Dagblaðið Vísir - DV - 08.04.2013, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 08.04.2013, Blaðsíða 4
Nauðungarvistaður á Kleppi Þorvarður var metinn sakhæfur af geðlæknum áður en dómur var kveðinn upp í máli hans. Eftir að hann hóf afplánun á Litla-Hrauni þurfti þó að minnsta kosti einu sinni að nauð- ungarvista hann á réttargeðdeilinni á Kleppi. Fram kom í Fréttablaðinu í nóvember í fyrra að nauðsynlegt væri að svipta hann sjálfræði þar sem hann neitaði að sækja meðferð á geðdeild. Það er því ljóst að hann var talinn of veikur til að geta verið í afplánun á Litla-Hrauni. DV hefur rætt við nokkra aðila sem þekktu til Þorvarðar og allir eru þeir sammála um að hann hefði átt að vera vistaður á geðdeild, ekki í fangelsi. Það úrræði vantar hins vegar hjá fangelsismálayfirvöldum. Staðan er þannig í dag að engin sérstök stofnun er fyrir geðsjúka fanga sem metnir hafa verið sakhæfir fyrir dómi. Réttargeðdeildin á Kleppi, sem áður var til húsa að Sogni, er ein- göngu fyrir einstaklinga sem metnir hafa verið ósakhæfir. „Hann var eins og uppvakningur“ Fyrrverandi samfangi Þorvarðar segir í samtali við DV að öllum hafi verið það ljóst að honum leið mjög illa. Flestir innan fangelsisins hafi verið sammála um að maður í hans ástandi ætti ekki heima á Litla-Hrauni. „Það er örugglega ekki auðvelt að vera svona veikur og vera lokaður inni klukkan tíu á kvöldin,“ segir hann. Maðurinn segir þó hafa verið tölu- vert léttara yfir Þorvarði fyrst þegar hann hóf afplánun. Það hafi hins vegar fljótlega breyst. Hann eyddi miklum tíma einn og talaði við fáa. „Undir lokin þá var hann örugglega á mjög sterkum lyfjum, hann var eins og uppvakningur,“ segir maðurinn um ástandið á Þorvarði. Laug til um misnotkun Þorvarður var undir áhrifum fíkni- efna þegar hann réðst á föður sinn, hann sparkaði meðal annars ítrekað í höfðuð hans og barði með hnúa- járni. Fyrir dómi kom fram að að- eins nokkrum klukkustundum fyrir árásina hafi vinkona Þorvarðar, Anna Nicole Grayson, logið því að honum að Ólafur hefði misnotað hana frá átta ára aldri. Mun það hafa verið ástæða þess að Þorvarður fór til fundar við föður sinn með fyrr- greindum afleiðingum. Lögmaður Þorvarðar sagði fyrir dómi að hann sýndi mikla iðrun og liði verulega illa vegna árásarinnar. Hann hefði í raun misst fjölskyldu sína. Þorvarður sendi tvíburabróður sínum, Þórði Daníel, bréf þar sem hann baðst afsökunar á því að hafa ráðist á föður þeirra og sagði að sér þætti þetta leitt. Þá kom fram fyrir dómi að Þorvarður hefði fengið lyfja- meðferð við geðrofi en hann hefði náð geðheilsu sinni aftur að mestu leyti. Leiddist ungur út á ranga braut Þorvarður var fæddur þann 30. apríl árið 1979, og var annar tveggja sona Ólafs sem hann átti með fyrstu eigin- konu sinni Brynhildi Sigurðardóttur. Hún lést árið 1994 aðeins 45 ára úr krabbameini. Þorvarður var því að- eins 15 ára þegar hann missti móður sína. Hann leiddist ungur út á ranga braut í lífinu og hafði margsinnis komist í kast við lögin fyrir vörslu fíkniefna, alvarlegar líkamsárásir, vopnalagabrot og umferðarlagabrot, áður en hann réðst á föður sinn. Þá hafði hann nýlokið 18 mánaða af- plánun á Litla-Hrauni þegar árásin átti sér stað. Ólafur studdi son sinn Þorvarður bjó yfir listrænum hæfileikum og þótti á sínum yngri árum efnilegur fiðluleikari. Áhugi hans á tónlistinni dvínaði þó þegar leið á unglingsárin