Dagblaðið Vísir - DV - 22.07.2013, Síða 10
10 Fréttir 22. júlí 2013 Mánudagur
S
tjórn bandaríska túnfiskfyrir
tækisins Umami ákvað að
reka framkvæmdastjóra fyrir
tækisins, Óla Val Steindórs
son, í lok síðasta árs eftir að
fyrirtæki í hans eigu gat ekki borgað
18 milljónir dollara fyrir túnfisk sem
það hafði keypt af fyrirtækinu. Óli
Valur hafði ákveðið að láta fyrirtæki
sitt, Atlantis Group, vera millilið í við
skiptum Umamis og kaupenda tún
fisksins í Japan. Stjórn Umamis vissi
ekki af þessum viðskiptum fyrr en eft
ir að þau voru um garð gengin. Svo gat
Atlantis ekki borgað Umami fyrir tún
fiskinn. ,,Hann er aðaleigandi Umami
og forstjóri fyrirtækisins og jafnframt
aðaleigandi Atlantis. Og hann selur
túnfisk til síns eigin fyrirtækis en gat
svo ekki borgað. Atlantis setti að veði
hlutabréf í Umami,“ segir heimildar
maður DV en Atlantis Group átti rúm
sextíu prósent í Umami.
Bæði Óli Valur Steindórsson og
Atlantis Group eru gjaldþrota í dag
og er bú þeirra í gjaldþrotameð
ferð. Einstaklingsgjaldþrot Óla Vals
er eitt stærsta gjaldþrot einstaklings
hér á landi: Á milli þremur og fjórum
milljörðum króna var lýst í bú hans.
Kröfurnar í bú Atlantis Group nema
einnig milljörðum króna.
Umami rekur túnfiskeldi í Mexíkó
og Króatíu og er um að ræða stærstu
slíku starfsemi í heimi. Um 300
starfsmenn vinna hjá Umami og
er hlutdeild þess á bláuggatúnfisk
markaðnum um 20 prósent á heims
vísu. Fyrirtækið er skráð á markað í
Bandaríkjunum og er heildarvelta
þess um 80 milljónir dollara, nærri
tíu milljarðar króna. Allur túnfisk
urinn sem Umami framleiðir fer á
markað í Japan þar sem hann er seld
ur sem sashimi.
Hætti snögglega
Fjallað hefur verið um stöðu
Umamis í íslenskum fjölmiðlum á
liðnum dögum í kjölfarið á grein í
norsku blaði um starfsemi félags
ins. Í þeirri umfjöllun hefur kom
ið fram að Óli Valur, sem forstjóri og
stjórnar formaður Umami, hafi hætt
snögglega hjá fyrirtækinu en ekki var
sagt frá því af hverju honum var ýtt
út úr bandaríska félaginu. Ástæðan
mun hins vegar hafa verið þessi: Við
skipti Óla Vals við fyrirtæki sem var
í hans persónulegu eigu og hélt utan
um rúmlega 60 prósenta hlut hans í
Umami.
Á vefsíðu bandaríska fjármála
eftirlitsins er að finna gögn um starf
semi félagsins þar sem þessari þróun
er lýst þó svo að einungis lítill hluti
sögunnar sé sagður þar. Þar seg
ir meðal annars, í árshlutauppgjöri
Umami fyrir seinasta ársfjórðung
2012: „Þann 8. desember 2012 lét Óli
Steindórsson, forstjóri og stjórnar
formaður Umami, af öllum störfum
sínum fyrir fyrirtækið sem og af störf
um sínum fyrir dótturfélög þess.“
Samband af „heimsku,
klúðri og óheppni“
Heimildarmaðurinn segir að ástæð
an fyrir því af hverju Atlantis gat
ekki borgað hafi meðal annars ver
ið fall japanska jensins. „Þá neyddist
stjórnin til þess að láta hann fara.
Stjórn Umamis átti bara engan ann
an kost þegar hún stóð frammi fyr
ir því að framkvæmdastjórinn væri
ekki að borga,“ segir heimildarmað
urinn. Umami er skráð á hlutabréfa
markað í Bandaríkjunum og því
liggja fyrir miklar opinberar upplýs
ingar um starfsemi félagsins. „Ég hef
enga samúð með Óla Val en mað
ur verður samt að vera sanngjarn:
Hann ætlaði sér ekki að maka krók
inn persónulega. Heldur er það
þannig að þetta var redding þar sem
Atlantis Group var með fjármögnun
til að kaupa túnfiskinn. Svo bara gekk
þetta ekki upp; hann fór bara fram úr
sjálfum sér. Þetta átti bara að vera
biðleikur hjá honum sem hefði get
að gengið upp ef japanska jenið hefði
ekki hrunið í verði,“ segir heimildar
maðurinn og bætir því við að þetta
hafi ,,verið sambland af heimsku,
klúðri og óheppni“.
