Dagblaðið Vísir - DV - 08.04.2013, Side 3

Dagblaðið Vísir - DV - 08.04.2013, Side 3
E ngin tilkynning til barna- verndar var skráð frá SÁÁ sem rekur meðferðarstofnanir og sinnir fjölskyldum í neyslu- vanda. Þetta kemur fram í nýrri en óbirtri rannsókn eftir Hildigunni Ólafs- dóttur og Kristnýju Steingrímsdóttur, Börnum rétt hjálparhönd, rannsókn á aðgerðum barnaverndar vegna barna sem bíða tjón af áfengis- eða vímu- efnaneyslu foreldra. Í rannsókninni er kannað hversu hátt hlutfall barna sem barnaverndin hefur afskipti af hafa orðið fyrir tjóni af völdum neyslu foreldra á áfengi, ólöglegum vímuefnum og lyfjum. Einnig er kannað hverjir það eru sem tilkynna til barnaverndar og hver við- brögð og úrræði hennar eru. Barni sagt að skipta sér ekki af Áfengis- og vímuefnaneysla foreldra getur skapað þær aðstæður að öryggi og heilsu barna sé hætta búin þótt ekki sé um ofbeldi að ræða. Þessu lýsti Inga Dís Svanlaugardóttir þegar hún sagði sögu sína í helgarblaði DV. „Það virtist sem hvergi í kerfinu væri stuðningur fyrir börn alkóhólista, al- veg sama hvað ég reyndi og hvert ég hringdi ég kom alls staðar að lokuð- um dyrum. Ef ég hringdi í SÁÁ á með- an mamma var illa haldin og heimilið í upplausn var mér sagt að hún þyrfti að koma sjálf, og ég stjórnaði henni ekki. Við börnin sátum þá uppi með hana fárveika á heimilinu,“ sagði Inga Dís sem var á barnsaldri þegar hún reyndi að hringja í Vog eftir liðsinni og hugsaði þá jafnframt um tvo yngri bræður sína. Hún segir meðferðar- aðila hafa sagt sér að skipta sér ekki af meðferð móðurinnar. Ekki ástæða til að tilkynna Þórarinn Tyrfingsson, yfirlæknir hjá Vogi, segir starfsmenn sjúkrahússins þrátt fyrir þetta ekki hafa haft ástæðu til að tilkynna um aðstæður. „Við tilkynnum auðvitað ef það er tilefni til þess. En það hefur greinilega ekki verið ástæða til þess.“ Vaknar aldrei grunur hjá ykkur um aðstæður barna þeirra sem eru í með- ferð hjá ykkur? „Nei, það hefur ekki verið. Ég get ekki ímyndað mér að það komi oft upp að við þurfum að tilkynna til barnaverndar. Við erum sjúkrahús,“ sagði Þórarinn. Lögregla, ættingjar og nágrannar tilkynna mest Í rannsókninni kemur fram að til- kynnt var um 5.256 börn til barna- verndaryfirvalda árið 2010 (Barna- verndarstofa, 2012), sem eru 6,5% allra barna á Íslandi á þeim tíma (Hagstofa Íslands, 2012). Þar af til- heyrðu 1995 börn umdæmi Barna- verndar Reykjavíkur (Barnaverndar- stofa, 2012) en þá bjuggu 27.439 börn í Reykjavík, sem felur í sér sama hlut- fall barna í barnaverndarmálum í Reykjavík og á landsvísu eða 6,5% (Hagstofa Íslands, 2012). Langalgengast er að lögregla til- kynni til barnaverndaryfirvalda og kemur tæplega helmingur allra til- kynninga frá lögreglu (Barnaverndar- stofa, 2012). Aðrar tilkynningar ber- ast frá öðrum opinberum aðilum en rúmur fimmtungur tilkynninga berst frá öðrum en opinberum aðilum og hefur það hlutfall farið vaxandi síð- ustu ár (Barnaverndarstofa, 2012). Í tilviki Ingu Dísar var það aðstandandi sem tilkynnti um bágar aðstæður hennar og bræðra hennar. Fáar tilkynningar komu frá