og hann hætti í tónlistarnámi þrátt fyrir að faðir hans hefði hvatt hann áfram. Samkvæmt heimildum DV sýndi Ólafur syni sínum einnig mikinn stuðning á meðan hann var í neyslu og þegar hann afplánaði fangelsis- dóma. Þorvarður lauk meðal annars stúdentsprófi þegar hann sat inni á Litla-Hrauni í fyrra skiptið. Hann virðist hafa ætlað að snúa blað- inu við því haustið sem árásin átti sér stað var hann byrjaður í námi í ferðamálafræði við Háskóla Ís- lands. Ólafur hafði einmitt orð á því í útvarpsviðtali tæpu ári fyrir árásina að hann væri mjög stoltur af syni sínum fyrir að hafa lokið stúdents- prófi í fangelsinu. Þorvarður mun þó hafa fallið aftur í fíkniefnaneyslu, með þeim hörmulegum afleiðingum sem greint hefur verið frá. n Þ orvarður Davíð Ólafsson svipti sig lífi í fangaklefa sín- um á Litla-Hrauni síðast- liðið fimmtudagskvöld. Sam- kvæmt heimildum DV átti hinn voveiflegi atburður sér stað áður en fangar voru læstir inni í klefum sínum, en það er gert klukkan tíu á kvöldin. Þegar í ljós kom að ekki var allt með felldu í klefa Þorvarðar voru samfangar hans hins vegar strax læst- ir inni í klefum sínum. Þorvarður var dæmdur í 14 ára fangelsi fyrir tilraun til manndráps árið 2011, en hann réðst á föður sinn, Ólaf Þórðarson tónlistarmann, í nóv- ember árið 2010. Ólafur komst aldrei til meðvitundar eftir árásina og lést tæpu ári síðar á Grensásdeild. 4 Fréttir 8. apríl 2013 Mánudagur „Það er örugglega ekki auðvelt að vera svona veikur og vera lokaður inni klukkan tíu á kvöldin Svipti sig lífi Þorvarður var að afplána 14 ára dóm á Litla-Hrauni sem hann fékk fyrir lífshættulega árás á föður sinn, Ólaf Þórðarson, þegar hann lést. SKjáSKot af facebooK Sólrún Lilja Ragnarsdóttir blaðamaður skrifar solrun@dv.is Þorvarður Davíð framDi sjálfsvíg n Var nauðungarvistaður á geðdeild og átti ekki að vera í fangelsi 17. nóvember 2010 Þorvarður Davíð Ólafsson Fæddur 30. apríl 1979 Dáinn 4.apríl 2013 Rændi pítsusendil Maður var handtekinn um fimm leytið á sunnudagsmorgun grun- aður um að hafa sparkað í höfuð manns. Fórnarlambið var flutt á slysadeild til aðhlynningar en ekki liggja fyrir frekari upplýsingar um áverka þess. Árásarmaðurinn var vistaður í fangageymslum þar til hann varð viðræðuhæfur. Lögreglunni var einnig tilkynnt um rán á laugardagskvöldið en maður ógnaði pítsusendli með hníf, rændi hann skiptimynt og farsíma og komst á brott með nokkrar pítsur í kassa. Fimm voru teknir fyrir ölvunarakstur á laugar- dagskvöldið og akstur tveggja til viðbótar sem voru með áfengi í blóði en undir refsimörkum. Þrír voru vistaðir í fangageymslum að eigin ósk. Æfir vegna veiðibanns Veiðimenn eru æfir vegna ákvörðunar Þingvallanefndar um að banna veiðar í þjóðargarðin- um að næturlagi. „Vísað er í há- reysti drykkjumanna sem haldið hafa vöku fyrir tjaldbúum. Hvern- ig bann við silungsveiðum muni lækna drykkjumenn af látum sín- um er óljóst. Það eru engin bein tengsl milli drykkjuláta og silungs- veiða,“ segir á vefsíðu Flugfrétta um málið. Á vefnum segir að rökin séu engin fyrir þessari ákvörðun: „Sjálfsagt er að banna drykkju- læti í þjóðgarðinum. Hvort held- ur er að nóttu eða degi. En að banna íslenskum veiðimönnum að njóta þeirra helgistunda sem gefast við vatnið þegar sum- arnóttin bjarta skartar sínu feg- ursta er ekkert annað en sorglegur misskilningur.“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.