Dagblaðið Vísir - DV - 28.01.2014, Blaðsíða 30
Vikublað 28.–30. janúar 201430 Sport
Bas Dost
Félag: Wolfsburg
Aldur: 24 ára
Þjóðerni: Hollendingur
n Áður en Alfreð Finnbogason kom til
Heerenveen sá Bas Dost um að skora
mörkin fyrir liðið. Dost var sannkallaður
markahrókur og skoraði 47 mörk í 66
leikjum. Árið 2012 var hann seldur til
Wolfsburg í Þýskalandi en þar hafa hlutirnir
ekki alveg gengið upp hjá honum. Á þessu
tímabili hefur hann ekki enn byrjað leik fyrir
Wolfsburg, en komið inn á sem varamaður
fimm sinnum. Það er ljóst að Dost þarf að
breyta til.
n Frábærir leikmenn sem þurfa nýja áskorun eða fá ekki að spila nóg n Hagsmunum þeirra betur borgið annars staðar
sextán leikmenn sem
þurfa að komast annað
Diego Contendo
Félag: Bayern München
Aldur: 23 ára
Þjóðerni: Þjóðverji
n Contendo er líklega ekki þekktasta
nafnið í leikmannahópi Bayern. Ástæðan er
auðvitað sú að hann hefur ekki fengið nógu
mörg tækifæri. Hann hefur aðeins byrjað
þrjá leiki í deildinni á tímabilinu en þegar
hann hefur fengið tækifæri hefur hann
staðið sig vel. Þetta er öflugur leikmaður
á besta aldri sem getur bæði spilað sem
vinstri bakvörður og miðvörður. Hann þarf
meiri leiktíma og ef Bayern getur ekki gefið
honum hann þarf hann að fara.
Fabio Quagliarella
Félag: Juventus
Aldur: 30 ára
Þjóðerni: ítali
n Þessi ítalski framherji hefur fengið afar
fá tækifæri hjá Juventus í vetur og til þessa
aðeins byrjað þrjá leiki í deild. Ef hann ætlar
sér að fá sæti í landsliðshópi Ítala fyrir HM
í sumar þarf hann að komast annað, ella
sitja heima. Umboðsmaður hans hefur látið
hafa eftir sér að fjölmörg félög hafi áhuga á
leikmanninum, en verðið sem Juventus vill
fá fyrir hann sé of hátt.
Heurelho Gomes
Félag: Tottenham
Aldur: 32 ára
Þjóðerni: Braselíumaður
n Markvörðurinn Heurelho Gomes hefur
að mörgu leyti verið óheppinn á ferli sínum.
Hann átti góðan tíma hjá PSV í Hollandi áður
en hann var seldur til Tottenham árið 2008.
Þar gerði hann sig sekan um slæm mistök í
leikjum en sýndi þess á milli hvers hann er
megnugur. Nú er Gomes þriðji í goggunar-
röðinni hjá Tottenham, á eftir Hugo Lloris og
hinum aldna höfðingja Brad Friedel. Gomes
fær væntanlega ekki fleiri leiki hjá Totten-
ham og þarf að komast annað hið fyrsta.
Iker Casillas
Félag: Real Madrid
Aldur: 32 ára
Þjóðerni: Spánverji
n Casillas hefur um margra ára skeið verið
einn besti markvörður heims. Það er því í
raun ótrúlegt að hann hafi ekki enn byrjað
einn einasta leik í spænsku deildinni í vetur.
Hann hefur fengið að spila leiki Real Madrid
í bikarnum og í Meistaradeildinni og staðið
sig vel, að venju. Sjálfur tekur Casillas þessu
með jafnaðargeði og segist samgleðjast
liðsfélögum sínum sem eru að spila vel um
þessar mundir. En Casillas verður að fá fleiri
leiki enda HM í Brasilíu á næsta leiti.
Javier Pastore
Félag: Paris St. Germain
Aldur: 24 ára
Þjóðerni: Argentínumaður
n Það var við miklu búist af Argentínu-
manninum Javier Pastore þegar hann gekk
í raðir Parísarliðsins frá Palermo árið 2011
fyrir 40 milljónir evra, 6,3 milljarða króna.
Eftir að hafa spilað vel á sínu fyrsta tímabili
með PSG hefur hann dalað með hverju
tímabilinu sem líður. Í vetur hefur hann
byrjað sjö leiki í deild og komið sjö sinnum
inn á sem varamaður. Þessi sóknarsinnaði
miðjumaður býr yfir miklum hæfileikum og
gæti eflaust fundið fjöl sína annars staðar.
Luuk de Jong
Félag: Borussia Mönchengladbach
Aldur: 23 ára
Þjóðerni: Hollendingur
n Bas Dost er ekki eini hollenski framherjinn
sem á erfitt uppdráttar í þýska boltanum.
Luuk de Jong var óstöðvandi við markaskor-
un hjá Twente í Hollandi árin 2009 til 2012 og
skoraði til dæmis 32 mörk tímabilið 2011/12.