skóla og leikskóla en heilbrigðisstarfsfólk tilkynnti barnaverndinni hlutfalls- lega oftar um neysluvanda en annan vanda. Starfsfólk heilbrigðisstofnana til- kynnti um 15% málanna en eins og áður sagði er engin tilkynning skráð frá SÁÁ sem rekur meðferðarstofn- anir og sinnir fjölskyldum í neyslu- vanda. Athyglisvert er hversu hátt hlutfall (17%) ættingja og nágranna (17%) til- kynntu um neysluvanda foreldra. Tilkynningaskyldan er rík. Í 96. grein barnaverndarlaga er greint frá refsiákvæðum vegna brota á tilkynn- ingaskyldu: „Ef maður lætur hjá líða að tilkynna barnaverndarnefnd um svo illa meðferð eða slæman aðbúnað barns að lífi þess eða heilsu sé hætta búin þá varðar það sektum eða fang- elsi allt að tveimur árum“. Af barnaverndarlögum er ljóst að landsmönnum er skylt að tilkynna um aðstæður barns í þeim tilvikum þar sem það er vanrækt og mikil ábyrgð hvílir því á opinberum starfsmönnum sem hafa afskipti af börnum. Falinn vandi Steinunn Bergmann, félagsráðgjafi hjá barnavernd, segir mikilvægt að allir þeir sem vita af börnum í ótrygg- um aðstæðum tilkynni það til barna- verndar. Erfiðustu tilvikin sem koma til kasta barnaverndar eru oft vegna vanrækslu og ofbeldis foreldra í vímu- efnaneyslu og með geðvandamál, segir Steinunn og bendir á að fjöldi tilkynninga gefi litla vísbendingu um hversu mörg börn búi við vondan aðbúnað. „Þetta er svo falinn vandi, fjöldi tilkynninga til barnaverndar gefur ekki rétta mynd af umfangi vanda barnanna sem um ræðir.“ Hún segir fulla ástæðu til að gefa því gaum að engin tilkynning hafi komið frá SÁÁ. Þarf að tala við barnið „Það er skylda þeirra að tilkynna um vanda barna og börn foreldra í neyslu eru í mikilli áhættu. Það er full ástæða til þess að gefa því gaum. Það þarf að athuga hvernig þeim líður. Það getur vel verið að það sé hugsað vel um þau. En það getur líka verið að aðstæður þeirra séu skelfilegar eins og þær voru í tilviki ungu stúlkunnar. Það sem er mikilvægt í þessu sambandi er að að- stæður barnsins séu kannaðar. Að það sé talað við barnið og haft samráð við það um líf þess. Ég get ímyndað mér að með- ferðaraðili vilji ekki íþyngja hinum veika með því að tilkynna til barna- verndar. Fólk er svo logandi hrætt um að börnin verði tekin af þeim. Barna- vernd er orðin að einhverri grýlu og neikvæð mynd dregin upp í fjöl- miðlum. Í reynd býr barnavernd yfir stuðningskerfi fyrir börn alkóhólista sem er alltaf í þróun. Forsjársvipting er afar fátíð. Ef börn eru fóstruð til 18 ára aldurs missa foreldrar forsjá. Það er mjög sjaldgæft og í raun ekkert til að hræðast. Stundum þurfa börn að búa annars staðar en á heimili foreldra sinna, en þá eru það mild úrræði. Skammtímavistun hjá fósturfjöl- skyldu. Algengasta úrræðið felur einfaldlega í sér ráðgjöf til foreldra og barns. Þá er hægt að fá ráðgjafa á heimilið og fá tómstundir greidd- ar fyrir börnin. Reynt er að styrkja barnið og gefa því hvíld.