Dagblaðið Vísir - DV - 22.07.2013, Side 16
16 Neytendur 22. júlí 2013 Mánudagur
Ráð til að minnka eldsneytisnotkun
n Hreinn bíll án óþarfa farangurs er neyslugrennri
E
ldsneytisverð hefur farið
hækkandi undanfarið og því
ekki úr vegi að rifja upp ráð
til að takmarka eldsneytis-
notkunina en á síðu Orkuseturs ins
má finna nokkur slík sem gott er að
hafa í huga.
Þar segir að mikilvægt sé að hafa
ávallt réttan loftþrýsting í dekkjum.
Of lítill loftþrýstingur auki viðnám
og geti aukið eldsneytiseyðsluna
um allt að 6 prósent. Ef loftþrýsting-
ur er ójafn í dekkjum geti ending
dekkja minnkað um allt að 10 pró-
sent. Ef aðeins eitt dekk hefur of lít-
inn þrýsting geti ending hjólbarð-
ans minnkað um allt að 10.000
kílómetra akstur auk þess sem
hemlunarvegalengd eykst. Athuga
skuli loftþrýsting að minnsta kosti
mánaðarlega.
Illa stillt vél auki jafnframt eyðsl-
una en vanstillt vél geti notað allt
að 50 prósenta meira eldsneyti og
mengað í samræmi við það.
Óhrein eða stífluð loftsía geti
aukið eyðslu um allt að 10 prósent
og bent er á að bifreiðar þurfi hreint
og gott loft til brennslu ekki síður en
við sjálf.
Óþarfa þyngd eykur eldsneytis-
notkun og það gildi sama um bif-
reiðar og okkur mannfólkið, aukin
byrði veldur meiri áreynslu. Því sé
gott að losa farþega- og farangurs-
rýmið við óþarfa dót. 50 kíló geti
aukið eldsneytiseyðsluna um 2 pró-
sent. Þá sé það góð hugmynd að fjar-
lægja hluti eins og aukafarangurs-
geymslu á toppnum og toppgrindur
sem ekki eru í notkun. Toppgrindur
og aukafarangursgeymsla á toppn-
um auki loftmótstöðu og því sé mik-
ilvægt að fjarlæga slíkt eftir notkun.
Að lokum segir að hin minnsta
mót staða skipti máli og jafnvel
fugla skítur á bifreið geti raunveru-
lega aukið eyðslu um brotabrot.
Bíllinn smjúgi betur í gegnum loft-
ið ef hann er hreinn og gljáandi,
skítugur bíll geti eytt allt að 7 pró-
sentum meira eldsneyti.
gunnhildur@dv.is
Algengt 255,4 kr. 250,8 kr.
Skeifan 254,7 kr. 250,3 kr.
Spöngin 254,6 kr. 250.2 kr.
Algengt 254,9 kr. 250,8 kr.
Algengt 256,4 kr. 250,5kr.
Starengi 254,7 kr. 250,3 kr.
Eldsneytisverð 21. 07.2013
Bensín Dísilolía
Geðveikar
pítsur
n Pizzan fær lofið að
þessu sinni en DV barst
þessi ábending; „Ég
vil fá að lofa staðinn fyr-
ir frábæra þjón-
ustu, geðveikar
pítsur, stuttan
biðtíma og gott
verð,“ segir hinn
ánægði viðskipta-
vinur.
Dýrt súr-
deigsbrauð
n Lastið fær Sandholt bakarí en DV
fékk eftirfarandi sent; „Mig langar
að lasta Sandholts bakarí fyr-
ir okur verð á brauðunum sínum.
Súrdeigs brauðin hjá þeim kosta
heilar 850 krónur.“
DV bar lastið undir Ásgeir Sand-
holt sem bendir á að handverks-
menn vinni sínar afurðir frá
grunni en ekki úr skyndilausnum
eins og deigi úr iðnaðarblöndu.
„Súrbrauðin þurfa mikið lengri
tíma og mikið betra hráefni. Hér
tekur það 48 klukkustundir að gera
brauðin sem eru 1 kíló að vigt.
