Dagblaðið Vísir - DV - 22.07.2013, Side 19
Sport 19Mánudagur 22. júlí 2013
Eins og skrattinn úr sauðarleggnum
n Fátt benti til að Phil Mickelson ynni sigur á Opna breska í golfi
Þ
ó golf virðist mörgum ró-
legheitasport geta aldeilis
orðið tíðindi í þeirri íþrótt
með skömmum fyrirvara.
Fátt benti til að Bandaríkjamað-
urinn Phil Mickelson ætti mikla
möguleika að standa uppi sem
sigur vegari þegar leikur var hálfn-
aður á lokadegi Opna breska meist-
aramótsins. Það gerði hann samt og
tryggði sér sinn fjórða sigur á stór-
móti í golfi.
Opna breska mótið er elsta
og virtasta stórmótið í golfinu og
undanfarin ár hefur lokadagurinn
oftar en ekki verið æsispennandi
eins og raunin var í gær. Þegar
dagurinn hófst var heimamaður-
inn Lee Westwood með tveggja
högga forskot á Tiger Woods sem
var annar og þriggja högga for-
skot á Phil Mickelson. Margir vildu
sjá Westwood sigra en hann hefur
aldrei unnið á stórmóti og er einn af
fáum stjörnum í íþróttinni sem enn
hefur ekki hampað einum slíkum.
Mickelson byrjaði ekki með nein-
um stæl heldur paraði fyrstu fjórar
meðan Ian Poulter og Henrik Sten-
son virtust í miklu stuði og Stenson
fékk strax tvo fugla á fyrstu þremur
brautunum. Poulter var valtur til að
byrja með en á 9. braut sökkti hann
einum erni og svo þremur fuglum í
röð. Hvorugur átti þó í Phil Mickel-
son þegar upp var staðið en Banda-
ríkjamaðurinn setti tvo fugla á fyrri
níu og eina fjóra á seinni níu til að
tryggja sér titilinn á þremur undir
pari. n
Uppgjör Suarez
Luis Suarez kom til liðs við fé-
laga sína í Liverpool á æfingaferð
liðsins í Ástralíu í gærdag og gekk
beint á fund við þjálfara liðsins
en það er í fyrsta skiptið sem þeir
ræðast við eftir að Suarez tilkynnti
löngun sína til að fara frá liðinu
fyrr í sumar. Vakti sú yfirlýsing
hörð viðbrögð Rodgers þjálf-
ara sem hefur ítrekað sagt að Su-
arez fari ekki neitt. Það er þó lítið
hægt að gera við leikmann sem
ekki vill spila, annað en selja og
mörg félagslið eru sögð reiðubú-
in að greiða vel fyrir sóknarmann-
inn. Arsene Wenger hjá Arsenal
er sagður mjög áhugasamur og
þó forráðamenn Real Madrid hafi
neitað áhuga fyrr í sumar greina
spænskir miðlar frá því að Suarez
komi til greina, fái hann sölu.
Ronaldo kyrr
í Madríd
Carlo Ancelotti, stjóri Real
Madrid, segist fullviss að Cristiano
Ronaldo verði áfram í herbúðum
liðsins og framlengi samning sinn
fljótlega til næstu ára. Ronaldo
hefur neitað að skrifa undir samn-
ing sem honum var boðinn í vor
og hefur enn ekki staðfest neitt
um framtíð sína en stjórn Real vill
auðvitað tryggja sér kappann til
frambúðar enda leikmaður sem
enginn vill missa til andstæðinga.
Ancelotti var einmitt stjóri þess
liðs sem hefur haft hvað mestan
áhuga á Ronaldo og næga fjár-
muni til að bjóða ef hann væri fal-
ur. Eigandi PSG hefur opinberlega
sagst vilja kaupa Portúgalann og
peningar séu þar engin fyrirstaða.
Ná Messi og
Neymar saman?
Töluvert er um það rætt hvernig
þeim gangi að spila saman, stór-
stjörnum Barcelóna, Neymar og
Messi og fjöldi spekinga lagt lóð
sín á vogarskálarnar í þeirri um-
ræðu. Sérstaka athygli hafa vakið
ummæli Frank de Boer, þjálf-
ara Ajax og fyrrum leikmanns
Barcelóna, að hann sjái stjörnurn-
ar tvær ekki ná saman inni á vell-
inum. Þvert á móti séu egó beggja
svo stór að það endi með ósköp-
um. Annar frægur Hollending-
ur, Johan Cruyff, er á öndverðri
skoðun og segir báða leikmenn-
ina atvinnumenn sem vilji sigra
fremur en nokkuð annað og báðir
viti að sigur í fótbolta vinnst ekki
á einstaklingnum heldur á liðs-
heildinni.
Lokastaðan á
Opna breska
1. Phil Mickelson -3
2. Henrik Stenson PAR
3. Ian Poulter +1
4. Adam Scott +1
5. Lee Westwood +1
6. Hideki Matsuyama +2
7. Zach Johnson +2
8. Tiger Woods +2
9. Francesco Molinari +3
10. Hunter Mahan +3
Meistarinn 2013
Mickelson kampakát-
ur með titilinn en í síð-
ustu viku sigraði hann
líka Opna skoska
meistaramótið. Góð
vika hjá karlinum.
