Dagblaðið Vísir - DV - 08.04.2013, Page 2
2 Fréttir 8. apríl 2013 Mánudagur
Óttast alvarleg umferðarslys
n „Fólk hrætt við að ganga Mýrargötumegin“
Þ
Það er bara spurning hvenær
næsta alvarlega slys verður,“
segir Snorri Thors, hótel-
stjóri Marina við Mýrargötu.
Snorri óttast að umferðarþungi á
Mýrargötu og Geirsgötu verði til
þess að fleiri alvarleg slys verði þar,
sérstaklega í ljósi þess að ferða-
mönnum hefur fjölgað mikið og
þar af leiðandi gestum hótelsins
einnig. Fréttastofa RÚV rædd við
Snorra en áform eru um að stækka
hótelið enn frekar og þétta á íbúa-
byggð á svæðinu.
„Gestirnir okkar eru mjög
ánægðir með staðsetninguna og
umhverfið,“ segir Snorri og enn
fremur: „Aftur á móti er fólk hrætt
við að ganga Mýrargötumegin.
Þar er bæði þung umferð og hröð.
Meðal annars áformar borgin
að þrengja Mýrargötu til þess að
draga úr umferð þar. Upphaflega
var hún ætluð sem hraðbraut en
í ljósi þróunar á svæðinu þarf að
endurskoða það.
Gísli Marteinn Baldursson
borgarfulltrúi sagði við RÚV að
lausnin sé á næstu grösum þar
sem til stendur að endurhanna
bæði Mýrargötu og Geirsgötu og
þétta byggð á svæðinu.
„Þannig að í staðinn fyrir að vera
hraðbrautin, sem skipulögð var
árið 1962 og við sjáum enn leifarn-
ar af, verði þetta svokölluð borgar-
gata. Öll hönnun verði þannig að
mönnum líði vel í götunni. Hún
beri áfram mikla umferð en umferð
verði hægari og rólegri en nú,“ sagði
hann um málið. n
simon@dv.is
Með stöðu vitnis
í Exeter-málinu
n Framkvæmdastjóri leigufélags Íbúðalánasjóðs losnaði undan skuldum
B
jarni Þór Þórólfsson við-
skiptafræðingur var í síð-
ustu viku ráðinn fram-
kvæmdastjóri Leigufélagsins
Kletts, sem heldur utan um
rúmlega 500 íbúðir sem eru í eigu
Íbúðalánasjóðs. Bjarni Þór starfaði
á sínum tíma sem útibússtjóri Byrs í
útibúi sparisjóðsins í Árbæ en lét af
því starfi árið 2009.
Hann var einn af eigendum fé-
lagsins Húnahorns ehf. en það félag
átti á sínum tíma stofnfjárbréf í Byr.
Félagið Exeter Holdings keypti síð-
ar stofnfjárbréf Húnahorns af MP
banka sem hafði tekið stofnfjárbréfin
yfir vegna veðkalls haustið 2008. Í lok
desember árið 2008 veitti Byr síðan
Exeter Holdings 1,4 milljarða króna
lán sem meðal annars var notað til
að kaupa stofnfjárbréf Húnahorns en
þau voru þá lítils virði.
Bar enga persónulega ábyrgð
Exeter Holdings keypti stofnfjárbréf
af Húnahorni fyrir um 70 milljón-
ir króna. Bjarni Þór fór með 12 pró-
senta hlut í Húnahorni og því keypti
félagið þann hlut sem hafði áður ver-
ið í hans eigu á átta milljónir króna.
Þess skal getið að Húnahorn var með
erlent lán hjá MP banka sem nam 55
milljónum króna í árslok 2007. Eina
tryggingin vegna þess láns var veð í
stofnfjárbréfunum sem Húnahorn
átti. Bjarni Þór bar enga persónulega
ábyrgð á skuldum Húnahorns við MP
banka. „Mér skilst að eina ábyrgðin
hafi verið veð í stofnfjárbréfunum.
Ég fór hins vegar ekki með nein
völd í þessu félagi,“ segir Bjarni Þór
Þórólfsson í samtali við DV. Fram-
kvæmdastjóri og eini stjórnarmaður
Húnahorns var Ragnar Z. Guðjóns-
son, fyrrverandi forstjóri Byrs.
Með stöðu vitnis
Einkahlutafélagið Exeter Holdings
var lýst gjaldþrota árið 2011. Engar
eignir fundust upp í kröfur í þrota-
búið sem voru upp á nærri 1.600
milljónir króna. Eins og kunnugt
er dæmdi Hæstiréttur þá Jón Þor-
steinn Jónsson, fyrrverandi stjórn-
arformann Byrs, og Ragnar Z. Guð-
jónsson, fyrrverandi forstjóra Byrs, í
fjögurra og hálfs árs óskilorðsbundið
fangelsi árið 2012 vegna umrædds
láns sem BYR veitti Exeter Holdings
upp á 1,4 milljarða króna í árslok
2012. Líkt og áður kom fram voru um
70 milljónir króna af því láni notað-
ar til kaupa á stofnfjárbréfum Húna-
horns. Ragnar Z. fór sjálfur með 30
prósenta hlut í Húnahorni en Bjarni
Þór átti 12 prósent í félaginu líkt og
áður kom fram.