Það þarf því að bera saman epli og
epli. Það er greinilegt að þetta verð
kemur ekki í veg fyrir að neytendur
kaupa þessi brauð því seljast upp á
hverjum degi og hægt væri að selja
tvöfalt meira en við getum fram-
leitt. Engum aukaefnum er bætt út
í brauðin og við notum besta fá-
anlega hráefni, meðal annars salt
frá Saltverki, íslenskum framleið-
anda. Meðalverð á rúnstykki úr
hvaða bakari sem er, er 200 krónur
og þau eru um 60 grömm að þyngd
meðaltali. Það gerir 1.200 krónur á
kílóið fyrir iðnaðarbakað rúnstykki
og ekki er talað um okur. Súrdeigs-
brauð, handverks-
brauð og samsvar-
andi kosta 2.000
krónur í Danmörku
og í Frakklandi er
Pain Poilâne, sem
er fyllilega sam-
bærilegt brauðun-
um frá Sandholt, á 8,85 €
fyrir 1,5 kg, sem sagt 1.450
krónur eða 970 krónur á
kílóið.“
Lof og last
Sendið lof eða last á neytendur@dv.is
Þ
ú sparar þér rúmar 360.000
á ári ef þú velur smábíl
frekar en jeppa auk þess
sem bifreiðagjöldin eru
58.000 krónum lægri. Þetta
eru niðurstöður könnunar sem DV
gerði á eldsneytiseyðslu á nokkrum
stærðum bíla.
Reiknivél orkuseturs
Stuðst var við reiknivél Orkuseturs-
ins en þar er hægt að bera saman
eldsneytisnotkun fjölmargra bíla-
tegunda. Valdar voru fjórar tegundir
bíla, smábíll, meðalbíll, jepplingur
og jeppi, sem settar voru í reiknivél-
ina sem reiknaði út eyðslu, kostn-
að og bifreiðagjöld þeirra. Þá var
miðað við eldsneytisverð í dag eða
256 krónur og að bílaeigandinn aki
15.000 kílómetra á ári.
Greið rúmlega hálfa milljón
Kom í ljós að miklu munar þegar
kemur að eyðslu þessara bíla og þeir
sem aka um á stórum bílum borga
hundruðum þúsunda meira i elds-
neyti á ári hverju. Árleg eyðsla á
KIA Picanto eru 630 lítrar af elds-
neyti sem kosta 160.725 krónur
og af honum eru greiddar 10.000
krónur í bifreiðagjöld. Stærsti bíll-
inn í könnuninni er Ford Explorer
sem eyðir 2.070 lítrum á ári en þeir
kosta 528.098 krónur sé miðað við
að lítrinn haldist í 256 krónum. Af
slíkum bíl eru greiddar 68.560 krón-
ur í bifreiðagjöld. Eins má benda á
að fyrir utan að sá minni er meira
en þrefalt ódýrari í rekstri þá er CO
2
útblásturinn mun minni og því um-
hverfisvænna að aka slíkum bíl.
eldsneyti dýrt í dag
Ef þessar upplýsingar eru settar í
samhengi við vegalengdir á Íslandi þá
sést að KIA Picanto kemst frá Reykja-
vík til Akureyrar fyrir 3.814 krónur
en sá sem keyrir Honda Civic þarf
að kaupa eldsneyti fyrir rúmar 5.000
krónur. Ökumaður KIA Sportage
greiðir 6.000 krónur fyrir eldsneytið
en sá sem ekur Ford Explorer þarf að
greiða tæplega 12.000 krónur til að
komast sömu vegalengd.
Þetta er því eitthvað sem fólk í
bílahugleiðingum ætti að hafa í huga
þegar kemur að því að velja nýjan bíl
því eldsneytisverð í dag er með því
hæsta sem það hefur nokkurn tíma
verið.
Að lokum má benda á að fyrir mis-
muninn geta hjón dvalið í 9 daga á 4
stjörnu hóteli á Spáni í lok sumars.n
n Jeppaeigendur eyða 370.000 krónum meira í eldsneyti á ári
Dýr dropinn
Það er orðið ansi dýrt að setja
eldsneyti á bílinn. MynD: eyþóR ÁRnason
munar hundruð
þúsundum króna
Gunnhildur Steinarsdóttir
blaðamaður skrifar gunnhildur@dv.is
Munur á eldsneytiskostnaði
Bílategund eldsneytiseyðsla eldsneytiskostnaður Co2 útblástur Bifreiðagjöld
KIA Picanto 630 L 160.725 kr. 1.485 kg 10.000 kr.
Honda Civic 885 L 225.781 kr. 2.025 kg 13.360 kr.
KIA Sportage 1.020 L 260.222 kr. 2.370 kg 18.880 kr.
Ford Explorer 2.070 L 528.098 kr. 5.475 kg 68.560 kr.
Svo langt komast þeir á lítranum
innanbæjarakstur Blandaður akstur Utanbæjarakstur Frá Rvk til ak
smábíll 19,6 km 23,8 km 26,3 km 3.814 kr.
(KIA Picanto)
Meðalbíll 13,6 km 16,9 km 20,0 km 5.030 kr.
(Honda Civic)
Jepplingur 12,1 km 14,7 km 16,6 km 6.031 kr.
(KIA Sportage)
Jeppi 6,3 km 7,2 km 8,5 km 11.744 kr.
(Ford Explorer)
eldsneyti Lítrinn
er á 256 krónur.
smábílar Komast
13,3 km lengra á
lítranum en jeppar.