Dagblaðið Vísir - DV - 08.04.2013, Síða 18
18 Lífsstíll 8. apríl 2013 Mánudagur
Skotleikur fyrir hugsandi fólk
B
ioShock-leikirnir hafa sank-
að að sér nokkuð stórum
og dyggum aðdáendahópi
á undanförnum árum enda
fáir skot- og ævintýraleikir sem
komast nálægt þeim í gæðum. Á
dögunum kom út BioShock In-
finite sem er sá þriðji í röðinni og
óhætt að fullyrða strax að leikurinn
standist allar kröfur um gæði og
skemmtanagildi.
Þeir sem ekki hafa spilað fyrri
leikina ættu ekki að örvænta enda
er söguþráður leiksins í litlu sam-
hengi við söguþráð fyrri leikja.
BioShock Infinite er fyrstu persónu
skotleikur sem gerist á því herr-
ans ári 1912 í hinni fljótandi skýja-
borg Kólumbíu. Þú ert í hlutverki
Booker DeWitt sem er sendur til
borgarinnar til að bjarga ungri
stúlku, Elísabetu, sem haldið hef-
ur verið fanginni í Kólumbíu allt
sitt líf. Þjóðernissinnar sem búa
í skýjaborginni – elítuhópur sem
vill halda bandarískum áhrifum frá
borginni – reyna að hafa hendur í
hári Elísabetar og Bookers. Ekki
nóg með það heldur blandast ann-
ar hópur, Vox Populi, sem sam-
anstendur af óbreyttum borgurum,
einnig inn í málið.
Ég ætla ekki að eyða miklu
plássi í að skrifa um útlit leiksins.
Það er í einu orði sagt stórkostlegt
og líklega fáir leikir sem eru jafn
glæsilegir og BioShock Infinite.
Söguþráðurinn er sterkur, stund-
um pínu flókinn, en heldur manni
þó við efnið. Booker þarf stundum
að grípa til vopna í leiknum og
er bardagakerfið kannski örlítið
þunglamalegt eins og stundum vill
verða. Mögulega hefur mikil Call of
Duty-spilun áhrif á þessa tilfinn-
ingu. Það sem gerir BioShock In-
finite jafn athyglisverðan og raun
ber vitni er að hann tekur á ýmsum
mikilvægum málum eins og ras-
isma, trúarkreddum og ójöfnuði í
samfélaginu. Því hefur verið haldið
fram að BioShock sé skotleikur
fyrir hugsandi fólk sem er alls ekki
fráleitt að mínu mati.
Þegar allt kemur til alls er Bio-
Shock Infinite virkilega vel heppn-
aður skotleikur. Þetta er stór
fantasíuheimur sem er auðvelt að
lifa sig inn í og gleyma sér í. Þó enn
sé aðeins apríl er ljóst að við erum
komin með kandídat í leik ársins
2013. n
Þ
egar sólin hækkar á lofti
verða óhreinindi og ryk
sjáanlegra á heimilunum.
Þetta er því tíminn til að
lofta út, dusta ryk og skúra
og skrúbba. Á heimasíðu Mörthu
Stewart má finna góð ráð til vor-
hreingerningar og hér eru nokkur
þeirra:
1 Svuntan Ef þú átt
gamla svuntu
með vösum er
tilvalið að nota
hana við þrifin.
Settu þá hreinsi-
efni, tuskur og ann-
að sem þú notar við þrif í vasana.
Á þennan hátt ertu með allt á þér
þegar þú ferð á milli herbergja. Þú
ert einnig með lausar hendur til að
skrúbba og þvo.
Til þess að búa til slíkt geymslu-
rými getur þú brotið upp á svuntuna
og saumað á þann hátt vasa.
2 Vax úr kertaglösum
Það er alltaf huggu-
legt að hafa kertaljós
í kringum sig en það
er leiðinlegra að þrífa
bráðið vax úr kertaglös-
um. Það getur verið bæði
erfitt að þrífa það almennilega og
maður á á hættu að rispa glösin. Ráð
við þessu er að setja glösin í frysti í
nokkra klukkutíma. Þegar vaxið frýs
skreppur það saman og rennur auð-
veldlega úr glösunum.
