Dagblaðið Vísir - DV - 22.07.2013, Qupperneq 3
Fréttir 3Mánudagur 22. júlí 2013
Nálgast heimsmetið
n Auður djúpúðga farin til Færeyja
Í
slendingarnir fjórir sem hyggj-
ast setja heimsmet með því að
róa Auði djúpúðgu, sérstökum
úthafsróðrarbát, frá Noregi til Ís-
lands, lögðu af stað frá Orkneyjum
til Færeyja á laugardagsmorgun, en
bein vegalengd þar á milli eru 190
sjómílur. Þeir hafa dvalist á Orkn-
eyjum í rúman mánuð og beðið eft-
ir hagstæðu veðri en gátu loks lagt af
stað um helgina. Færeyjar verða ann-
ar áfangastaður áhafnarinnar sem
hyggst landa í Porkeri á Suðurey.
Áhöfnin lagði af stað þann 17. maí
síðast liðinn frá Kristiansand í Noregi
og kom til Orkneyja mánuði síðar, á
þjóðhátíðardegi okkar Íslendinga.
Hana skipa þeir Einar Örn Sigur-
dórsson, Eyþór Eðvarðsson, Kjartan
Jakob Hauksson og Svanur Wilcox.
Af persónulegum ástæðum mun
Einar þó ekki halda förinni áfram til
Færeyja og mun Hálfdán Freyr Örn-
ólfsson leysa hann af. Hálfdán er
sjómaður og nemi í Stýrimannaskól-
anum. Hann tók þátt í Járnkarlinum
árið 2010 og var í boðsundssveit sem
synti yfir Ermarsundið árið 2012.
Takist ofurhugunum að róa frá
Noregi til Íslands komast þeir í
heimsmetabók Guinness, en leiðin
sem þeir hyggjast róa er um tvö þús-
und kílómetrar í beinni línu og hef-
ur aldrei verið róin áður svo vitað sé.
Markmið áhafnarinnar er þó ekki
eingöngu að setja heimsmet, heldur
einnig að draga fram þau sögulegu at-
riði sem tengja saman þjóðir Norður-
Atlantshafsins. Saga Auðar djúpúðgu,
sem báturinn er nefndur eftir, tengir
einmitt saman allt svæðið sem áhöfn-
in hyggst róa um. horn@dv.is
Óskar Bergsson
vill koma aftur
Þ
að eru margir sem hafa
komið að máli við mig
og skorað á mig að fara
í fyrsta sætið hjá Fram-
sóknarflokknum í Reykja-
vík,“ segir Óskar Bergsson, fyrr-
verandi borgarfulltrúi og forseti
borgarstjórnar. Hann segist hins
vegar ekki hafa ákveðið hvort hann
taki slaginn. Framsóknarflokkurinn
stefnir ótrauður á framboð í borgar-
stjórnarkosningum í Reykjavík á
næsta ári, búið er koma á laggirnar
sérstöku ráði innan flokksins undir
forystu Þuríðar Bernódusdóttur
sem á að sjá um framboðsmálin í
borginni fyrir kosningarnar næsta
vor.
Gamlar væringar
Frá því það slitnaði upp úr samstarfi
Reykjavíkurlistans hefur mikið
gengið á hjá Framsóknarflokknum
í Reykjavík. Björn Ingi Hrafnsson
vann í prófkjöri og skipaði fyrsta
sætið á lista flokksins 2006, þá varð
Anna Kristinsdóttir í öðru sæti og
Óskar Bergsson í því þriðja. Anna
ákvað að hætta vegna óánægju
með niðurstöðu prófkjörsins og þá
færðist Óskar upp í annað sætið.
Björn Ingi settist í borgarstjórn en
ákvað að hætta í kjölfar frétta af
umdeildum fatakaupum hans og
REI-málsins. Óskar varð þá borgar-
fulltrúi flokksins og myndaði á end-
anum meirihluta með Sjálfstæðis-
flokknum í borginni. Aftur var
haldið prófkjör 2010 og þá urðu
mikil átök. Tveir sóttust eftir fyrsta
sætinu, Einar Skúlason og Óskar.
Óskar hafði á kjörtímabilinu verið
gagnrýndur fyrir spillingarmál. Því
var haldið fram að byggingarfélagið
Eykt hefði verið einn helsti styrktar-
aðili Óskars í prófkjörinu 2006 en
Óskar starfaði sem byggingarstjóri
hjá Eykt í upphafi tíunda áratugar
síðustu aldar. Því var haldið fram
að Eykt hefði notið tengsla sinna
við Óskar og Framsóknarflokk-
inn við úthlutun lóða og verkefna
á vegum borgarinnar. Óskar tap-
aði fyrir Einari og hætti í kjölfarið
í borgar málapóltíkinni. Í öðru sæti
varð Guðrún Valdimarsdóttir en
hún ákvað að segja sig af lista vegna
þess að fyrirtæki sem var að hluta til
í eigu eiginmanns hennar kom við
sögu í skýrslu Rannsóknarnefnd-
ar Alþingis. Valgerður Sveinsdóttir
fór þá upp á annað sætið og í þriðja
sætið skipaði Þuríður Sveinsdótt-
ir. Fylgi framsóknarmanna náði
ekki þremur prósentum í síðustu
borgar stjórnarkosningum, staða
flokksins í borginni hefur líklega
aldrei verið jafn slæm og þá.
