Dagblaðið Vísir - DV - 22.07.2013, Page 4
4 Fréttir 22. júlí 2013 Mánudagur
Græða á SÁÁ sjálfsölum
n Greiddu sér 2,3 milljónir í arð árið 2012
S
jálfsalar merktir SÁÁ, sem
selja nammi og smádót, eru
ekki í eigu samtakanna held
ur einkahlutafélagsins Stauks.
Staukur er í eigu þeirra Eyþórs Leifs
sonar og Guðmundar Bjarna Harðar
sonar. Samkvæmt síðasta ársreikn
ingi félagsins, samþykktum 8. ágúst
2012, er meginstarfsemi félagsins
að reka sjálfsala og annan skyldan
rekstur. Þar kemur einnig fram að
eigendurnir greiddu sér 2,3 milljónir
króna í arð út úr félaginu.
Arnþór Jónsson er formaður SÁÁ.
Fyrst þegar blaðamaður náði tali af
honum kannaðist hann lítið sem
ekkert við málið. Eftir að hafa skoðað
það staðfesti hann að samtökin hefðu
selt Stauk kassana en gefið því leyfi til
að merkja þá SÁÁ. „Við áttum þessa
kassa, en seldum þá árið 2007. Sá
sem keypti þetta átti að borga kaup
verðið til baka á 5 árum og greiða
400.000 krónur á ári til okkar. Á með
an mega kassarnir vera merktir okk
ur,“ segir Arnþór en bætir við að sá
samningur sé að renna út. Eftir það
verður Staukur að fjarlægja merk
ingarnar. Aðspurður hvers vegna
kassarnir voru seldir á sínum tíma
segir Arnþór: „Þetta var bara bölvað
vesen. Kassarnir voru alltaf að bila.
Ari Matt var framkvæmdastjóri á
þessum tíma og hann bara gafst upp
á þessu.“
„Við tókum sjálfsalana, sem SÁÁ
var búið að planta úti um allt, og styðj
um þá í staðinn,“ segir Guðmundur
Bjarni Harðarson, annar eiganda
Stauks og framkvæmdastjóri, en vill
ekki gefa upp hversu hár styrkurinn
er. Inntur svara við því hvort ekki sé
villandi að merkja sjálfsalana SÁÁ
þegar þeir eru í raun í eigu Stauks,
sem hirðir hluta ágóðans, segir Guð
mundur: „Ég held að þetta þjóni til
gangi þeirra mjög vel.“ n
baldure@dv.is
V
ið höfum alltaf þurft að
bíða eftir að fá losun;
menn eru svo „slow“,“ seg
ir Haraldur Reynir Jóns
son, útgerðarmaður og
eigandi útgerðarinnar Úthafsskipa
sem er með aðsetur á Kanarí eyjum,
um verksmiðjutogarann Gloriu sem
þurfti að bíða í tæpar þrjár vikur eft
ir löndun á frystum hestamakríl í
Angóla nú í júlí. Gloria lauk veið
um þann 1. júlí og gerði sig líklegan
til að landa í Luanda, höfuðborg
Angóla. Yfirvöld í Angóla settu þá
á þriggja mánaða veiðibann til að
vernda fiskistofnana á miðunum við
landið. „Það er komið núna þriggja
mánaða stopp – verndunarstopp.“
„Erfiðir“ segir Haraldur
DV hefur heimildir fyrir því að áhöfn
in um borð, meðal annars nokkrir
Íslendingar, væri orðin langeyg eft
ir því að landa fiskinum og að vist
irnar í togaranum væru orðnar af
skornum skammti þar sem togarinn
hefði verið „kyrrsettur“ vegna þess að
yfir völd í Angóla vildu eigna sér afl
ann í Gloriu. Hermt var að einungis
,,súkkulaði“ væri eftir af vistunum um
borð sökum þess hversu lengi hefur
þurft að bíða eftir löndun á fiskinum.
„Ef ég skil þetta rétt þá eru yfirvöld í
Angóla búin að kyrrsetja skipið vegna
þess að þeir telja sig eiga þennan afla.
Þeir eru komnir í þá stöðu að þeir
eru í vandræðum með vistir og eru
að reyna að kaupa sér hveiti og syk
ur. Þeir voru komnir í það að þeir létu
heimamenn skipta fyrir sig á fiski og
matvælum. Kannski eru þessar þjóð
ir bara farnar að vakna til meðvitund
ar um að þær eigi þennan fisk,“ seg
ir heimildarmaðurinn um stöðuna á
áhöfn Gloriu.
Þetta er ekki rétt að sögn Harald
ar. „Nei, nei, nei (...) Hins vegar eru
þeir sérstakir og erfiðir,“ en hann út
skýrir ekki nánar hvað hann á við
með þessum orðum sínum.
Löndun lauk um helgina
„Þetta hefur alltaf verið svona; við
erum búnir að vera þarna síðan í vet
ur. Gloria hefur verið með nokkra
farma þarna,“ segir Haraldur sem
var áður einn af eigendum útgerðar
Sjólaskipa á Kanaríeyjum sem Sam
herji keypti árið 2007. Sú útgerð
stundaði veiðar við vesturströnd
Afríku, aðallega á hestamakríl úti
fyrir strönd Marokkó og Máritaníu.
Haraldur ákvað hins vegar að halda
áfram útgerðinni í Afríku og stofn
aði Úthafsskip sem rekur tvo verk
smiðjutogara þar, Gloriu og Victoriu.