Veðsetti hlutabréfin fyrir láninu
Í árshlutauppgjöri Umami segir
að Óli Valur hafi veðsett 9 milljón
ir hluta fyrir kröfunni sem Umami
átti á hendur Atlantis út af túnfiskin
um sem Umami seldi Atlantis. Orð
rétt segir í árshlutauppgjörinu: „Til
að veita veð fyrir heildarupphæðinni
sem Atlantis skuldaði okkur veitti
Atlantis fyrirtækinu veð í 9 milljón
um hluta sinna í Umami. Þar sem
Atlantis greiddi ekki skuldina á gjald
daga þann 31. júlí 2012 höfðum við
rétt á að leysa til okkur hlutabréfin... Í
desember nýttum við okkur þennan
rétt okkar og leystum til okkar 9 millj
ón hlutina...“
Í árshlutauppgjörinu er rak
ið hvernig viðskiptakrafa Umami
á hendur Atlantis hafi numið 16,9
milljónum dollara þegar hlutabréf
in í Umami voru leyst til fyrirtækis
ins. Ekki liggur fyrir hvert verðmæti
hlutabréfanna í Umami er en í árs
hlutauppgjörinu segir að fyrirtæk
ið sé að reyna að fá eins mikið upp í
kröfu sína og það getur. ,,Við leitum
allra leiða til að fá eins mikið upp í
kröfur okkar og við getum, meðal
annars með kröfugerð í þrotabú Atl
antis.“ Heimildarmaður DV segir að
um sorgarsögu sé að ræða: „Þetta er
bara sorgarsaga.“
Eins og er stendur yfir vinna hjá
Umami þar sem stjórnendur fyrir
tækisins reyna að verðmeta hluta
bréfin í fyrirtækinu sem voru yfir
tekin upp í skuld Atlantis og koma
þeim í verð. Umami var endurfjár
magnað fyrr á árinu með 65 milljón
um af nýju hlutafé frá hluthöfum og
sagði Róbert Guðfinnsson, sem á 15
prósenta hlut í félaginu, í viðtali við
DV fyrir helgi að fyrirtækið væri „á
keyrslu“ núna. n
G
jaldþrot Óla Vals Steindórs
sonar er með þeim stærri
sem sést hafa hér á landi,
en tæplega fimm millj
arða króna kröfur bárust í bú
hans. Skiptastjóri búsins er Guðni
Haralds son.
Í skýrslu skiptastjórans um
bú Óla Vals, sem dagsett er í maí,
koma fram upplýsingar um gjald
þrotið. Þar er meðal annars haft
eftir Óla Val að helsta ástæðan fyrir
háum kröfum í bú hans sé að hann
hafi verið í sjálfsskuldar ábyrgð
upp á rúmlega 3,3 milljarða króna
fyrir ástralskt útgerðarfyrirtæki,
Australian Fishing Company.
Meðal annarra sem lýsa kröfum
á hendur Óla Val eru fyrrverandi
viðskiptafélagar hans hjá Umami.
Þá segir að daginn áður en
frest ur inn til að lýsa kröfum í bú
Óla Vals hafi runnið út hafi hann
selt Landcruiserjeppa til vinar
síns vegna meints tveggja millj
óna króna láns. Um var að ræða
Landcruiser frá 2005 sem met
inn er á fjórar milljónir króna.
Skiptastjórinn sá hins vegar engar
heimildir um að þessar tvær millj
ónir hefðu borist inn á reikning Óla
Vals. Litið er á söluna sem gjafa
gerning sem gerður hafi verið til að
koma bílnum út úr búinu fyrir þrot
ið. Skiptastjórinn ætlar að láta rifta
sölunni á bílnum fyrir dómi. Orð
rétt segir í skýrslunni: „Skiptastjóri
hefur sett breytingalás á bifreiðina
í Bifreiðaskrá og hyggst fylgja riftun
eftir fáist til þess peningar frá kröf
uhöfum.“
Enn fremur segir að Óli Valur
sé ekki skráður eigandi hússins
sem hann býr í í Mosfellsbæ ásamt
konu sinni dag; hann afsalaði sér
húsinu til konunnar sinnar árið
2006 eftir að þau gerðu með sér
kaupmála.
Búið er að selja hús Óla Vals í
Bandaríkjunum, sem greint er frá
annars staðar í greininni, og feng
ust fyrir það 1,4 milljónir dala, um
talsvert lægri upphæð en sett var á
húsið.
Þrotabú Óla Vals er því nokkuð
skrautlegt og býst skiptastjórinn
við því að einungis nokkrir tugir
milljóna fáist upp í kröfurnar sem
eru upp á tæpa fimm milljarða
króna eins og áður sagði. n
Risastórt þrot
Ingi Freyr Vilhjálmsson
ritstjórnarfulltrúi skrifar ingi@dv.is
„Hann fór bara fram úr sér“
320 milljóna hús Óli Valur fjárfesti í rúmlega 750 fermetra húsi í San Diego í Bandaríkjunum. Húsið er nú í söluferli hjá skiptastjóra
þrotabús hans fyrir 320 milljónir króna. Sjö svefnherbergi eru í húsinu og sex baðherbergi.
Seldi sjálfum sér túnfisk Óli
Valur Steindórsson, fyrrverandi
aðaleigandi og framkvæmdastjóri
túnfiskeldisins Umami í Bandaríkj-
unum, var sagt upp störfum hjá
fyrirtækinu eftir að upp komst að
hann hefði selt fyrirtæki í sinni eigu
túnfisk sem félagið gat á endanum
ekki borgað. „Sambland
af heimsku,
klúðri og óheppni.
n Rekinn frá Umami eftir að fyrirtæki í hans eigu var milliliður í viðskiptum félagsins