Dagblaðið Vísir - DV - 22.07.2013, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 22.07.2013, Blaðsíða 2
2 Fréttir 22. júlí 2013 Mánudagur Í síðustu viku var greint frá því að samningar hefðu náðst um upp­ byggingu sextán hæða hótelturns sem ætlað er að rísa við Höfða­ torg í Reykjavík. Um er að ræða 17 þúsund fermetra byggingu og er gert ráð fyrir að þar verði 342 hótelher­ bergi og þetta verði því stærsta hótel landsins. Þriggja stjörnu að lágmarki og fær nafnið Fosshótel Reykjavík. Íslandsbanki mun að langmestu leyti sjá um fjármögnun verkefnis­ ins. Félagið Íslandshótel ehf. sem Ólafur Torfason, hótelstjóri Grand Hótels fer fyrir hópi sem mun sjá um rekstur hótelsins. Var haft eftir hon­ um í Morgunblaðinu í síðustu viku að fjárfesting Íslandshótels myndi nema um 500 milljónum króna í þessu verkefni. Verktakafyrirtækið Eykt mun sjá um byggingu hótels­ ins en ætlað er að ljúka framkvæmd­ um við það árið 2015. Höfðahótel ehf. verður síðan eigandi húsnæðis­ ins en áætlað er að heildarkostnað­ ur við þessa fjárfestingu muni nema um átta milljörðum króna en eigandi Höfðahótels er félagið HTO ehf. Eigandi Eyktar fékk 15 milljarða afskrifaða Í upphafi árs var greint frá því að Höfðatorg ehf. sem nú heitir HTO ehf. hafi fengið alls 15 milljarða króna afskrifaða af 23 milljarða króna skuldum sínum hjá Íslandsbanka. Félagið heldur utan um 19 hæða turn við Höfðatorg. Íslandsbanki tók yfir Höfðatorg í árslok 2011 í kjöl­ farið á nauðasamningsferli. Vakti það athygli þegar Pétur Guðmunds­ son, eigandi Eyktar, sem hafði misst Höfðatorg til Íslandsbanka fékk að halda nærri þriðjungshlut í hinu nýja félagi HTO ehf. sem nú ætlar sér að fara í átta milljarða króna hótel­ fjárfestingu. Pétur sat í stjórn Glitn­ is fyrir bankahrunið en félög tengd honum skulduðu Glitni 26 milljarða króna við fall bankans. Þess skal þó getið að HTO ehf., sem verður eig­ andi nýja hótelsins, er nú í söluferli hjá Íslandsbanka. Félag hótelstjórans fékk þrjá milljarða afskrifaða Félög tengd Ólafi Torfasyni, sem ætlar að sjá um rekstur Foss hótels Reykjavík í hinum óbyggða 16 hæða hótelturni við Höfðatorg, voru líka stórtæk í lántökum fyrir banka­ hrunið, líkt og félög Péturs í Eykt. Þannig má nefna að Húseignarfé­ lagið Sigtún 38 ehf. sem félag Ólafs átti helming í fékk 2,8 milljarða króna eftirgjöf af 6,1 milljarða króna skuldum sínum við Íslandsbanka árið 2011. Það félag heldur utan 14 hæða turn sem hýsir Grand Hótel. Bygging turnsins hófst árið 2005 en íbúar sem búa þar í nágrenninu voru mjög óhressir með framkvæmdirnar og töldu hæð hótelsins í engu sam­ ræmi við íbúðabyggð á þessu svæði. Minnst er á Húseignarfélagið Sigtún 38 ehf. í rannsóknarskýrslu Alþingis en Exista sem nú heitir Klakki fer með 40 prósenta hlut í fasteignafé­ laginu en Kaupgarður hf. sem er í eigu Ólafs fer með helmingshlut. Kokhraustir þrátt fyrir afskriftir Þó eignarhaldsfélag Ólafs hafi fengið nærri þrjá milljarða króna afskrifaða vegna Grand Hótel turnsins virðist hann þó hvergi banginn í hótelupp­ byggingu hérlendis. Þannig kom fram í viðtali við hann og Davíð, son hans sem er framkvæmdastjóri Ís­ landshótela, í Morgunblaðinu í síð­ ustu viku að fyrirtæki þeirra feðga hefði nýverið gengið frá kaupsamn­ ingi á lóð við hlið Grand Hótels, sem oftast er nefnd Blómavalslóðin en sú lóð var einmitt í eigu Eyktar, verk­ takafyrirtækis Péturs. Árið 2014 ætlar Íslandshótel að opna Fosshótel á Fáskrúðsfirði en um er að ræða Franska spítalann, eitt helsta kennileiti Fáskrúðsfjarðar. Þá á að stækka Fosshótel Vatnajökul, opna 80 herbergja hótel á Hnappa­ völlum í nafni Fosshótels en sú fjár­ festing mun kosta 900 milljónir króna og stækka Fosshótel á Húsavík árið 2016. Nýtt gullgrafaraæði í hótelbransanum Margir hafa