Dagblaðið Vísir - DV - 13.03.2013, Page 8
8 Fréttir 13. mars 2013 Miðvikudagur
Víða hallar
á konur
Færri konur sitja á þingi en karlar,
færri konur eiga sæti í opinberum
nefndum og ráðum, konur eru
sjaldnar framkvæmdastjórar
sveitarfélaganna, færri eru héraðs-
dómarar, forstöðumenn ríkisstofn-
ana, og þegar kemur að því að vera
framkvæmdastjóri fyrirtækja eru
konur almennt mun færri.
Þetta er á meðal þess sem
fram kemur í bæklingi, á vegum
Hagstofunnar, Jafnréttisstofu
og velferðarráðuneytisins, sem
ber heitið Konur og karlar á Ís-
landi 2013. Þar kemur líka fram
að konur eru almennt með lægri
mánaðarlaun en karlar á almenn-
um vinnumarkaði og að kon-
ur eru í færri áhrifastöðum þrátt
fyrir að vera að jafnaði með meiri
menntun.
Þátttaka kynjanna á vinnu-
markaði er nánast jafn mikil, kon-
ur eru litlu færri.
Barnlaus hjón
stærsti hópurinn
Í tölum Hagstofunnar, Jafnréttis-
stofu og velferðarráðuneytisins
kemur fram að algengasta fjöl-
skyldumynstrið er barnlaus hjón.
Af öllum fjölskyldum eru barnlaus
hjón 37,9 prósent. Fólk sem á börn
í hjónabandi telur 29 prósent allra
fjölskyldna. Einstæðar mæður
eru 14,8 prósent allra fjölskyldna
og einstæðir feður 1,4 prósent.
12,5 prósent fjölskyldna eru pör í
óvígðri sambúð með börn en í 4,2
prósentum tilvika er fjölskyldu-
mynstrið óvígð sambúð án barna.
Fleiri athyglisverðar upplýs-
ingar koma fram í bæklingnum.
Árið 2011 voru rúmlega fjögur
þúsund konur í fæðingarorlofi
með börn, en rétt rúmlega þrjú
þúsund feður, en stærsti hluti
þeirra sem voru í fæðingarorlofi
voru í leyfi frá vinnumarkaði.
Fjórðungur sætir
kynferðisofbeldi
Athygli vekur að 42 prósent
kvenna á aldrinum 18–80 ára hafa
orðið fyrir einhvers konar ofbeldi
af hendi karla, að því er fram kem-
ur í sama riti. Þrjátíu prósent hafa
orðið fyrir líkamlegu ofbeldi en 24
prósent kynferðisofbeldi. Fjögur
prósent höfðu orðið fyrir ofbeldi
undangengna 12 mánuði (haustið
2007 til 2008).
Þegar horft er til ofbeldis í nán-
um samböndum segjast 22 pró-
sent kvenna hafa sætt ofbeldi af
einhverju tagi. 20 prósent hafa
orðið fyrir líkamlegu ofbeldi í
nánu sambandi og sex prósent
fyrir kynferðisofbeldi.
Fékk 400 milljóna
lán hjá Straumi
n Björn Leifsson er laus undan kröfum þrotabús Þreks ehf.
L
íkamsræktarfrömuðurinn
Björn Leifsson í World Class
mun, samkvæmt heimildum
DV, aðeins greiða hluta af
þeim kröfum sem kröfuhafar
gerðu í þrotabú Þreks ehf. Félagið hélt
utan um rekstur World Class-líkams-
ræktarstöðvanna og varð gjaldþrota
í september 2009. Kröfurnar í búið
námu um 2,2 milljörðum króna. DV
hefur hins vegar ekki heimildir fyrir
því hversu stóran hluta af kröfunum
Björn og Hafdís Jónsdóttir, eiginkona
hans og skráður eigandi World Class í
dag, munu greiða til þrotabúsins.
Fellt niður með samkomulagi
Síðasta málið af fjórum sem þrota-
búið höfðaði gegn Laugum ehf.,
félaginu sem keypti eignir Þreks ehf.
í aðdraganda gjaldþrots þess, var
fellt niður með samkomulagi í Hér-
aðsdómi Reykjavíkur síðastliðinn
mánudag. Að sögn Sigurbjörns
Þorbergssonar, skiptastjóra búsins,
eru „kröfuhafar sáttir við lyktir máls-
ins,“ eins og hann orðar það. Má ætla
að Björn hafi einnig verið sáttur við
niðurstöðuna fyrst samkomulag
náðist í málinu.
Sigurður G. Guðjónsson, lögmað-
ur Björns Leifssonar, neitaði að tjá
sig um málið þegar eftir því var leit-
að. Hann sagðist vera bundinn trún-
aði um samkomulagið við þrotabúið.
DV hafði einnig samband við
Björn Leifsson til að ræða við hann
um málið en fékk þau skilaboð að
hann vildi ekki ræða við blaðið.
Keypt á 25 milljónir
Forsaga málsins er sú að Björn og
Hafdís keyptu rekstur líkamsrækt-
arstöðva World Class út úr Þreki
ehf. í gegnum Laugar ehf. í septem-
ber 2009 á 25 milljónir króna. Áttu
kaupin sér stað sama dag og Þrek fór
í þrot. Sjálfur vildi Björn þó meina
að hann hefði greitt 274 milljón-
ir króna fyrir reksturinn með yfir-
töku á skuldbindingum gagnvart
viðskiptavinum.
