Dagblaðið Vísir - DV - 28.01.2014, Blaðsíða 19

Dagblaðið Vísir - DV - 28.01.2014, Blaðsíða 19
Vikublað 28.–30. janúar 2014 Skrýtið 19 Nokkur atriði um tunglið n Hefur áhrif á svefn n Fjarlægist jörðina hægt n Sólarhringurinn 29 dagar E r ást í tunglinu?“ spurði tónlistarmaðurinn Geiri Sæm í samnefndu lagi sem kom út á sam- nefndri plötu árið 1988. Mannfólkið hefur ávallt verið forvitið um þennan eina fylgi- hnött jarðarinnar sem er talinn hafa myndast fyrir 4,5 millj- örðum ára þegar hnöttur á stærð við Mars rakst á jörðina skömmu eftir myndun sólkerf- isins. Um hann hafa verið rit- uð fjölmörg rit og hafa nokkrir gerst svo djarfir að stíga fæti á tunglið. Í þessari umfjöllun er að finna nokkrar skemmtilegar staðreyndir um tunglið. birgir@dv.is  tunglið hefur áhrif á svefn Gamlar þjóðsögur herma að fullt tungl hafi áhrif á skap fólks, frjósemi og ástalíf. Í fyrra birti þó líffræðingurinn Christian Cajochen rannsókn sem sýnir fram á að fólk sefur betur við kvartilaskipti tunglsins þegar það er á milli jarðar og sólar. Lengst af hefur þetta verið kallað nýtt tungl. Sam- kvæmt rannsókn Cajochen tekur hins vegar fimm mínútum lengur að festa svefn þegar tunglið er fullt.  Bara sex mánuði akandi Ef sá möguleiki væri fyrir hendi þá tæki tæplega sex mánuði að aka til tunglsins á 95 kílómetra hraða á klukkustund. Geimfarinn Fred Hoyle var sá fyrsti til að benda á að ef maður myndi aka bíl beint upp í loftið á 95 kílómetra hraða þá tæki aðeins um það bil klukkustund að komast út í geim. Tunglið er að meðaltali 348 þúsund kílómetra frá jörðu, mesta fjar- lægðin er 405 þúsund kílómetrar en minnsta 363 þúsund kílómetrar.  42 ár 42 ár eru liðin síðan maður gekk síðast á tunglinu. Apollo 17 var síðasta geimfarið sem flutti menn til tunglsins en alls höfðu 12 manns gengið á tunglinu þegar Bandaríkjamenn létu af þessum mönnuðu ferðum sínum til tunglsins.  29 og hálfan dag Sólar- hringurinn á tunglinu varir í 29 og hálfan dag að jafnaði. Með öðrum orðum, ef þú stæðir á yfirborði tunglsins tæki það 29 og hálfan dag fyrir sólina að ná heilum hring.  Fjarlægist á hraða vaxtar naglar Tunglið fjarlægist jörðina um 3,78 sentímetra á hverju ári. Það fjarlægist á sama hraða og það tekur neglur að vaxa. Á Vísindavef Háskóla Íslands kemur fram að sjávarfallakraftar valda núningi á snúningi jarðar sem dreg- ur úr hverfiþunga og hreyfiorku hennar. Orkan færist yfir á tunglið sem veldur því að það fjarlægist jörðina. Fyrir vikið lengist dagurinn á jörðinni um 15 míkrósekúndurr á ári en á Vísindavef Háskóla Íslands kemur fram að tekið sé tillit til þess í tímaútreikningum með því að bæta annað slagið við hlaupsek- úndu. Þar kemur einnig fram að að sólar- hringurinn var mun skemmri áður fyrr og tunglið nær jörðinni. Rannsóknir sýna að fyrir um 600 milljónum ára var sólarhringurinn um 22 klukkustundir, og 400 sólarhringar á árinu. Það er ekki hægt að láta staðar numið við þessar vangaveltur hér, því í fjarlægri framtíð verða sjávarfallakraftarnir búnir að hægja svo á snúningi jarðar að sólarhringurinn verður jafnlangur tungl- mánuðinum, að því er fram kemur á Vísindavef Háskóla Íslands.  Farsímarnir öflugri Farsímar í dag eru öflugri en tölvurnar sem voru notaðar til að stýra leiðangri Apollo 11-tungl- farsins árið 1969. Á leið burt Tunglið fjarlægist okkur um tæplega fjóra sentí- metra ári. Myndir ShutterStock

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.