Dagblaðið Vísir - DV - 22.07.2013, Blaðsíða 27
Fólk 27Mánudagur 22. júlí 2013
Skemmtu sér
á Bravó
Skemmtistaðurinn Bravó var opn-
aður síðastliðinn fimmtudag og
var fjölmenni í opnunarteitinu.
Þar voru til að mynda femínistinn
Hildur Lilliendahl og Kolbeinn Ótt-
arsson Proppé, fyrrverandi blaða-
maður á Fréttablaðinu. Þau virtust
bæði skemmta sér vel og kunnu
að meta veitingarnar. Hildur gat
þó ekki notið snittanna sem boð-
ið var upp á þar sem þær innhéldu
allar kjötmeti, en hún er gallhörð
grænmetisæta. Mikil stemning
er í kringum Bravó en næstkom-
andi þriðjudag verður boðið upp
á „pöbbkviss“ undir dyggri stjórn
Jóhanns Alfreðs Kristinssonar úr
Mið-Ísland hópnum.
Sirkus safnar
fyrir tjaldi
Sirkus Íslands sló í gegn á
Volcano-sirkuslistahátíðinni sem
fór fram í Vatnsmýrinni á dögun-
um og sýndi 18 sinnum á 10 dög-
um. Var þetta í fyrsta skipti sem
sirkusinn fékk að sýna í alvöru
tjaldi, en þar sem tjöldin eru nú
öll farin af landi brott er sirkusinn
tjaldlaus á nýjan leik. Meðlimir
Sirkus Íslands hafa því brugðið á
það ráð að fara af stað með söfn-
un fyrir alvöru sirkustjaldi. Með
tjaldinu getur sirkusinn ferðast
um landið og sett upp sýningar
í öllum landshornum. Meðlim-
ir í sirkusnum eru 25 talsins, þar
af 9 sem hafa sirkuslistina að að-
alstarfi.
Söfnunin fer fram í gegnum
vefsíðuna Karoluna Fund og mun
vera stærsta hópfjármögnun Ís-
landssögunnar.
Draggkeppni
Íslands
í Hörpu
Draggkeppni Íslands verð-
ur haldin með pompi og prakt
í Eldborgarsal Hörpu þann 7.
ágúst næstkomandi, en þetta
er í sextánda skipti sem keppn-
in er haldin. Þema keppninnar í
ár er Beauty is pain (And I´m in a
lot of pain) og munu keppendur
koma til með að lenda í óvænt-
um uppákomum á kvöldin sjálfu.
Keppnisatriðin eru átta talsins en
keppendur eru ellefu. Sum atriðin
eru því dúettar. Draggkóngur og
draggdrottning síðasta árs koma
einnig fram og kveðja sína titla.
Kynnir keppninnar í ár er Diva
Jackie Dupree sem kemur beint
frá New York til að troða upp.
Jackie ku vera þekktur skemmti-
kraftur á Manhattan, en hún syng-
ur, leikur og semur texta.
„Þetta er svolítið
súrrealískt“
S
tikla úr Hollywood-kvik-
myndinni The Fifth Esta-
te, sem fjallar um uppljóstr-
unarsíðuna Wikileaks, var
birt á Youtube í síðustu
viku. Stiklan er um tvær og hálf mín-
úta á lengd og er uppfull af hasar og
dramatík. Birgitta Jónsdóttir, þing-
kona Pírata, er ein sögupersónanna
í myndinni, enda var hún tengd síð-
unni og góð vinkona Julians Assange,
upphafsmanns hennar. En það er
Benedict Cumberbatch sem fer með
hlutverk hans í myndinni.
Er skálduð persóna
„Þetta er svolítið súrrealískt því engin
af þessum senum sem ég var í voru
svona, eða með þessu fólki,“ segir
Birgitta í samtali við DV eftir að hafa
horft á stikluna. „Svona 90 prósent af
þessu er ekki raunverulegt,“ bætir hún
hlæjandi við. Hún bendir á að um sé
að ræða Hollywood-mynd en ekki
heimildamynd og fólk verði að horfa á
hana með því hugarfari.
Birgitta segir að vissulega hafi verið
mikil dramatík í kringum Wikileaks en
hún sé alltaf öðruvísi í raunveruleik-
anum heldur en á hvíta tjaldinu.
Hún er þó alls ekki ósátt við það
sem hún er búin að sjá. Bendir á að
hún sé sjálf skáld svo hún geri sér vel
grein fyrir því að raunveruleikinn er
oft vel kryddaður bæði í bókum og
kvikmyndum. „Í þessu samhengi er
ég bara skálduð persóna í þessari
mynd og lít bara á það þannig.“
Veitti ráðgjöf
Birgitta er ánægð með leikkonuna,
Clarice Van Houten, sem leikur
hana í myndinni. Þær hittust áður
en tökur hófust og Birgitta hjálpaði
henni við að gefa tóninn fyrir sögu-
persónuna. Hún veitti handrits-
höfundum og leikstjóra einnig
ráðgjöf við gerð myndarinnar til
að fá meira jafnvægi í hana. „Ég
lagði nákvæmlega enga áherslu á
sjálfa mig, ég var meira að hugsa
um heildartóninn í myndinni,“ út-
skýrir Birgitta. Hún er búin að vera
í góðu sambandi við aðstandend-
ur myndarinnar upp á síðkastið og
telur að hlustað hafi verið á sínar
ráðleggingar.
Stuðningsmenn Wikileaks
„Þau eru öll miklir stuðningsmenn
Wikileaks. Ég skrifaði einmitt Bened-
ict á ákveðnum tímapunkti þegar ég
var að fara til Bandaríkjanna. Og hann
sagði að ef það kæmi eitthvað fyrir
þetta fólk sem tengist þessari mynd
þá myndi hann gera það sem til þyrfti
þó það yrði ekki vinsælt hjá atvinnu-
rekendum sínum.“ Þá ætla hand-
ritshöfundar að vera með Birgittu
við réttarhöldin yfir Bradley Mann-
ing sem grunaður er um að hafa lek-
ið trúnaðarupplýsingum bandaríkja-
hers til Wikileaks, að hennar sögn.
„Bara gaman að þessu“
Birgitta er aðeins búin að sjá stikl-
una og getur því ekkert sagt á
þessari stundu hvað henni finnst um
myndina í heild. Hún ætlar að vera
alveg niðri á jörðinni og ekki gera
sér of miklar væntingar. „Það er bara
gaman að þessu,“ segir Birgitta sem
ætlar þó að reyna að fá að kíkja betur
á myndina áður en hún kemur í kvik-
myndahús.
The Fifth Estate er stjörnum
prýdd, en fyrir utan Benedict Cum-
berbatch og Clarice Van Houten fara
Laura Linney og Stanley Tucci með
stór hlutverk í myndinni. n
solrun@dv.is
„Svona 90 pró-
sent af þessu
er ekki raunverulegt
Skálduð persóna Birgitta segir að um 90
prósent af kvikmyndinni sé skáldskapur.
Sátt við stikl-
una Birgitta gerir
sér ekki of miklar
væntingar um The
Fifth Estate en er
sátt við stikluna.