3 Blómin í bað Blómin okkar
og plöntur þurfa
líka að fara í sturtu
endrum og sinn-
um. Skelltu þeim í
baðkarið eða sturtu-
botninn og skolaðu
rykið af þeim.
4 Þegar færa þarf húsgögn Þegar
verið er að þrífa allt
hátt og lágt getur
verið nauðsyn-
legt að færa stór og
þung húsgögn til. Þá
er gott ráð að brjóta
saman handklæði og skella
þeim undir þá fleti húsgagnsins sem
snerta gólfið. Þannig er hægt ýta
þungum hlutum án þess að rispa
eða eyðileggja gólfið.
5 Lampaskermurinn þrifinn Ryk sest á
lampaskerma,
það er einn af
föstu punktun-
um í lífinu en
það getur ver-
ið erfitt að þrífa
skerma úr tau-
efni. Þá er tilvalið
að grípa til límrúll-
unnar sem við notum
venjulega á föt. Haltu skerminum
stöðugum með annarri hendi og
rúllaðu hann með hinni.
6 Svona má þurrka karöflur
Það kannast
líklega allir
við það hve
erfitt getur
verið að
þrífa karöfl-
ur sem eru
oftast með
þröngum hálsi.
Ekki skánar það
þegar kemur að því að þurrka þær.
Ráð við því er að rúlla upp eld-
húsrúllubréfi og stinga ofan í
hálsinn en pappírinn dregur í
sig rakann og karaflan verður
þurr. n
n Tími vorhreingerningar er kominn
6 góð ráð til að
einfalda þrifin
Tími á vorhreingerningu? Margir
taka eina ærlega vorhreingerningu.
Svona heldur
þú heimilinu
snyrtilegu
Búðu um rúmið
n Umbúið rúm gefur öllu her-
berginu snyrtilegan brag. Þannig
er ólíklegra að þú leyfir drasli að
safnast saman í herberginu.
Hafðu stjórn á draslinu
n Í hvert sinn sem þú gengur út úr
herbergi horfðu þá í kringum þig
og athugaðu hvort þar sé eitthvað
sem ekki er á sínum stað. Settu
hlutinn á sinn stað og farðu fram á
það við annað heimilisfólk að það
tileinki sér þetta einnig.
Flokkaðu póstinn
n Taktu þér nokkrar mínútur til
að opna, lesa og setja þau bréf
sem berast á sinn rétta stað. Hafðu
ruslafötu á þeim stað sem þú ger-
ir þetta og hentu því sem á að
henda. Gott er að hafa möppu
sem er skipt í fjögur hólf; persónu-
legt, reikningar, bæklingar og önn-
ur bréf.
Gakktu frá í eldhúsinu
n Ekki fylla vaskinn og svæðið í
kringum hann af pottum og pönn-
um og öðrum eldunaráhöldum
þegar þú eldar. Þrífðu þau um leið
og gakktu frá þeim. Það er mun
huggulegra að setjast niður við
kvöldverðarborðið þegar eldhús-
ið er snyrtilegt og auðveldara að
ganga frá eftir matinn.
Þurrkaðu upp ef þú
missir niður
n Hvort sem það er tómatsósu-
dropi í eldhúsinu eða andlits-
farðaklessa á baðherberginu þá er
alltaf auðveldara og fljótlegra að
þrífa það strax. Ekki geyma það
þar til seinna þegar það er orðið
hart.
Moppaðu eldhúsgólfið
n Þegar búið er að ganga frá í eld-
húsinu eftir kvöldmatinn er alltaf
gott að renna yfir með blautri
moppu. Þannig kemur þú í veg
fyrir bletti og að óhreinindi nái
að festa sig. Þá verða hin vikulegu
gólfþrif auðveldari.
Tölvuleikur
Einar Þór Sigurðsson
einar@dv.is
BioShock Infinite
Tegund: Fyrstu persónu skotleikur
Spilast á: PS3, PC, Xbox