæma stöðu Glitnis á þessum tíma
nægjanlega góðar til að ljóst væri að
honum hafi verið kunnugt um að
bankinn ætti í erfiðleikum.
Í lok mars 2008 sagði Friðfinnur
meðal annars í tölvupósti sem bar yf-
irskriftina „Enn versnar það“: „Það
er fokið í flest þegar erlendir bankar
neita að eiga í spot viðskiptum við
okkur. Þá er ekki mikið traust eftir.
Þetta er eitthvað sem ég hef aldrei séð
áður, en ég er svo sem búinn að sjá
margt sem ég hef aldrei séð áður síð-
ustu vikurnar.“
Friðfinnur er annar einstaklingur-
inn sem dæmdur er fyrir innherjasvik
á grundvelli ákæru frá sérstökum sak-
sóknara í kjölfar íslenska efnahags-
hrunsins. Hinn er Baldur Guðlaugs-
son, fyrrverandi ráðuneytisstjóri í
fjármálaráðuneytinu.
Bjarni seldi skömmu áður
Líkt og DV hefur greint frá seldu Bjarni
Benediktsson, núverandi formað-
ur Sjálfstæðisflokksins, og faðir hans,
Benedikt Sveinsson, 57,5 milljón-
ir hluta í Glitni. Sölu hlutabréfanna
bar upp í febrúar 2008, skömmu áður
en Friðfinnur Ragnar seldi bréfin sem
hann átti í Glitni fyrir rúmar 19 millj-
ónir. Stærstur hluti þessara bréfa
feðganna, rúmlega 50 milljónir hluta,
var í eigu föður Bjarna.
Þegar Bjarni svaraði fyrirspurn DV
um hlutabréfasölu sína í bankanum
sagði hann að bréfin hefðu verið seld
í nokkrum skömmtum í febrúar 2008.
Líkt og DV hefur greint frá kom Bjarni
að endurfjármögnun á hlutabréfum
í Glitni í gegnum eignarhaldsfélagið
Vafning í þessum sama mánuði.
„Umrædd hlutabréf voru seld smám
saman í febrúarmánuði 2008.“ Um var
að ræða 7 milljónir hluta í Glitni sem
Bjarni seldi fyrir samtals 120 milljónir
króna. Því var um að ræða sölu sem
var rúmlega 100 milljónum krónum
hærri en sala Friðfinns Ragnars á bréf-
um sínum.
Ástæða endurfjármögnunarinnar
á Glitnisbréfunum í gegnum Vafning
var sú að bandaríski bankinn Morgan
Stanley vildi ekki lengur fjármagna
eignarhaldsfélagið Þátt International,
sem var í eigu Mile stone og Einars
og Benedikts Sveinssona, vegna þess
að hlutabréfaverð í Glitni hafði lækk-
að svo mikið. Glitnir tók því við fjár-
mögnuninni á hlutabréfum félagsins
og notaði meðal annars til þess
eignarhaldsfélagið Vafning.
Geta séð póst til þriðja aðila
Ef grunsemdir eru uppi um að
þingmenn, eða aðrir opinberir
starfsmenn, hafi nýtt sér innherja-
upplýsingar í viðskiptum með fjár-
málaafurðir fyrir hrunið 2008 þá
hafa eftirlitsaðilar hins vegar ekki
nýtt sér þá heimild að geta fengið
aðgang að tölvupósti þeirra beint.
Aftur á móti geta þessir eftirlits-
aðilar væntanlega séð tölvupóst frá
þessum þingmönnum, eða opin-
berum starfsmönnum, sem ratað
hefur til aðila utan stjórnkerfisins, til
dæmis starfsmanna fjármálafyrir-
tækja. Fjármálaeftirlitið og embætti
sérstaks saksóknara hefur aðgang
að tölvupósti starfsmanna fjármála-
fyrirtækja, líkt og komið hefur fram
opinberlega. n
Ingi Freyr Vilhjálmsson
fréttastjóri skrifar ingi@dv.is
„Þá er ekki
mikið
traust eftir
Skoðuðu ekki póst þingmanna
Eftirlitsaðilar hafa ekki nýtt sér
heimild í lögum til að skoða tölvupóst
þingmanna. Starfsmaður Glitnis, Frið-
finnur Ragnar Sigurðsson, var á mánu-
daginn dæmdur fyrir innherjasvik eftir
að hann seldi bréf í Glitni frá mars til
september 2008. Bjarni Benedikts-
son, formaður Sjálfstæðisflokksins,
seldi bréf sín í Glitni skömmu áður en
Friðfinnur byrjaði að selja sín bréf.