Dagblaðið Vísir - DV - 28.01.2014, Blaðsíða 3

Dagblaðið Vísir - DV - 28.01.2014, Blaðsíða 3
Fréttir 3 Rannsóknir sýna að notkun sykurlauss Extra eykur munnvatnsframleiðslu, jafnar sýrustig, heldur tönnunum hreinum og stöðvar sýklaárásir á þær. Extra minnkar upptöku hitaeininga og dregur það úr streitu í amstri hversdagsins. Vikublað 28.–30. janúar 2014 „Ég er ekki mikill skapmaður“ n Magnús Geir Þórðarson mun stýra RÚV n Mun leggja áherslu á menningu n Spennandi verkefni framundan n Erfitt að kveðja leikhúsið strúktúr, hér er frábær starfshópur, spennandi verkefni framundan og stór hópur fastagesta. Ef það er einhvern tímann gott að taka við leikhúsi þá er gott að taka við þessu húsi með öllu því góða fólki sem hér er.“ Það sem af er degi hefur Magnús Geir verið á fullu í leikhúsinu að sinna hefðbundnum verkum þar. „Við erum með frumsýningu á föstudaginn og það er í mörg horn að líta þar. Þannig að ég hef verið á hlaupum,“ segir Magnús Geir sem segir það sérstaka tilhugs­ un að kveðja leikhúsið. „Fyrst og fremst af því að ég er svo heppinn að starfa með einstöku fólki. Þetta er samheldinn vinnustaður og ég finn fyrir stuðningi, væntumþykju og hlýju héðan úr leikhúsinu. Margir hafa sagt að þeim þyki leitt að ég sé að fara og mér þykir vænt um það. Hér er gaman og okkur hefur gengið feikilega vel og feng­ ið mikinn meðbyr. Það er skrýtið að hverfa frá því. Hins vegar held ég að það sé engum hollt að festast á sama stað. Þá er hætt við að það skapist kyrrstaða sem er ekki góð í listum. Þess vegna held ég að það sé ágætt að fara frá núna. En ég lít svo á að þetta sé tímabundið. Ég er ungur og geri mér vonir um að ég eigi aft­ urkvæmt seinna. Ég lít ekki svo á að ég sé að kveðja leikhúsið fyrir fullt og allt.“ Lærdómsrík mistök Ástríða Magnúsar Geirs fyrir leik­ húsinu hefur verið óþrjótandi, en hann hefur verið virkur í leikhús­ lífinu allt frá barnæsku og átt far­ sælum ferli að fagna. Undir hans stjórn var aðsóknarmet í Borgar­ leikhúsið slegið og sala áskriftar­ korta margfaldaðist. Áður leik­ stýrði hann Leikfélagi Akureyrar og naut þar sömu velgengni. Aðspurður hvort hann hafi aldrei stigið feilspor segir hann að jú, hann hafi vissulega gert það. „Ég hef gert ýmislegt á minni ævi og verið svo heppinn að flest hef­ ur gengið vel. Starfið í leikhús­ inu, bæði í Borgarleikhúsinu og sömuleiðis í Leikfélagi Akureyrar, hefur verið ævintýri líkast. En þegar ég var ungur að árum var ég leikhússtjóri Leikfélags Ís­ lands. Það gekk mjög vel framan af en svo hallaði undan fæti síðustu misserin. Það voru erfiðir tím­ ar og reksturinn gekk á endanum ekki eins vel og við vonuðumst til. Þannig að ég hef líka mætt mót­ læti. Það var mjög lærdómsríkt og ég bjó að þeirri reynslu þegar ég menntaði mig frekar og kom inn í stóru leikhúsin. Það er ágætt að reka sig á, því maður lærir af því. Svo er það líka þannig að þótt allt gangi vel, eins og þegar okkur gekk vel í Borgarleikhúsinu út frá öllum mælikvörðum, þá hef ég stundum setið frumsýningar og hugsað með mér að ég hefði viljað ná að taka eitthvað lengra eða gera það betur. Það er partur af listinni að þora að taka áhættu og festast ekki í örygginu.