L
eikurinn í dag [gegn Svíþjóð]
var vonbrigði en heilt yfir er
ég mjög ánægður. Við náð-
um öllum markmiðum okk-
ar sem við settum fyrir mótið
og sannarlega er hægt að byggja á
þessu til framtíðar,“ segir Sigurður
Ragnar Eyjólfsson, landsliðsþjálf-
ari kvennalandsliðs Íslands, sem
tapaði í gær 4–0 fyrir heimamönn-
um í Svíþjóð í átta-liða úrslitum
Evrópumótsins í knattspyrnu.
Íslenska kvennalandsliðið mætti
þar ofjörlum sínum en úrslitin
þýða að Ísland er þar með úr leik á
mótinu. Stelpurnar geta þó sannar-
lega borið höfuðið hátt því lengra
hefur íslenskt landslið aldrei farið í
stórkeppni.
Leikurinn var helst til ójafn í
fyrri hálfleik en íslensku stelpurn-
ar fundu sig ekki vel í byrjun leiks-
ins og þær sænsku tóku öll völd
strax í byrjun. Gríðarleg pressa var
á sænsku stelpurnar fyrir leikinn
og varla laust sæti á leikvangin-
um þegar leikurinn hófst. Pressan
virðist hafa verið til góða því þær
sænsku spiluðu af ástríðu frá fyrstu
mínútu og höfðu skorað þrívegis á
rúmum tuttugu mínútum. Þá náðu
íslensku stelpurnar vopnum sín-
um aðeins á ný um tíma og batn-
aði leikur þeirra án þess þó að þær
næðu að ógna sænska markinu að
ráði. Sænsku stelpurnar héldu uppi
mikilli pressu og náðu að bæta við
einu marki í síðari hálfleik og loka-
tölur 4–0 tap.
Byggja á þessum árangri
Þó landsliðið okkar hafi lokið leik
á EM í þetta skiptið mega þær vera
stoltar af árangrinum. Ekki að-
eins komst landsliðið okkar í ann-
að skipti í röð á Evrópumót heldur
náðu stelpurnar í fyrsta sinn í stig
með jafntefli gegn Noregi og frækn-
um sigri gegn Hollandi og komust í
átta liða úrslitakeppnina. Fyrir fjór-
um árum fóru þær heim strax að
riðlakeppninni lokinni stigalaus-
ar. Það var einmitt markmiðið fyrir
mótið að komast í átta-liða úrslitin
og enginn þrætir fyrir að stelpurnar
áttu það skilið og lögðu á sig mikla
vinnu en andstæðingar liðsins á
mótinu eru allir hærra skrifað-
ir á styrkleikalista FIFA. Landsliðs-
þjálfarinn segir kannski óraunhæft
að ætla að sigra landslið Svíþjóðar
sem er það fimmta besta í heimin-
um samkvæmt ofangreindum lista
og höfðu duglegan stuðning heima-
manna á bak við sig.
Samningur þjálfarans úti
Sigurður Ragnar Eyjólfsson hefur síð-
ustu sjö árin þjálfað kvennaliðið og
komið því á kort bestu þjóða heims en
samningur hans við KSÍ er nú runninn
út. Aðspurður um framhaldið segir
Sigurður að væntanlega verði fundað
á næstunni en hvort sem hann verði
ráðinn áfram eða nýr þjálfari taki við
kvennalandsliðinu sé sannarlega hægt
að byggja á þeirri reynslu og efnivið
sem í landsliðinu er nú. Fleira er að
breytast hjá íslenska landsliðinu því
leikurinn í gær var síðasti landsleikur
Katrínar Jónsdóttur, fyrirliða liðsins,
en hún hyggst leggja skóna á hilluna.
Hún á að baki ótrúlega langan og far-
sælan feril sem nær allt aftur til ársins
1992 þegar hún lék fyrst með ung-
lingalandsliði en með aðallandsliðinu
hefur Katrín spilað 132 leiki og skorað í
þeim 21 mark. Geri aðrir betur. n
Úr leik en geta þó
borið höfuðið hátt
n Kvennalandsliðið úr leik á EM n Samningur þjálfarans útrunninn
Albert Örn Eyþórsson
blaðamaður skrifar ritsjorn@dv.is
„Við
náðum
öllum mark-
miðum okkar
sem við sett-
um fyrir mótið
Tölfræði
íslands
Ísland – Noregur 1–1
Ísland – Þýskaland 0–3
Ísland – Holland 1–0
Ísland – Svíþjóð 0–4
Leikir: 4
Sigur: 1
Jafntefli: 1
Töp: 2
Mörk skoruð: 2
Skot á mark: 10
Skot framhjá: 11
Horn: 7
Aukaspyrnur: 5
Víti: 1
Gul spjöld: 3
Sara Björk vonsvikin
Hún stóð sig frábær-
lega allt mótið eins og
stelpurnar allar í lands-
liðinu. Mikill og góður
efniviður til framtíðar.
SkjáSkOt aF veF UeFa.cOM
Sigurður Ragnar Hefur náð að byggja
upp frábært landslið.