Dagblaðið Vísir - DV - 28.01.2014, Blaðsíða 18
Vikublað 28.–30. janúar 201418 Fréttir
N
okkrir af valdamestu þjóð-
höfðingjum hins vestræna
heims hafa lýst því yfir að
þeir ætli ekki að vera við-
staddir opnunarhátíð Vetr-
arólympíuleikanna í Sochi í Rúss-
landi, sem hefjast 7. febrúar.
Flestir gera það til að mótmæla
mannréttindabrotum á minnihluta-
hópum í landinu en mannréttindi
samkynhneigðra hafa verið fótum
troðin í landinu, svo vægt sé til orða
tekið. Umdeild lög voru samþykkt
í Rússlandi í janúar í fyrra þar sem
bann var sett við að „samkynhneigð-
um áróðri“ væri haldið að börnum.
Samkynhneigð pör hafa verið sektuð
fyrir að kyssast eða haldast í hendur
á opinberum vettvangi. Þá eru gleði-
göngur samkynhneigðra víða bann-
aðar í Moskvu og víðar í Rússlandi.
Fólk hvatt til að sniðganga
Skemmst er að minnast meðferðar
hins opinbera á meðlimum hljóm-
sveitarinnar Pussy Riot. Meðlimir
hljómsveitarinnar, sem fangelsaðir
voru í fyrra, hafa hvatt fólk til að
sniðganga leikana enda sé um að
ræða gæluverkefni Vladimírs Pútín.
Rússar hafa lagt gríðarlegt fjármagn
í leikana, sem verða dýrustu vetrar-
ólympíuleikar sögunnar. Vestræn-
ir fréttaskýrendur tala um að Pútín
vilji með fjáraustrinum freista þess
að bæta ímynd landsins – sem það
sannarlega má við.
Eins og áður segir hafa nokkrir
ráðamenn og þjóðarleiðtogar gef-
ið frat í leikana og ætla ekki að fara.
Leiðtogarnir eru þó misfrakkir í af-
stöðu sinni. Sumir segja berum orð-
um að í því felist pólitísk yfirlýsing
af þeirra hálfu, og fordæma þau
brot sem Rússar fremja á minni-
hlutahópum, á meðan aðrir hafa
hljótt um sig eða segjast einfaldlega
ekki vilja fara, eða jafnvel ekki kom-
ast til Sochi. n
Þessir ætla ekki á
Ólympíuleikana
n Vestrænir ráðamenn segja nei við mannréttindabrotum og ætla ekki til Sochi
Baldur Guðmundsson
baldur@dv.is
n Tveir íslenskir ráðherrar fara til
Sochi; þau Illugi Gunnarsson mennta-
málaráðherra og Eygló Harðardóttir
félagsmálaráðherra. DV spurði á vef
sínum, DV.is, lesendur hvort íslenskir
ráðherrar ættu að sniðganga Vetrar-
ólympíuleikana. Ríflega 83 prósent
svarenda vildu að íslenskir ráðherra
héldu sig heima á meðan tæplega 17
prósent vildu að þeir færu út.
Íslenskir
ráðherrar
fara út
Fæstir vilja að íslenskir
ráðherrar sæki heim Sochi
Já
82,8%
Nei
17,2%
Barack Obama
Staða: Forseti
„Hvað varðar Ólympíuleikana og
frammistöðu í þíþróttum þá drögum við
ekki fólk í dilka eftir kynhneigð,“ hefur
Obama látið hafa eftir sér. Leikarnir í Sochi
verða þeir fyrstu sem Bandaríkjaforseti,
forsetafrú eða varaforseti Bandaríkjanna
heimsækja ekki frá árinu 2000.
Lena A. Liljeroth
Staða: Íþróttamálaráðherra
Liljeroth hefur látið hafa eftir sér að of mörg
viðvörunarljós hafi kviknað. Þau lúti að
umhverfismálum, peningum og sérstaklega
mannréttindum. „Ég ætla ekki að fara á
opnunarhátíðina og það er pólitísk yfirlýs-
ing,“ er haft eftir ráðherranum í sænskum
fjölmiðlum.
David Cameron
Staða: Forsætisráðherra
Cameron ætlar ekki á leikana en segist heldur
trúa á að ræða málefni en sniðganga viðburði
sem þessa. Mannréttindabrot séu ekki ástæða
þess að hann fari ekki. „Við sendum Clöru
Balding [samkynhneigð sjónvarpskona, innsk.
blm.] til að segja frá leikunum og ég tel að það
séu býsna skýr skilaboð,“ segir Cameron.
Elio Di Rupo
Staða: Forsætisráðherra
Hvorki flæmski né belgíski forsætisráðherr-
ann ætla á Ólympíuleikana. „Við ætluðum
aldrei að fara,“ sagði Di Rupo. Utanríkisráð-
herrann ætlar heldur ekki en þau hafna því
öll að þau séu að taka þátt í einhvers konar
uppreisn. „Ég er á því að íþróttir og pólitík
eigi að vera aðskilin.“
Benjam. Netanyahu
Staða: Forsætisráðherra
Þrátt fyrir góðan vinskap Netanyahu og
Pútíns Rússlandsforseta, hefur forsætis-
ráðherrann ákveðið að sækja ekki leikana.
Leiðtoginn hefur ekki tjáð sig um ástæðu
þess en skrifstofa hans sendi frá sér yfir-
lýsingu þess efnis að boð Rússa hefði verið
móttekið en að það verði ekki þegið.
Stephen Harper
Staða: Forsætisráðherra
Um svipað leyti og Hvíta húsið greindi frá því
að Obama færi ekki til Rússlands kom svipuð
yfirlýsing frá Kanada. „Hann fer vanalega
ekki á vetrarólympíuleika og á því verður
engin breyting núna,“ stóð í tölvupósti frá
talsmanni ráðherrans. Ekki kom fram að um
pólitíska yfirlýsingu væri að ræða.
Joachim Gauck
Staða: Forseti
Þýska stórblaðið Der Spiegel greindi frá
því að ákvörðun Gauck um að fara ekki
til Rússlands væri sprottin af pólitískum
rótum. Hann væri með þessu að mótmæla
mannréttindabrotum Rússa og framgöngu
stjórnvalda gegn pólitískum andstæðing-
um.
Viviane Reding
Staða: Framkvæmdastjóri dómsmála og
mannréttinda í ESB
„Ég ætla sannarlega ekki til Sochi á meðan
komið er fram við minnihlutahópa á þann
hátt sem lögin í landinu kveða á um.“ Hún
hefur gengið hart fram í afstöðu sinni til
rússneskra yfirvalda og hefur ítrekað bent á
það sem miður fer í Rússlandi.
Francois Hollande
Staða: Forseti
Hollande, sem hefur átt í vandamálum í
einkalífinu af áður óþekktri stærðargráðu
ætlar ekki til Sochi. Það var kunngjört um
miðjan desember og jafnframt að engir
franskir ráðamenn færu. Hollande hefur
ekki gefið skýringu á fjarveru sinni í eigin
persónu.
Paavo Arhinmaki
Staða: Íþróttamálaráðherra
Arhinmaki hefur sagt að stjórnmálamenn
ættu ekki að fara í opinbera heimsókn til
Rússlands. Hann ætli ekki að fara og að það
megi túlka sem yfirlýsingu gegn heftingu
tjáningarfrelsis og öðrum mannréttinda-
brotum í garð landsmanna. Hann fer hins
vegar á eigin vegum og styður sitt fólk.