“ Mistökin eru fleiri. „Ég hef ör­ ugglega tekið húfuna af einhverri stelpu í Melaskóla þegar ég var lítill og framið einhverjar syndir. Heilt yfir hef samt ég verið svo heppinn að vera umvafinn góðu fólki sem ég hef notið þess að vinna með. Ég reyni að vera sann­ gjarn þannig að yfirleitt tekst að sigla málum þannig að allir séu sáttir og ánægðir. Ég er ekki mik­ ill skapmaður og vill frekar ná sem bestri niðurstöðu fyrir alla aðila. Það er mitt markmið. Þannig vil ég lifa lífinu.“ Áhersla á menningu Undanfarin þrjú ár hefur Magnús Geir setið í stjórn RÚV. Að öðru leyti hefur hann aldrei starfað við fjölmiðla, ólíkt fráfarandi útvarps­ stjóra sem hafði víðtæka reynslu af fjölmiðlum áður en hann tók við stjórn Ríkisútvarpsins. „Ég hef nær alla mína starfsævi unnið í menn­ ingarlífi og leikhúsi, enda hef ég verið með leikhúsbakteríuna frá því að ég var lítill drengur. Síðustu ár hef ég setið í stjórn RÚV og kynnst rekstrinum það­ an. En ég hef aldrei starfað við fjöl­ miðla og það bíður mín að fá að kynnast starfinu á gólfinu,“ seg­ ir Magnús Geir sem segir það þó ólíklegt að landsmenn muni sjá hann á skjánum að lesa fréttir, líkt og forveri hans gerði um tíma. Aðspurður hvort ekki sé hætt við því að hann muni leggja meiri áherslu á menningarhlutverk RÚV en fréttirnar svarar hann því til að RÚV hafi fjölþættu hlutverki að gegna: „Menningarhlutverkið er eitt mikilvægasta hlutverkið en ekki mikilvægara en fréttamennsk­ an eða krufning á samfélagsmál­ um. Keppikeflið er að ná fram réttri blöndu, en sannarlega mun ég sýna því mikinn áhuga á að hlúa að menningunni og leggja áherslu á að RÚV taki þátt í menningarlífi landsins.“ Í fjarbúð Að hans mati eru margir þættir mikilvægir í fari útvarpsstjóra til að hann getið orðið góður leiðtogi. „Útvarpsstjóri þarf, eins og allir stjórnendur í fyrirtækjum af þessu tagi, að geta séð stóru myndina, hafa skýra framtíðarsýn og geta fylkt fólki að baki sér. Í tilfelli RÚV þarf útvarpsstjóri einnig að geta skapað sátt á meðal þjóðarinnar. Ég vona að það takist að hlusta á hvað þjóðin vill og í sameiningu leiða Ríkisútvarpið þangað.“ Að eigin sögn er hæfileikinn til að vinna með fólki hans helsti kostur. „Ég nýt þess að vinna með fólki og skapa hópanda. Ég hef engan áhuga á að draga vagninn einn. Ég vil hafa fólk í kringum mig sem hefur skoðanir á því sem við erum að gera. Og ég reyni að nálg­ ast viðfangsefnin með jákvæðum huga.“ Hann er líka vinnuþjarkur sem vann myrkranna á milli í leikhús­ inu á unglingsárunum og hafði ekki tíma til að halda upp á þrí­ tugsafmælið vegna anna. „Það er rétt,“ segir hann hlæjandi. „En ég er að reyna að spyrna við þessu. Af því að nú á ég lítinn dreng og stóra fjölskyldu, en sonurinn Árni Gunnar er að verða eins árs. Syst­ kini hans eru þrjú, þau Arna Ýr, 16 ára, Andrea Björk, 14 ára, og Stefán, 10 ára. Þannig að ég reyni að halda eftir tíma til þess að njóta samvista við þau.