lýst yfir áhyggjum sín­ um af því að nýtt ævintýri sé hafið á Íslandi, þar sem allir ætli að græða á hótelbransanum, líkt og á loðdýra­ ræktun og laxeldi hér áður fyrr sem síðar breytist í gróðavon í formi hlutabréfa­ og fasteignabrasks á tíma góðærisins fyrir bankahrunið. „Allir ætla að græða á hótel­ byggingum og sjálfsagt munu margir gera það, en það græða ekki all­ ir þegar gert er út á lágt gengi og lág laun. Bankarnir mega halda vel á spöðum ef öll þessi hótellán eiga að borgast til baka á réttum tíma. Ætli sé ekki rétt að fara að huga að afskrifta­ sjóði fyrir hótelfjárfestingar. Það eru nefnilega alltaf þessir ófyrirsjáanlegu forsendubrestir sem fara svo illa með fjárfestingar á Íslandi,“ sagði Andri Geir Arinbjarnarson, verkfræðingur í pistli á bloggi sínu á Eyjunni nú fyr­ ir helgi. Íslandsbanki virðist þó ekki bang­ inn þó forveri hans Glitnir hafi far­ ið illa út úr lánum sínum til félaga Péturs í Eykt og Ólafs, kenndan við Grand Hótel sem veitt voru á tíma góðærisins. Alls hefur Íslandsbanki þurft að afskrifa að minnsta kosti 18 milljarða króna eftir bankahrunið AfskriftAkóngAr byggjA hótelturn við höfðAtorg n Félag tengt Ólafi Torfasyni, hótelstjóra Grand Hótels fékk 3 milljarða afskrifaða Annas Sigmundsson blaðamaður skrifar annas@dv.is Höfðatorg ehf Nú HTO ehf fékk 15 milljarða afskrifaða hjá Íslandsbanka. Allt á fullt þrátt fyrir afskriftir Ólafur Torfason, eigandi Íslandshótela hyggst reka stærsta hótel landsins við Höfðatorg sem að mestu verður fjármagnað af Íslandsbanka sem þurfti að afskrifa nærri þrjá milljarða króna hjá eignarhaldsfélagi tengdu Ólafi. Hvalkjöti skilað Aðfaranótt sunnudags kom til hafnar í Reykjavík fraktskip með 130 tonn af hvalkjöti sem ekki tókst að koma á markað í Japan. 35 full­ trúar frá Alþjóðadýraverndunar­ sjóðnum sigldu til móts við skipið og fylgdu því í höfn, en sjóðurinn vill að hvalveiðum við Íslands­ strendur verði hætt og vildi vekja athygli á því að kjötið fari til spillis. Skipið sem upprunalega átti að flytja kjötið til Japans var stopp­ að í Hamborg í Þýskalandi þar sem athugasemd var gerð við skráningu þess. Þegar flutningurinn hafði loks verið samþykktur var það um sein­ an því skipið var þegar farið úr höfn. Í kjölfarið ákvað Samskip að taka farminn ekki alla leið, heldur koma með hann aftur til Íslands og hafa nú ákveðið að hætta alfarið flutn­ ingi á langreyðakjöti. Ekki er vitað hvað verður um hvalkjötið sem bíð­ ur nú uppskipunar í Sundahöfn. Sameining HÍ og HR hag- stæðust Kristín Ingólfsdóttir, rektor Há­ skóla Íslands, segir að samein­ ing Háskóla Íslands og Háskólans í Reykjavík myndi skila mestum sparnaði fyrir íslenska ríkið. Sam­ eining minni háskóla við til dæmis Háskóla Íslands myndi skili fag­ legum ávinningi en fjárhagslegur ávinningur yrði aftur á móti tak­ markaður. Í dag eru starfræktir sjö háskól­ ar hér á landi og hefur staða þeirra verið mikið í umræðunni undan­ farin misseri. Illugi Gunnarsson, menntamálaráðherra, hefur til að mynda sagt að búast megi við sameiningu einhverra háskóla­ stofnana á næstu árum, helst á fyrri hluta þessa kjörtímabils. Nafnasam- keppni um varnargarða Bæjarráð Bolungarvíkurkaupstað­ ar efnir nú til nafnasamkeppni um nafn á snjóflóðavarnargarðana tvo í Traðarhyrnu. Byggingu varnar­ garðanna lýkur senn, en þeir hafa verið í byggingu síðan árið 2006 og segir í tilkynningu bæjarráðs að þá vanti nafn til að hægt sé að vígja þá formlega. Verðlaun verða veitt fyrir bestu tillöguna, en sigurvegarinn hlýtur Gullkort í íþróttahús og sundlaug Bolungarvíkur að verðmæti 52.400 krónur. Hægt er að senda inn til­ lögur til 26. júlí næstkomandi, en nánari upplýsingar má finna á vef­ síðu Bolungarvíkurkaupstaðar.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.