„Ég hafði enga aðkomu að Exeter
Holdings og hætti ekki hjá Byr vegna
málefna þess. Ég var með stöðu
vitnis í Exeter-málinu en hafði enga
aðkomu að því,“ segir Bjarni Þór.
Aðspurður segir hann að málefni
Húnahorns hafi ekki komið til um-
ræðu þegar hann var ráðinn fram-
kvæmdastjóri Leigufélagsins Kletts
ehf. nú nýlega sem er alfarið í eigu
Íbúðalánasjóðs. n
Annas Sigmundsson
blaðamaður skrifar as@dv.is
Var hjá Byr
Bjarni Þór var
einn af eigendum
Húnahorns ehf.
Byr lánaði Exeter
Holdings 1,4 millj-
arða til að kaupa
stofnfjárbréf
Húnahorns, sem
voru lítils virði.
Ragnar Z. Framkvæmdastjóri og eini
stjórnarmaður Húnahorns var Ragnar Z.
Guðjónsson, fyrrverandi forstjóri Byrs.
Mikil ölvun
og ólæti
Töluvert var um tilkynningar
til lögreglunnar á höfuðborgar-
svæðinu vegna ölvunar, hávaða
og skemmtanahalds á föstu-
dagskvöld og aðfaranótt laugar-
dags. Alls voru ellefu vistaðir í
fangageymslum þá nóttina.
Klukkan hálf þrjú um
nóttina var gerð líkamsárás
í miðbænum. Fórnarlamb-
ið í henni endaði með brotnar
tennur og áverka á kinn, hugs-
anlega brotið kinnbein. Einn
var handtekinn grunaður í mál-
inu og vistaður í fangageymsl-
um.
Klukkan hálf fimm voru tve-
ir menn handteknir á Hverfis-
götu grunaðir um innbrot. Þeir
voru í mjög annarlegu ástandi
og voru vistaðir í fangageymslu
þar til unnt var að yfirheyra þá.
Um tíu mínútur í fimm um
morguninn var lögreglunni
tilkynnt um innbrot í apó-
tek í Hafnarfirði. Einn maður
var handtekinn grunaður um
verknaðinn.
Bjartsýn á
fylgisaukningu
Katrín Jakobsdóttir, formaður VG,
segist bjartsýn á að flokkurinn
eigi eftir að auka við fylgi sitt fyrir
kosningarnar. Hún var gestur í
þættinum Sprengisandi á Bylgj-
unni þar sem hún sagði erfiðar
ákvarðanir og átök innan flokks-
ins skýra mikið fylgistap flokksins.
Katrín fór yfir helstu stefnumál
flokksins og sagði þau vilja eyða
allt að sextíu milljörðum í að efla
velferða-, mennta- og heilbrigðis-
kerfið. Fylgi VG hefur fallið mikið
samkvæmt nýjustu könnunum
en í könnun Fréttablaðsins og
Stöðvar 2 frá því í síðustu viku
mældist flokkurinn með 5,7 pró-
senta fylgi. „Þetta hefur verið
erfitt kjörtímabil; við höfum misst
þingmenn, það hafa verið átök og
við höfum staðið í óvinsælum að-
gerðum þannig að allt spilar þetta
saman,“ sagði Katrín í þættinum.
Umferðarþungi Mikil umferð er um Kalkofnsveg, Geirsgötu og Mýrargötu í miðbæ
Reykjavíkur og óttast þeir sem stunda rekstur á svæðinu að alvarleg slys verði þarna, enda
hefur gangandi vegfarendum þar stórfjölgað.
„Er ég of feit?“
„Og ekki hjálpar til að ég er feit,“
sagði María Líndal Jóhannsdóttir
í þættinum Stóru málin sem var
til sýningar á Stöð 2 á sunnudags-
kvöld. María er 52 ára þriggja barna
móðir í Reykjanesbæ sem hefur
verið án atvinnu frá því í júlí í fyrra
eftir að hafa numið byggingarfræði
erlendis. María, sem kveðst heilsu-
hraust, segist ekki fá störf þó hún
uppfylli öll skilyrði. „Nei, því miður.
Þú varðst ekki fyrir valinu og starfið
auglýst aftur. Hvað er í gangi? Er
verið að leita að einhverri sérstakri
manneskju í þetta starf? Er verið að
leita að frænku sinni? Er ég of göm-
ul? Er ég of feit? Er ég of leiðinleg?“
sagði hún.