“ Staða hans er hins vegar óvenju­ leg að því leyti að hann heldur tvö heimili, annars vegar hér fyrir sunnan og annað fyrir norðan, þar sem fjölskyldan er, en konan hans, Ingibjörg Ösp Stefánsdóttir, stýrir menningarhúsinu Hofi. „Það get­ ur verið flókið að vera í fjarbúð út af flugsamgöngum, en það gengur samt ótrúlega vel.“ Magnús Geir var einmitt að fljúga norður síðastliðinn föstu­ dag þegar það vakti eftirtekt að hann sat við hlið menntamála­ ráðherrans. Illugi hefur sagt að það hafi verið hrein tilviljun og „það er rétt,“ segir Magnús Geir. Faglegur stjórnandi Magnús Geir var skipaður af Sjálf­ stæðisflokknum í stjórn RÚV á sín­ um tíma en hann segir af og frá að ráðningin hafi verið pólitísk. „Ég hef aldrei starfað í pólitík og hef aldrei í mínum störfum komið ná­ lægt pólitík eða verið sakaður um slíkt. Ég hef skoðanir á þjóðmál­ um fyrir sjálfan mig og fylgist með bæði þjóðmálum og alþjóðamál­ um. En ég hef ekki starfað í póli­ tík og hef ekki áhuga á að starfa í pólitík. Svo er og svo verður,“ segir hann ákveðinn. Aðspurður hvort hann sé flokks­ bundinn segist hann ekki vita það, hann hafi einhvern tímann kosið í prófkjöri en það sé orðið langt síð­ an. Svo langt að hann muni ekki hvenær það var. Þannig að pólitískar skoðanir munu ekki hafa áhrif á störf hans? „Nei. Ég er faglegur stjórnandi og hef starfað sem síkur og kem þannig inn í Ríkisútvarpið. Með þá reynslu og ekkert annað.“ Þá hefur komið fram, meðal annars í bréfi sem hann sendi starfsfólki Borgarleikhússins, eftir að hann sendi inn umsókn um stöðuna, að hann hefði ver­ ið hvattur til þess. Aðspurður hver hvatti hann til þess segir hann að það hafi verið fjöldi fólks úr öllum áttum, „og mikið til innan úr RÚV. Mér þótti vænt um það. En á endanum var það mín ákvörðun að sækja um þetta starf. Þú tekur þá ákvörðun sjálfur út frá því sem þú telur skynsamlegt og skemmtilegt. Það heillaði mig hvað RÚV er mikilvæg stofnun sem þjóðinni þykir vænt um. Ég tel að tækifæri séu til þess að byggja RÚV upp á ný og er sannfærður um að hægt sé að skapa meiri sátt um Ríkisútvarpið. Það verður mitt verkefni,“ segir hann að lokum. n „Það voru erfiðir tímar og reksturinn gekk á endanum ekki eins vel og við vonuðumst til n Magnús Geir er Reykvíkingur að uppruna, fæddur 1973 og lauk stúdentsprófi frá MR. n Hann nam leikstjórn við The Bristol Old Vic Theatre School, meistaranámi í leik- húsfræðum frá The University of Wales og MBA-námi frá Háskólanum í Reykjavík árið 2005. n Hann hefur verið afkastamikill leikstjóri og leikstýrt fjölda leiksýninga. n Hann var leikhússtjóri Leikfélags Akureyrar frá árinu 2004 þar til hann tók við stöðu leikhússtjóra Borgarleikhússins árið 2008. n Staða útvarpsstjóra var auglýst í des- ember í kjölfar þess að Páll Magnússon lét af störfum. Alls bárust 39 umsóknir um stöðuna. n Ellefu umsækjendur sem best þóttu uppfylla hæfniskröfur voru boðaðir í viðtal. Sex voru boðaðir í framhaldsviðtal og fjórir í áframhaldandi viðtal til að kynna hugmyndir sínar um framtíðarsýn og hlutverk Ríkisútvarpsins. n Stjórn RÚV ákvað einróma að ráða Magnús Geir. Hver er maðurinn?

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.