Dagblaðið Vísir - DV - 28.01.2014, Blaðsíða 38
Vikublað 28.–30. janúar 201438 Fólk
Af sem áður var
Það eru aldeilis breyttir tímar
hjá fréttakonunni Helgu Arnar-
dóttur sem nú er í fæðingar-
orlofi. „Jæja ætli sé ekki fokið
í flest. Mín komin með mann-
brodda til að geta viðrað barnið
í hálku-úthverfinu og móðirin
ekki orðin 35 ára!! Það er af sem
áður var þegar tiplað var á hæla-
skóm upp og niður Skólavörðu-
stíginn!! (Á nóttunni),“ skrifaði
hún undir mynd af mannbrodd-
unum sem hún birti á Face-
book-síðu sinni um helgina.
Sindri Sindrason las fréttir fyrir foreldra sína í útskornum kassa sem barn
Æ
tli ég sé ekki fyrsti vara-
maður á lista eða svo,“
segir fjölmiðlamaður-
inn Sindri Sindrason
sem kemur sterkur inn
sem fréttalesari Stöðvar 2 en flestir
þekkja Sindra úr magasínþáttunum
Íslandi í dag og Heimsókn.
„Ætli ástæðan fyrir því að maður
hefur verið í þessu starfi í tæp tíu
ár sé ekki sú hversu fjölbreytt það
er. Þetta er það skemmtilega við að
vinna hjá 365; maður fær að prófa
svo margt. Ég er í Heimsókn, Ís-
landi í dag og fréttum og svo horfi ég
stundum á „pródúsentinn“ og hugsa
með mér að ég væri til í að prófa það
starf líka,“ segir Sindri sem nýtur
þess að lesa fréttir fyrir landsmenn.
„Þetta hefur verið á stefnu-
skránni lengi. Þegar ég var lítill lét
ég mömmu og pabba horfa á mig á
meðan ég las úr útskornum kassa á
meðan fréttirnar voru í gangi. Ég get
því alveg sagt að þetta hafi verið á
markmiðalistanum mínum yfir það
sem ég ætlaði að gera áður en ég yrði
35 ára. Ég las svo fréttirnar í fyrsta
skiptið einmitt á afmælisdeginum
mínum, sem var núna í júlí,“ segir
Sindri hlæjandi og bætir við að við-
brögðin hafi verið mjög góð. „Ég hef
bara fengið góð viðbrögð en ég var
búinn að æfa mig á sínum tíma en
þær æfingar voru teknar með hjálp
textavarpsins.“
Sindri segir það tvennt ólíkt að
stjórna lífsstílsþætti eins og Íslandi
í dag og að lesa fréttir. „Ég tala nú
ekki um Heimsókn en þar á allt að
vera „spontant“. Ég kynni mér við-
mælendur en svo reyni ég bara að
gleyma myndavélinni,“ segir hann
og bætir við að hann hafi fyrst lesið
fréttir í sjónvarpi árið 2005. „Þá las
ég morgunfréttirnar og var því með
smá æfingu en ég viðurkenni samt
að ég mæti tveimur tímum fyrr til að
undirbúa mig. Þá er ég búinn að vera
á vakt yfir daginn, fer heim í sturtu,
tek mig til, geri mig fínan og mæti
svo og les alla innganga yfir, helst
100 sinnum. Maður þarf að setja sig
í ákveðið hlutverk og vera alvarlegri
en gengur og gerist þótt það fari svo-
lítið eftir fréttinni. Það væri kannski
skrítið að vera of alvarlegur að segja
frá sætum pöndum,“ segir Sindri og
bætir við að Logi, Edda og Thelma
séu hans fyrirmyndir í lestrinum.
