Dagblaðið Vísir - DV - 28.01.2014, Blaðsíða 10
Vikublað 28.–30. janúar 201410 Fréttir
N
íu, tveir karlar og sjö konur,
hafa verið ákærð fyrir að
óhlýðnast fyrirmælum lög-
reglu þegar þau mótmæltu
vegagerð í Gálgahrauni þann
21. október síðastliðinn. Tugir manns
voru handteknir í hrauninu og færðir
í einangrun, en einungis hluti hóps-
ins var ákærður. Ákærurnar verða
teknar fyrir í Héraðsdómi Reykjaness
í dag, þriðjudag. Ellilífeyrisþegar eru
á meðal hinna ákærðu. DV hefur
rætt við alla úr hópnum og ber þeim
saman um að með ákærunum sýni
íslensk yfirvöld aukna hörku gagnvart
friðsömum mótmælendum.
Fern náttúruverndarsamtök,
Landvernd, Náttúruverndarsamtök
Íslands, Náttúruverndarsamtök Suð-
vesturlands og Hraunavinir höfðuðu
sameiginlega dómsmál í vor til þess
að fá skorið úr um lögmæti fyrirhug-
aðrar framkvæmdar við lagningu
nýs Álftanesvegar um þvert Gálga-
hraun. Töldu mótmælendur að bíða
ætti niðurstöðu dómstóla áður en
framkvæmdum væri haldið áfram.
Þessu var Vegagerðin ósammála en
í tilkynningu hennar vegna málsins
sagði meðal annars: „Meginregla ís-
lensks réttarfars er að höfðun dóms-
máls frestar ekki framkvæmdum.“
Aðgerðir lögreglu voru viðamiklar
en Álftanesveginum var meðal annars
lokað á meðan sérstök aðgerðarsveit
lögreglunnar – um fjörutíu lögreglu-
menn – handtók mótmælendur og
færði þá í fangageymslur lögreglu.
„Umfangið á þessu máli er að verða
rosalega mikið miðað við þær litlu
sakir sem bornar eru á þetta fólk,“
segir Ragnheiður Elfa Þorsteinsdóttir,
lögmaður Hraunavina, í samtali við
DV.
Friðsamleg mótmæli
Mótmæli Hraunavina voru friðsam-
leg og fólust að mestu leyti í því að
sitja í hrauninu og færa sig ekki úr
stað þrátt fyrir fyrirskipanir lögreglu.
Lögreglan vísaði til þess að fólk-
ið væri að trufla framkvæmdir inni á
vinnusvæði en mótmælendur bentu
á að lögreglan hefði skilgreint mörk
vinnusvæðisins eftir á. Þannig hafi
borðar sem áttu að skilgreina vinnu-
svæðið verið færðir til af lögreglu-
mönnum og inn á svæðið þar sem
mótmælendur sátu.
Þetta vakti meðal annars spurn-
ingar um hlutverk lögreglu og hvort
henni væri í sjálfsvald sett að skil-
greina og færa til mörk vinnusvæð-
is í þjónustu við verktaka. Það vakti
einnig mikla athygli þegar Ómar
Ragnarsson var handtekinn. „Ég
stend á rétti mínum og beygi mig
fyrir valdinu,“ sagði Ómar þegar hann
var borinn í burtu af lögreglumönn-
um. Hann er ekki á meðal þeirra sem
ákærðir eru nú.
Stjórnarskrárvarinn réttur
„Samkvæmt stjórnarskrá eigum við
rétt á því á að mótmæla með frið-
samlegum hætti. Það er ekki hægt
að taka þennan rétt af okkur og rík-
isvaldið verður að virða það,“ seg-
ir Ragnheiður Elfa Þorsteinsdóttir,
lögmaður Hraunavina, í samtali við
DV. Hún bætir því við að þessi réttur
sé einnig varinn af mannréttinda-
sáttmála Evrópu. „Þannig að þetta
er auðvitað mikið prinsippmál.“ Hún
segir fésektir liggja við hinum meintu
brotum en vararefsing geti mögulega
verið fangelsisvist
„Hvað getur lögreglan gengið
langt í því að gefa fólki fyrirmæli?“
spyr Ragnhildur Elfa og tekur fram
að lögreglu beri að gæta meðalhófs
þegar henni sé falið svo mikið vald.
„Að ganga svo langt að ákæra fólk af
jafn litlu tilefni er auðvitað kapítuli út
af fyrir sig.“ Hún segir að dómari eigi
eftir að taka afstöðu til málsins og því
sé erfitt að segja til um hvað gerist
næst. „Það er ákæruvaldsins að sanna
að þetta fólk hafi óhlýðnast fyrirmæl-
um lögreglu þannig að það reynir á
það fyrir dómi.“
Fyrrverandi ráðherra handtekinn
Fjölmargir þeirra sem tóku þátt í mót-
mælunum voru á miðjum aldri eða
eldri og neituðu flestir að færa sig
um set þegar lögregla krafðist þess.
Jón Bjarki Magnússon
jonbjarki@dv.is
1
3
4
5
7
8
Viðamiklar
aðgerðir
Um fjörutíu
lögreglumenn
komu á vett-
vang og hand-
tóku velflesta
mótmælendur.
n Níu ákærð vegna mótmæla í Gálgahrauni n Stjórnarskrárvarinn réttur fólks að mótmæla, segir lögmaður
Þau eru óvinir ríkisins