“ Barnavernd kom til hjálpar Reynsla Ingu Dísar af barnavernd var að mestu góð. Aðstandandi tilkynnti um aðstæður hennar og bræðra henn- ar og í kjölfarið var ákveðið að rann- saka aðstæður þeirra. Inga Dís segist þá fyrst hafa fengið einhverja hjálp í vonlausum aðstæðum. Hún er orðin tvítug og bræður hennar sextán ára og nú kemur til greina að hún fái forræði yfir tveimur yngri bræðrum sínum vegna alvarlegs drykkjuvanda móður hennar. Lausnin felur í sér að systkin- in geta búið saman fjarri móður sinni. „Þetta barnaverndarmál er búið að vera í gangi í smá tíma. Af því að þeir eru orðnir þetta gamlir, þá hafa þeir valdið sjálfir. Það er vonandi búið að fullreyna að þeir geti búið heima. Ég er með tímabundna umsjá með þeim til 16. apríl og eftir það mun Barnaverndarnefnd úrskurða um framhaldið, hvort ég fái að flytja með þá á okkar eigið heimili og fara með forsjá þeirra. Eini munurinn verður sá að við þrjú munum búa saman annars staðar þar sem álag- ið er minna. Í skjóli og öruggara um- hverfi. Ég hef séð um þá síðan þeir voru litlir, þetta er ekkert nýtt fyrir mér. Mig langar bara að þeir fái nokk- ur ár í friði og ró,“ segir Inga Dís. „Aðstæður barna eru mjög ólíkar. Það er ekkert eitt úrræði sem er betra en annað,“ útskýrir Steinunn eftir að hafa kynnt sér málefni Ingu Dísar. „Það sem skiptir máli er að barnavernd viti af börnunum og geti reynt að koma þeim til aðstoðar. Við reynum líka alltaf að hafa það í for- grunni að styrkja foreldrana til að bæta líf sitt og barna sinna.“ n Fréttir 3Mánudagur 8. apríl 2013 Barn í vanda beðið um að skipta sér ekki af n Inga Dís bað um hjálp frá SÁÁ en fékk enga n Engin tilkynning til barnaverndar frá SÁÁ Steinunn Bergmann Barnavernd „Það er skylda þeirra að tilkynna um vanda barna Opinberir aðilar 52% 65% Lögregla 93 25% 449 37% Skóli* 13 3% 91 8% Leikskóli/gæsluforeldri 5 1% 27 2% Læknir/ heilsugæsla/ sjúkrahús 55 15% 120 10% SÁÁ 0 0% 0 0% Aðrar meðferðarstofnanir 1 0% 5 0% Önnur barnaverndarnefnd 11 3% 35 3% Félagsþjónusta 18 5% 55 5% Nærumhverfi barns 48% 35% Foreldrar 45 12% 98 8% Ættingjar aðrir en foreldrar 64 17% 95 8% Barn leitaði sjálft til barnaverndar 2 1% 10 1% Nágrannar 65 17% 196 16% Aðrir 4 1% 30 2% Samtals 376 1211 Tilkynnandi Neysluvandi foreldra Alls Tafla 7 – Tilkynnendur – úr rannsókninni Börnum rétt hjálparhönd, rannsókn á aðgerðum barnaverndar vegna barna sem bíða tjón af áfengis- eða vímuefnaneyslu foreldra eftir eftir Hildigunni Ólafsdóttur og Kristnýju Steingrímsdóttur. Tilkynningar til barnaverndar * FELur EiNNig í Sér SérFræðiÞjóNuSTu SkóLA Og FræðSLu- EðA SkóLASkriFSTOFu. Vill að SÁÁ sé gefinn gaumur Steinunn Bergmann minnir á barna- verndarlög og ríka tilkynningaskyldu og vill að tilkynningum SÁÁ verði gefinn gaumur. Engin tilkynning frá SÁÁ Þórarinn Tyrfingsson segir enga ástæðu hafa verið til að tilkynna til barnaverndar þótt Inga Dís lýsi samskiptum við meðferðastofnunina þannig að ljóst mátti vera að hún og bræður hennar voru í hættu vegna drykkjuvanda móðurinnar. Helgarblað 4.–7. apríl sl. Kristjana Guðbrandsdóttir blaðamaður skrifar kristjana@dv.is n Framkvæmdastjóri leigufélags Íbúðalánasjóðs losnaði undan skuldum

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.