„Þau eru náttúrlega toppurinn, ég
leita mikið til þeirra og fæ frá þeim
athugasemdir út í eitt.“
Þrátt fyrir að starfsvalið hafi ekki
komið foreldrum hans eða maka
á óvart segir Sindri þau vera hans
hörðustu gagnrýnendur. „Þetta fólk
lætur mig vita ef þeim finnst eitt-
hvað mega betur fara, bæði í lestri og
öllu öðru sem ég geri. Þá fæ ég sím-
tal um leið,“ segir hann og bætir við
að hann hafi fengið mestu gagnrýn-
ina fyrir bindisvalið í upphafi ferils-
ins. „Ég er svo íhaldssamur í klæða-
vali og var með bindi sem þóttu of
breið fyrir svo lágvaxinn mann sem
rétt nær 170. Ætli það hafi ekki ver-
ið mesta gagnrýnin sem ég hef feng-
ið. Og auðvitað fékk ég mér mjórri
bindi,“ segir Sindri og hlær. n
Indíana Ása Hreinsdóttir
indiana@dv.is
„Þegar ég var lítill
lét ég mömmu
og pabba horfa á mig á
meðan ég las úr útskorn-
um kassa á meðan frétt-
irnar voru í gangi.
Æskudraumur
Sindri var ungur
farinn að æfa sig að
lesa fréttirnar fyrir
foreldra sína.
Elskar að
lesa fréttirnar
Ósátt við kaffi-
auglýsingu
Baráttukonan Hildur Lilliendahl
Viggósdóttir furðar sig á nýrri
auglýsingu frá kaffiframleiðand-
anum Gevalia sem sýnd eru í
sjónvarpinu um þessar mundir.
„Það eru GEVALIA-auglýs-
ingar í sjónvarpinu, kona og karl
að smalltalka. Í einni segir konan
að kaffi sé næsteftirsóttasta sölu-
vara heims. Nú, hver er ætli sé sú
eftirsóttasta? spyr karlinn. Ekki
sú sem þú heldur, svara kon-
an með svona kynlífsþrunginni
stríðnislegri daðursrödd. Hvað
er hún að tala um? Vændiskon-
ur? Er það svona sexí spennó
úlalla fæ smá í hann fyrirbæri?“
Jamie til
Íslands
Heimildir DV herma að tökulið
á vegum stjörnukokksins Jamie
Oliver sé statt hér á landi.
Hópurinn kom samkvæmt
heimildum til landsins seinni
partinn á mánudag og er hér
í þeim tilgangi að finna hent-
uga tökustaði fyrir stjörnukokk-
inn. Mun hann ætla að kynna
sér íslenska matargerð og kynna
sér einhverja íslenska veitinga-
staði – meðal annars úti á landi.
Ekki er þó vitað hvenær von er á
Jamie til landsins.
Dönsuðu fyrir indverska sendiherrann
Haldið upp á þjóðhátíðardag Indlands
S
jónvarpskonan, dans-
kennarinn og sirkuslista-
maðurinn Margrét Erla
Maack fór á kostum er hún
dansaði fyrir indverska
sendiherrann um helgina ásamt
danshópnum Parvati. Á sunnu-
daginn var einn af þremur þjóð-
hátíðardögum landsins og í tilefni
af því sló indverska sendiráðið á
Íslandi upp veislu á Hilton Hot-
el. Margrét stjórnaði til dæmis
Bollywod-dansi í veislunni en hún
starfar einmitt sem danskennari
í Kramhúsinu þar sem hún kenn-
ir meðal annars Bollywood-dansa
auk þess sem hún aðstoðaði við
skipulagningu veislunnar. Dans-
hópurinn Parvati heitir eftir ind-
versku frjósemisgyðjunni en í hon-
um eru, ásamt Margréti, tíu konur
sem allar æfa Bollywood-dans í
Kramhúsinu. Þá stýrði vinkona
Margrétar, Brynja Huld Óskarsdótt-
ir, boðinu og skrifar hún á Face-
book-síðu sína að viðtökurnar hafi
verið góðar.
„Okkur Margréti var boðið ásamt
helstu höfðingjum landsins. Ég
stýrði boðinu og skemmtiatriðum
á Hilton Hotel og Margrét stjórn-
aði Bollywood-dansi. Indverska
sendiherranum fannst við snilld og
gaf okkur blóm í stíl við indverska
fánann,“ skrifar hún á Facebook.
Margrét hefur haft í nógu að snú-
ast undanfarið en hún er nú dóm-
ari og spurningahöfundur í spurn-
ingaþættinum Gettu betur auk þess
sem hún starfar sem danskennari í
Kramhúsinu og er sirkuslistamaður
hjá Sirkus Íslands. n Parvati Danshópurinn lék listir sínar í veislu indverska sendiráðsins á sunnudag.