Einar hættur
Einar Skúlason, efsti maður á lista
frá því í síðustu kosningum, sagði í
samtali við DV að hann væri hættur.
„Ég sagði mig úr Framsóknar-
flokknum fyrir tveimur árum,“
sagði hann. Valgerður Sveinsdótt-
ir sem skipaði annað sætið sagðist
ekki geta tjáð sig um hvort að hún
hefði áhuga á að blanda sér í bar-
áttu um toppsætið. Þuríður Bern-
ódusdóttir sem skipaði þriðja sætið
er nú orðinn formaður borgarmála-
ráðs Framsóknarflokksins. Hún
vildi lítið tjá sig um framtíðaráætl-
anir sínar. „Það verður hafist handa
strax eftir verslunarmannahelgi við
að skoða hvernig listinn kemur til
með að líta út fyrir næstu borgar-
stjórnarkosningar,“ segir hún.
Það verður á brattann að sækja
fyrir Framsóknarflokkinn fyrir
næstu kosningar. Þar sem hann
hefur ekki átt fulltrúa í borgar-
stjórn hefur hann heldur ekki átt
aðild að neinum nefndum borgar-
innar. Flokkurinn hefur því ekki
verið í umræðunni um borgar-
mál þetta kjörtímabil. Stjórnmála-
fræðingur sem DV ræddi við sagði
að það gæti komið flokknum til
góða að hafa verið í fríi í fjögur ár
í borginni. Hann gæti, ef menn
héldu rétt á spöðunum, komið inn
með nýja og ferska rödd í borgar-
málaumræðuna. Flokkurinn hefði
verið í umræðunni á síðasta kjör-
tímabili vegna ýmissa spillingar-
mála og það væri kannski farið að
fyrna yfir þau. n
n Segir marga hafa komið að máli við sig n Tíðinda að vænta fljótlega
„Þar sem hann hef-
ur ekki átt fulltrúa
í borgarstjórn hefur hann
heldur ekki átt aðild að
neinum nefndum borgar-
innar.
Hyggur á endurkomu
Óskar Bergsson tapaði
fyrir Einari Skúlasyni í
prófkjöri hjá Framsóknar-
flokknum fyrir síðustu
borgarstjórnarkosningar.
Óskar segir að margir hafi
komið að máli við sig og
skorað á sig í framboð
fyrir kosningarnar næsta
vor. Flokkurinn beið
afhroð í borginni í síðustu
kosningum.
Jóhanna Margrét Einarsdóttir
blaðamaður skrifar johanna@dv.is
hjá eignarhaldsfélögum sem tengj-
ast þessum tveimur mönnum sem
nú eru að hefja nýtt ævintýri með
byggingu stærsta hótels landsins
við Höfðatorg.
„Jú, að sjálfsögðu veltir mað-
ur ýmsu fyrir sér og vill ekki fara of
geyst. En það er ljóst að þörfin er
fyrir hendi,“ sögðu Ólafur og Davíð
sonur hans, aðspurðir um það í
samtali við Morgunblaðið í síðustu
viku, hvort hótelbransinn hérlend-
is sé á svipaðri leið og loðdýrarækt-
un og laxeldi á árum áður.
70 milljón króna
arðgreiðsla 2011
Fyrirtækið Íslandshótel varð til
fyrir tveimur árum þegar nokkur
minni fyrirtæki í eigu Ólafs og fjöl-
skyldu gengu í gegnum fjárhags-
lega endurskipulagningu eins og
Aðalgröf hf., Hótel Reykjavík ehf.,
Fosshótel ehf., Helgaland ehf.,
Kaupgarður hf. og áðurnefnt Hús-
eignarfélagið Sigtún 38 ehf. sem
fékk nærri þrjá milljarða króna af-
skrifaða af skuldum sínum.
Íslandshótel skilaði 170 millj-
ón króna hagnaði árið 2011. Þá
borgaði Íslandshótel eina eiganda
sínum, eignarhaldsfélaginu ÓDT,
70 milljónir króna í arð vegna
rekstrar ársins 2011. ÓDT heitir í
höfuðið á Ólafi og er alfarið í hans
eigu en ÓDT skilaði sjálft 300 millj-
ón króna hagnaði árið 2011. Ólafur
hefur lengi verið viðloðandi hótel-
bransann en hann keypti rekstur
Hótels Reykjavík við Rauðarár-
stíg árið 1992 og keypti stuttu síð-
ar Holiday Inn og breytti nafni
þess í Grand Hótel. Þá heyrir Hotel
Reykjavik Centrum einnig undir
hans auk Fosshótela sem rekin eru
víða um landið. n
AfskriftAkóngAr byggjA
hótelturn við höfðAtorg
n Félag tengt Ólafi Torfasyni, hótelstjóra Grand Hótels fékk 3 milljarða afskrifaða
Ofurhugar Takist fjórmenningunum að róa frá Orkneyjum til Færeyja og þaðan til Íslands
komast þeir í heimsmetabók Guinness.