Haraldur segir að þó að biðin
eftir lönduninni hafi verið löng
þá hafi uppskipuninni lokið um
helgina. „Já, þeir eru að klára los
un núna í nótt,“ sagði Haraldur á
laugardagseftirmiðdaginn. „Íslend
ingar vilja alltaf fá að losa skipin
strax og halda áfram en þarna þarf
að bíða eftir losun.“
Greiða beint til yfirvalda
DV fjallaði ítarlega um fiskveiðar
íslenskra útgerða í VesturAfríku á
síðasta ári. Þar kom meðal annars
fram að um þriðjungur af tekjum
Samherja síðastliðin ár sé tilkominn
vegna veiðanna við strönd Vestur
Afríku. Tekjurnar og hagnaðurinn
af fiskveiðunum skilar sér því ekki
til viðkomandi Afríkuríkja nema
að litlu leyti í gegnum veiðigjöldin
sem Samherji greiðir til þarlendra
yfirvalda. Afríkuútgerð Samherja
var því mjög arðbær. Útgerð Sam
herja taldi sjö verksmiðjutogara en
akureyska útgerðin seldi útgerðina
til rússneskrar útgerðar, Murmans
Troll Fleet, fyrir skömmu.
Aðspurður um hvernig gjald
töku yfirvalda í Angóla á fiskveiði
réttindum sé háttað segir Harald
ur að erlendar útgerðir greiði fyrir
hvert veitt tonn. „Það er borgað fyr
ir veiðileyfi beint til ráðuneytisins.
Það er bara borgað fyrir hvert tonn.
Þannig er það víðast hvar þarna nið
ur frá,“ segir Haraldur.
Aðspurður um hvort ekki sé
greitt eitt veiðigjald fyrir ótakmark
aðar veiðar í einhverjum af löndum
VesturAfríku þar sem Íslendingar
veiða segir Haraldur að þetta hafi
breyst nokkuð síðast liðin ár. „Þetta
hefur breyst nokkuð síðast liðin ár.
Það eru flestir sem eru bara með
ákveðið gjald fyrir hvert tonn.“
Skilyrði um sölu innanlands
Haraldur segir að yfirvöld í Angóla
setji skilyrði um það að erlendar út
gerðir landi fiskinum, sem veiddur er
á miðunum við landið, þar í landi og
að fiskurinn skili sér á markað innan
lands. „Aflinn fer á heimamarkað.
Það er skilyrði frá stjórnvöldum.
Hann er ekki til útflutnings.“
Aðspurður um hvernig útgerðin
hans gangi í Afríku segir Haraldur að
hann vilji ekki ræða það í smáatrið
um. „Ætli maður tjái sig nokkuð um
það. Það er allur gangur á þessu.“ n
Flugslys í
Keflavík
Á sunnudagsmorgun brotlenti flug
vél af gerðinni Sukhoi Superjet100
á Keflavíkurflugvelli. Hjólabúnaður
vélarinnar opnaðist ekki og lenti
flugvélin því án hans og rann út af
brautinni. Fimm manns voru um
borð í vélinni sem var í æfingaflugi.
Fjórir sluppu ómeiddir en einn
var fluttur á Heilbrigðisstofnun
Suðurnesja með áverka á fæti.
Rannsóknarnefnd Samgöngumála
og lögreglan á Suðurnesjum vinn
ur að rannsókn málsins en ekki er
vitað hvað olli slysinu. Umrædd
flugvél hefur verið síðast liðinn
mánuð við tilrauna og æfingaflug
á Keflavíkurflugvelli á vegum fram
leiðanda vélarinnar. MBL.is greindi
frá því að áður hefði hjólabúnaður í
vélum af þessu tagi bilað.
Ölvaður skip-
stjóri færður
til hafnar
„Snemma í morgun vöknuðu
grunsemdir um að skipstjóri fiski
báts á vestfjarðamiðum væri ölv
aður en skipið var þá statt út af
Ísafjarðardjúpi,“ sagði í tilkynn
ingu frá Landhelgisgæslunni en
atvikið átti sér stað á laugardag.
Þyrla Landhelgisgæslunnar,
sem verið var að búa í eftirlitsflug
hélt þegar á staðinn auk þess sem
nærstatt varðskip var sent áleiðis
á vettvang.
Í tilkynningunni kemur fram
að stýrimaður þyrlunnar hafi far
ið um borð í bátinn ásamt lög
reglu og reyndist grunurinn á rök
um reistur. Að auki voru skráðir
áhafnarmeðlimir ekki um borð.
Stýrimaður þyrlunnar tók yfir
stjórn bátsins og sigldi honum til
Bolungarvíkur.
Um það leyti sem komið var
með bátinn til Bolungarvíkur var
þyrlan kölluð að slysi sem var í
Skagafirði um hádegisbil.
Beið í 3 vikur eftir
löndun í Angóla
n Íslenski verksmiðjutogarinn Gloria hefur verið að veiða við Angóla
„Hins
vegar
eru þeir sér-
stakir og erfiðir
Ingi Freyr Vilhjálmsson
fréttastjóri skrifar ingi@dv.is
Heldur áfram með útgerð Haraldur í Sjólaskipum heldur áfram rekstri útgerðar í Vestur-Afríku og á meðal annars verksmiðjutogarann Gloriu.
Sjálfsalinn Sjálfsalinn er merktur SÁÁ en
er í eigu einkahlutafélagsins Stauks. Félagið
greiddi rúmlega tvær milljónir í arð til eigenda
sinna samkvæmt síðasta ársreikningi.