Dagblaðið Vísir - DV - 28.01.2014, Blaðsíða 21

Dagblaðið Vísir - DV - 28.01.2014, Blaðsíða 21
Umræða 21Vikublað 28.–30. janúar 2014 Ljótar gallabuxur eru alltaf mistök Hann er einn besti söngvari landsins Þetta var unaður, eins og að vera kominn heim Helgi Ómarsson ljósmyndari ræðir um karlatískuna. – DV Ásgeir Orri Ásgeirsson, í StopWaitGo, um Sverri Bergmann sem syngur Eurovision-lag eftir teymið.Einar Ágúst Víðisson var ánægður með að hafa stigið aftur á svið með Skítamóral. – Fréttablaðið Af landráðamönnum Ó trúlega margir í hópi ein- dregnustu andstæðinga alls þess, sem evrópskt er, telja við hæfi að saka þá, sem ekki eru sömu skoðun- ar, um föðurlandssvik. Kalla alla þá bæði hátt og í hljóði föður- landssvikara og þjóðníðinga, sem ekki eru þeim sammála. Öllu ljót- ari ásakanir er ekki hægt að bera fram en að viðmælandinn sé föð- urlandssvikari og þjóðníðingur. Drýgi glæpi gegn landi sínu og þjóð og vilji samlöndum sínum ekkert nema illt. Enda eru þung viðurlög í íslenskri löggjöf gegn þeim, sem slíka glæpi fremja – þ.á.m. margra ára fangelsisvist. Slíkir glæpamenn fremja ekki afbrot sín gegn einhverjum einstakling- um, ekki einu sinni gagn- vart hópum einstaklinga – heldur gagnvart allri þjóð sinni, ungum sem göml- um, fæddum sem ófædd- um. Ótal glæpamenn á götunum Nú er það svo sam- kvæmt síðustu skoðana- könnunum um Evrópu- mál að rúmlega þrír af hverjum tíu Íslendingum vilja tengjast ESB – þó enn liggi enginn aðildar- samningur fyrir. Meira en sex af hverjum tíu vilja að samningaviðræðum verði lokið og niðurstaðan síðan lögð fyrir þjóð- ina. Alla þessa einstaklinga segja þeir, sem harðastir eru í andstöð- unni, vera landráðamenn, þjóðníð- inga og föðurlandssvikara. Hvernig skyldi þeim, sem þessarar skoðun- ar eru, líða á sinni daglegu vegferð þegar þrír af hverjum tíu vegfar- endum sem þeir mæta – jafnvel sex af hverjum tíu – séu að þeirra áliti sannir að sök fyrir landráð, þjóðar- níð og föðurlandssvik? Milli þrír og sex af hverjum þeim tíu sem þeir mæta á förnum vegi ættu að sitja fangelsaðir fyrir slíka glæpi? Til allr- ar lukku hafa þeir, sem eru þessar- ar skoðunar, ekki fengið nein völd í hendur til þess að framfylgja þess- um ófrávíkjanlega dómi sínum um föðurlandssvik og landráð – þó slíkt og þvílíkt hafi nú svo sem átt sér stað í heimssögunni og geti kom- ið fyrir aftur. Á meðan svo er ekki ætti vegfarendum ekki að fækka svo neinu nemur. En mikið hlýtur að vera erfitt að þurfa að búa í samfé- lagi með öllum þessum glæpalýð; föður landssvikurum, landráða- mönnum og þjóðníðingum; sem ekki er hægt að þverfóta fyrir í dag- legri umgengni í lífinu. Hversu kvaldir hljóta þolendurnir ekki að vera á sálinni?! Tilgangslaust að rökræða Í grein í DV í liðinni viku vill Kristinn Snæland, sem hefur verið málkunn- ugur mér, eiga við mig orðastað um Evrópumál. Hann ávarpar mig og þá, sem kunna að vera mér sam- mála, með því að kalla mig og þá orðrétt: „Landráðamenn, þjóðníð- inga og föðurlandssvikara“. Hvernig myndir þú, lesandi góður, bregðast við ef einhver vildi eiga við þig orða- stað jafnframt því að segja við þig að hann teldi þig bera slíkar sakir með réttu? Að hvert eitt orð sem frá þér kæmi væri mælt af munni land- ráðamanns, þjóðníðings og föður- landssvikara? Teldir þú líklegt að einhver þau orð, sem þú létir falla, myndu gagnast í rökræðum undir slíkum formerkjum? Nú veit ég ekki þinn hug, lesandi góður, en mér þykir með öllu tilgangslaust að eiga orðastað við þá sem álíta mig vera glæpamann af þessu tagi – hvað þá að fara að hefja einhverjar rökræður undir slíkum formerkjum. Til hvers að reyna slíkt sem er fyrir fram alger- lega tilgangslaust? Þykir meira að segja umhugsunarvert, að DV skuli að því er virðist vilja hafa milligöngu um að efna til slíkra samskipta á síð- um sínum. Ég vík þá heldur úr vegi, óska viðkomandi betri líðanar – ekki mun af veita - jafnframt því sem ég vona, að þeir, sem slíkar skoðanir hafa á glæpsamlegu eðli þeirra, sem ekki eru þeim sammála, muni aldrei fá þau völd í hendur að geta látið athafnir fylgja orðum. n „Öllu ljótari ásak- anir er ekki hægt að bera fram en að við mælandinn sé föðurlands svikari og þjóðníðingur. Sighvatur Björgvinsson Fyrrverandi ráðherra Kjallari Mest lesið á DV.is 1 Gerðu húsleitir hjá íslenskri konu sem er nafngreind í minnisblaði. Lög- regla gerði tvisvar húsleit hjá konu sem sögð var vera ástkona Tonys Omos. 18.063 hafa lesið 2 Ísland hagar sér eins og dæmigert smáríki Í helgarblaði DV var rætt við Kötlu Kjartansdóttur og Kristinn Schram sem hafa rannsakað samfélög norðurslóða síðustu ár. 15.639 hafa lesið 3 Hvað finnst þér um ráðn-ingu nýs útvarpsstjóra? Lesendur DV sögðu skoðun sína á ráðningu nýs útvarpsstjóra. Flestir voru ánægðir með Magnús Geir Þórðarson. Niðurstöður könnunarinnar má sjá hér að neðan. 13.638 hafa lesið 4 Patrekur krefur Val um vangoldin laun Patrekur Jóhannesson hefur höfðað mál á hendur fyrrverandi vinnuveitendum sínum í Val. Patrekur telur sig eiga inni nokkurra mánaða launagreiðslur vegna starfsloka sinna hjá félaginu. 7.896 hafa lesið 5 Brynja Mist enn ófundin Lögreglan á Selfossi lýsir enn eftir hinni sextán ára Brynju Mist Snorradóttur sem strauk frá vistheimili að Hamarskoti í Flóa þann 15. janúar síðastliðinn ásamt vinkonu sinni. 8.527 hafa lesið Myndin Sjúkraflutningamenn á þingpöllum Sjúkraflutningamenn söfnuðust á þingpalla til þess að hlýða á umræður um stöðu sjúkraflutninga á höfuðborgarsvæðinu á mánudag. Áður en þær umræður hófust, þá hlýddu þeir drykklanga stund á umræður um leka á trúðanargögnum um hælisleitendur. Mynd SigTryggur Ari Könnun 72,7%14,1% 13,3% n Já n Nei n Hef enga skoðun Ertu sátt/ur við nýja útvarpsstjórann?

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.