Þrotabú Þreks ehf., sem nú heitir
ÞS69 ehf., fór fram á að sölunni yrði
rift á þeim forsendum að líkams-
ræktarveldið hefði verið selt of lágu
verði til of tengdra aðila. Í kring-
um fyrirtöku málsins fyrir héraðs-
dómi vorið 2011 lét Sigurbjörn hafa
eftir sér að kaupsamningurinn væri
hreinn gjafagerningur.
Samkvæmt heimildum DV hefur
þrotabúið nú sæst á að líta á skuld-
bindingar Lauga við viðskiptivini
sem hluta af greiðslu fyrir rekstur-
inn. Að öðrum kosti hefðu viðskipta-
vinir World Class getað gert kröfur í
þrotabúið og krafist endurgreiðslu
á líkamsræktarkortum. Sjónarmið
Björns hafa því verið tekin gild hvað
það varðar. Heimildirnar herma að
samkomulag á milli kröfuhafanna
og Lauga feli þó í sér frekari peninga-
greiðslur.
400 milljóna króna lán frá Straumi
Þá á hins vegar eftir að útskýra hvað-
an fjármunirnir sem greiddir voru til
búsins komu. Ljóst er að greiðslurnar
til þrotabúsins eru það háar að þær
liggja vart á glámbekk hjá Birni og
Hafdísi.
Þegar veðbókarvottorð World
Class-líkamsræktarstöðvarinnar á
Seltjarnarnesi er skoðað kemur fram
að húseignin var veðsett fyrir nýju
láni hjá ALMC hf., áður Straumi-
Burðarási, upp á 400 milljónir króna
í janúar síðastliðnum. Fasteignin er
í eigu Lauga ehf. og hvíla nú henni
veðbönd upp á 1.140 milljónir króna.
Þess ber að geta að húseignin úti á
Nesi var áður að hluta til í eigu þrota-
búsins.
Reksturinn metinn á um milljarð
Hugsanlegt er að umrætt lán frá
ALMC hafi farið í að ganga frá
samkomulagi við kröfuhafa þrota-
bús Þreks. Má því ætla að Björn hafi
hugsanlega greitt tæpar 700 milljónir
fyrir rekstur World Class þegar upp
er staðið. Þá er reiknað með áður-
nefndri yfirtöku skuldbindinganna
gagnvart viðskiptavinunum sem og
láninu frá ALMC.
DV greindi frá því árið 2011, sam-
kvæmt heimildum, að dómskvadd-
ir matsmenn hefðu komist að því að
rekstur líkamsræktarveldisins væri
um 800 til 1.000 milljóna króna virði.
Eftir því sem DV kemst næst hefur
reksturinn verið metinn nokkrum
sinnum eftir það. Allar matsgerðirnar
munu hafa verið hafðar að leiðarljósi
þegar upphæð sem var ásættanleg
fyrir báða aðila var reiknuð út.
Fjármagnaði útrásina
til Danmerkur
Athyglisvert er að ALMC láni Birni
nú 400 milljónir króna í ljósi þess að
bankinn stefndi honum vegna hátt
í milljarðs króna skuldar árið 2011.
Var sú skuld tilkomin vegna útrásar
World Class til Danmerkur sem
Straumur-Burðarás fjármagnaði
árið 2006. ALMC er eignaumsýslu-
félag sem heldur utan um eignirnar
sem áður voru í eigu Straums-
Burðaráss og á félagið meðal annars
100 hluti í fjárfestingarbankanum
Straumi – heildareignir félagsins
nema um einum milljarði evra í
dag.
Straumur-Burðarás, Björn og
viðskiptafélagi hans lögðu 2,3 millj-
arða króna, á þáverandi gengi, í
kaup á danska líkamsræktarfyr-
irtækinu Equinox árið 2006. Æv-
intýrið fékk ekki farsælan endi en
rekstrarfélag World Class, Þrek ehf.,
varð eins og áður sagði gjaldþrota
árið 2009. Má því ætla að stór hluti
skuldanna í félaginu sem Björn er
að greiða nú sé tilkominn vegna
útrásarævintýrisins sem Straumur-
Burðarás tók þátt í og höfðaði svo
mál vegna. Nú hefur arftaki Straums
fjármagnað móðurfélag World
Class með láni upp á 400 milljónir
króna.
Heldur rekstrinum óbreyttum
Straumur-Burðarás keypti meðal
annars kröfu Kaupþings á hendur
Birni og fyrrverandi viðskiptafélaga
hans til að nálgast persónulegar
ábyrgðir. En Björn lýsti því yfir í
október 2009, vegna umfjöllun-
ar um málið, að Straumur-Burða-
rás hefði þrýst á hann að taka á sig
frekari persónulegar ábyrgðir vegna
rekstur Equinox. Þá lýsti Björn því
jafnframt yfir að tækist ALMC ætl-
unarverk myndi það þýða persónu-
legt gjaldþrot hans. World Class
myndi hins vegar standa áfram
sterkum fótum, enda reksturinn
öruggur í nýju félagi.
Björn er nú laus allra mála hjá
þrotabúinu og heldur eftir rekstri
World Class óbreyttum. n
„Kröfu-
hafar
sáttir við lyktir
málsins
Sólrún Lilja Ragnarsdóttir
blaðamaður skrifar solrun@dv.is
Heldur World Class Björn
Leifsson heldur líkams-
ræktarstöðinni World Class
eftir fjögurra ára stapp og
málaferli. Móðurfélag World
Class fékk 400 milljóna
króna lán frá Straumi.