Dagblaðið Vísir - DV - 22.07.2013, Blaðsíða 23
Menning 23Mánudagur 22. júlí 2013
Vilja að bókin blómstri
n Tunglkvöld númer II á Loftinu
S
íðasta kvöld gekk mjög vel
og bækurnar seldust upp á
tveimur tímum. Ef það verð-
ur eitthvað eftir af þessum
69 eintökum þá steypum
við því í höfnina. Falleg tala, vísun í
ýmis legt, til dæmis tungllendinguna.
Bókaforlagið Tunglið fagnar út-
gáfu tveggja nýrra bóka með upp-
lestri og útgáfuhófi á Loft Hostel í
Bankastræti í kvöld. Bækurnar heita
Veraldarsaga (mín) – aldarfarsbók
eftir Pétur Gunnarsson og Kvíða-
snillingurinn – skáldsaga í hæfilegri
lengd eftir Sverri Norland.
„Við erum lítið forlag sem tók
til starfa í júní. Við héldum fyrsta
tunglkvöldið í Hljómskálanum
og það gekk vonum framar. Hug-
myndin er að sameina bók og við-
burð. Snúa upp á þetta hefðbundna
form þar sem bók kemur út og fjar-
ar svo út í eilífðina í rykfallinni hillu
í bókabúð,“ segir Dagur Hjartarson,
einn af tunglmönnum.
Hann segir að þess vegna sé
bókin aðeins gefin út í takmörkuðu
upplagi og fáist aðeins þetta eina
kvöld.
„Aðeins eru gefin út 69 eintök
af bókunum og ef eitthvað er eft-
ir af upplaginu þá steypum við því
í höfnina. Við viljum að í stað þess
að bókin sé fáanleg í langan tíma þá
blómstri hún á einu kvöldi og spr-
ingi eins og flugeldur,“ segir Dagur.
Auk upplestursins verður boðið
upp á tónlistaratriði. Hljómsveitin
Pírapíl kemur fram og tónlistarkon-
an Jara syngur frumsamin lög.
En af hverju 69 eintök?
„Þetta er nú bara falleg tala, sem
hefur líka vísun í ýmislegt. Til dæm-
is tungllendinguna.“ n
simon@dv.is
Haraldur Jónsson
listamaður Kom fram
á síðasta tunglkvöldi.
Samfelld háslétta
sem var þá stödd á sviðinu gleymist
hins vegar seint. Eins var gaman að
heyra bandið taka „Lady (Hear Me
Tonight)“ með Modjo en uppistað-
an í því er fengin úr gömlu Chic lagi.
Vonbrigði með Get Lucky
Einu vonbrigðin voru líklega að
bandið skyldi ekki taka „Get Lucky.“
Nile hefur látið hafa eftir sér að hon-
um finnist það ekki vera „sitt lag“ og
veigri sér því að flytja það. Ekki veit
ég hvers vegna það gildir annað um
Daft Punk heldur en um Duran Dur-
an, en sú lausn að spila upptöku
af laginu á tiltölulega lágum hljóð-
styrk og hreyfa varirnar með er allt-
ént ekki góð og fyrir vikið enduðu
tónleikarnir svolítið undarlega – er
þetta búið? Verður það kannski upp-
klappslag? Svo fór ekki, en brosin á
tónleikagestunum sem streymdu út í
myrkrið lýstu upp gráa Reykjavíkur-
nóttina svo um munaði. n
Nile Rodgers í Hörpu Sló í gegn á
tónleikunum. MyNdiR bRyNJaR sNæR
F
jölskyldualbúmið er ný, þreföld
safnplata með eitthvað fyrir alla í
fjölskyldunni. Á fyrstu plötunni er
úrval nýlegra laga með flytjendum
sem þau í framsætinu er líklegust til að
dýrka og dá. Meðal þeirra má nefna
Mannakorn, Egó, Sálina hans Jóns míns,
Baggalút og Rúnar Júlíusson, Megas
og Ágústu Evu, KK og Magga Eiríks.
Á miðplötunni ráða yngri flytjendur
ríkjum og kætist þá unglingadeildin
og aðeins eldri. Flytjendur á henni eru
til dæmis Valdimar, Jónas Sigurðsson,
Dikta, Hjálmar, Friðrik Dór, Páll Óskar
og Ásgeir Trausti. Á þriðju plötunni fá
yngri börnin sinn skammt með efni
frá Friðrik Ómari, Sigríði Thorlacius,
Ávaxtakörfunni, Felix Bergssyni,
Hönsu, Benedikt búálfi, Hafdísi Huld,
Skoppu og Skrítlu, Eiríki Fjalari ásamt
öðrum. Þessi er tilvalin í ferðalagið fyrir
alla fjölskylduna. n
Nýtt fjölskyldualbúm