Dagblaðið Vísir - DV - 22.07.2013, Qupperneq 13
Fréttir 13Mánudagur 22. júlí 2013
Bílaverkstæði
Varahlutaverslun
Smurstöð
Dekkjaverkstæði
Bremsur,
spindilkúlur,
stýrisendar,
o.fl., o.fl.
Allar gerðir
bætiefna fyrir
vél, drif
og gírkassa
www.bilaattan.is
Allt á einum stað
N
ý rannsókn á vegum Há-
skólans í Arizona í Banda-
ríkjunum hefur leitt í ljós
að hátíðnihljóðbylgjur úr
hefðbundnu sónartæki
kunni að hafa jákvæð áhrif á líðan
fólks. Sé bylgjunum beint að ákveðn-
um svæðum heilans geti það bætt
eða breytt líðan fólks en bundnar
eru vonir við að aðferðin geti nýst til
þess að meðhöndla kvíða og þung-
lyndi.
Sónar á heila
Hljóðbylgjurnar sem um ræðir heita
„ultrasound“ en eru jafnan kallaðar
ómun eða einfaldlega sónar á ís-
lensku. Tæknin er meðal annars nýtt
til að skoða fóstur og börn í móður-
kviði og er sennilega þekktust sem
slík.
Það er Dr. Stuart Hameroff sem fór
fyrir rannsókninni en hún er fyrsta
klíníska rannsóknin þar sem ómun
er beitt á heila. Grein um niðurstöð-
ur rannsóknarinnar birtist nýlega í
tímaritinu Brain Stimulation.
Hameroff fékk hugmyndina út frá
annarri rannsókn þar sem ómun var
beitt á heila dýra en niðurstöðurn-
ar leiddu í ljós að bylgjurnar höfðu
áhrif á líðan og hegðun.
Eins og einn martini
Hameroff stakk upp á því við sam-
starfsmann sinn í skólanum að gera
prófanir á sjúklingum með króníska
verki en samstarfsmaðurinn stakk
upp á því að prófessorinn gerði til-
raunir á sér fyrst.
Hameroff setti hefðbundið
sónartæki að höfði sér í 15 sekúnd-
ur. „Ég lagði það frá mér og hugsaði
„Jæja þetta virkar ekki,“ sagði Ha-
meroff í viðtali á SienceDaily.com.
„Síðan um mínútu seinna byrjaði
mér að líða eins og ég hefði fengið
mér einn martini.“ Hameroff segir
skapgerð sína hafa breyst og að hann
hafi orðið óvanalega léttur í lund
næstu tvo tímana. Hann gat þó ekki
útilokað að um placebo- eða gervi-
viðbrögð hafi verið að ræða vegna
væntinga sinna um að aðferðin hefði
áhrif og því ákvað hann að setja af
stað klíníska rannsókn.
Prófanir á nemendum
Þegar rannsóknarnefnd hafði ver-
ið skipuð yfir rannsókninni og sam-
þykki fengist frá stjórn háskóla-
sjúkra hússins í Arizona hófst
rann sókn þar sem aðferðin var
reynd á 31 sjúklingi með krón íska
verki. Til að tryggja óhlut drægni
vissi hvorki sjúklingurinn né lækn-
irinn hvort kveikt væri á hljóðbylgj-
unum eða ekki.
Niðurstöðurnar sýndu að líðan
sjúklinga varð betri í allt að 40 mín-
útur eftir að bylgjunum var beitt en
líðan breyttist ekki þegar þær voru
ekki í notkun. Til að mæla líðan
var notast við Visual Analog Mood
Scale, VAMS, sem oft er notað í sál-
fræðirannsóknum.
Doktorsnemar í sálfræði við há-
skólann, tóku því næst rannsókn-
ina upp og framkvæmdu tilraunir
á sjálfboðaliðum sem voru nemar
í sálfræði við skólann. Þeir komust
að því að bylgjutíðni við tvö mega-
hertz í 30 sekúndur væri líklegust til
árangurs. Niðurstöður þeirra sýndu
að fólk upplifði sig „léttara“ í skapinu
og „hamingjusamara“.
Tæki í smíðum
Frekari rannsóknir voru gerðar í
kjölfarið og nú er háskólinn kominn
í samstarf með fyrirtækinu Neuro-
tek sem staðsett er í Kísildalnum
fræga. Er verið að vinna að gerð
tækis sem hægt er að ganga með
daglega. Hameroff segir bylgjurn-
ar skaðlausar svo lengi sem þeim
sé ekki beitt á of miklum styrk og
einungis í stutta stund í einu. n
n Hátíðnibylgjur örva heilann n Tæki til daglegra nota þegar í þróun
Sónar gegn kvíða
Ásgeir Jónsson
blaðamaður skrifar asgeir@dv.is
Dr. Stuart Hameroff Sést hér með sónartæki við höfuð sér en hann er sannfærður um
góð áhrif þess.
Sónar til heilsu? Nýjar rann-
sóknir benda til að bylgjurnar geti
haft jákvæð áhrif á líðan fólks.
Hópnauðgun
í Texas
Tíu karlmenn eru sagðir hafa skipst
á að nauðga 13 ára stúlku í Texas
og hvatt hver annan áfram við
verknaðinn á meðan myndband
af árásinni var tekið upp á farsíma.
Þetta kom fram á vef Huffington
Post um helgina
Árásin átti sér stað að morgni
dags þann 29. júní síðast liðinn og
stóð yfir í nokkrar klukkustundir.
Stúlkan hafði flúið af barnaheimili
og þegið far með þremur ókunnug-
um karlmönnum.
Á myndinni hér að ofan sjást
Juan Lozano Ortega, 25 ára, og
Edgar Gerardo Guzman Perez, 26
ára, sem voru á miðvikudaginn
kærðir vegna árásarinnar. Læknar
sem skoðuðu stúlkuna greindu lög-
reglu frá því að áverkar stúlkunnar
væru í samræmi við lýsingu hennar.
Árið 2010 voru fimmtán einstak-
lingar dæmdir fyrir hópnauðgun í
Texas. Sá sem hlaut þyngsta dóm-
inn var dæmdur í 99 ára fangelsi.
„Hefði getað
verið ég“
„Trayvon Martin hefði getað ver-
ið ég fyrir 35 árum,“ sagði Barack
Obama forseti Bandaríkjanna í
utandagskrárumræðu á blaða-
mannafundi í Hvíta húsinu um
helgina. Obama sagði mikla reiði
vera í samfélagi Bandaríkjamanna
af afrískum uppruna. Obama
sagði að fáir þeldökkir karlmenn í
Bandaríkjunum hefðu ekki upplif-
að það að vera eltir í matvörubúð-
um eða að bílhurðum sé smellt í
lás þegar þeir labbi fram hjá. „Þetta
á við um mig líka. Ég hef sjálfur
upplifað þetta.“ Mikil umræða hef-
ur skapast um þessi mál eftir að
George Zimmerman var sýknaður
en hann skaut óvopnaðan ungling,
Trayvon Martin, til dauða.