Hann fór til Mönchengladbach eftir það
tímabil þar sem honum hefur gengið illa. Hann
hefur spilað þrettán leiki í deild á tímabilinu en
alltaf komið inn á sem varamaður. Newcastle
er talið hafa áhuga á de Jong sem gæti reynst
happafengur fyrir félagið.
Michael Essien
Félag: Chelsea
Aldur: 31 árs
Þjóðerni: Ganverji
n Ramires, Frank Lampard, John Obi
Mikel og David Luiz hafa byrjað fleiri leiki
en Essien hjá Chelsea í vetur sem þýðir að
hann er fimmti valkostur á miðjuna undir
stjórn Jose Mourinho. Meiðsli hafa sett strik
í reikninginn hjá þessum öfluga miðjumanni
en enginn efast um hæfileika hans. AC Milan
og Galatasaray eru sögð vilja fá hann í sínar
raðir og það væri ekki óvitlaust hjá Essien
að róa á önnur mið. Hann virðist kominn á
endastöð hjá Chelsea.
Baráttan um Bítlaborgina
A
ðdáendur enska boltans
fá glaðning í miðri viku
þegar heil umferð fer fram
í úrvalsdeildinni. Margir
athyglisverðir leikir eru á dag-
skránni og ber þar hæst viðureign
Liverpool og Everton á Anfield í
kvöld, þriðjudag. Bæði lið hafa spil-
að góðan bolta í vetur; Liverpool er
í 4. sæti með 43 stig en Everton í 6.
sæti með 42 stig. Bæði lið eru tap-
laus á árinu.
Á miðvikudag verður ekki síðri
leikur á dagskránni en þá tekur
Tottenham á móti Manchester City.
Fátt virðist geta stöðvað City-liðið
þessa dagana en liðið hefur unnið
sjö leiki í röð í deildinni. Þrátt fyr-
ir það er liðið aðeins í 2. sæti
deildarinnar með 50 stig, stigi á eft-
ir toppliði Arsenal sem heimsækir
Southampton á þriðjudag. Totten-
ham hefur gengið allt í haginn að
undanförnu og liðið unnið fjóra
leiki í röð í deildinni og því má bú-
ast við hörkuleik.
Stuðningsmenn Manchester
United bíða eflaust margir óþreyju-
fullir eftir að berja Juan Mata aug-
um, en Mata varð dýrasti leikmað-
urinn í sögu félagsins um helgina
þegar hann gekk í raðir United frá
Chelsea. United tekur á móti Car-
diff á þriðjudagskvöld og þarf á sigri
að halda til að halda í vonina um 4.
sætið í deildinni og um leið þátt-
tökurétt í Meistaradeild Evrópu að
ári. United er í 7. sæti með 37 stig en
Cardiff er á botninum með 18 stig.
Chelsea á góðan möguleika á að
festa sig enn frekar í sessi í titilbar-
áttunni en liðið tekur á móti West
Ham í Lundúnaslag á miðvikudag.
Chelsea er sem stendur í 3. sæti
deildarinnar en West Ham er í 18.
sæti deildarinnar með 18 stig, jafn-
mörg og Cardiff og Sunderland sem
eru með lakari markatölu. n
einar@dv.is
n Liverpool tekur á móti Everton n Mata spilar sinn fyrsta leik fyrir United
Vissir þú …
… að síðan Leighton Baines gekk í
raðir Everton hefur hann lagt upp 33
mörk í deildinni, fjórtán fleiri en næsti
varnarmaður.
… að Wilfried Bony hjá Swansea hefur
skorað sex mörk í síðustu fimm leikjum
sínum fyrir félagið.
… að Sergio Aguero hefur skorað í sjö
síðustu leikjum sínum fyrir Manchester
City.
… að frá því í ágúst 2011 hefur Juan
Mata lagt upp 27 mörk í úrvalsdeildinni.
Aðeins David Silva hefur lagt upp fleiri
mörk frá þeim tíma.
… að Romelu Lukaku hefur lagt upp 5
mörk fyrir Everton á tímabilinu, einu
fleira en hann gerði allt tímabilið í fyrra
með West Brom.
… að níu lið hafa fengið fleiri stig á
heimavelli en Manchester United í
úrvalsdeildinni í vetur.Markahrókur Luis Suarez hefur skorað
átta mörk í síðustu fimm leikjum Liverpool á
Anfield. Skorar hann gegn Everton?
Baines
framlengir
Leighton Baines, vinstri bakvörð-
ur Everton, hefur skrifað undir
nýjan fjögurra ára samning við
félagið. Baines, sem var orðað-
ur við Manchester United síðasta
sumar, átti átján mánuði eftir
af samningi sínum við félagið.
Baines, sem er 29 ára, hefur spil-
að með Everton frá árinu 2007 en
hann kom til félagsins frá Wigan.
Hann hefur um árabil verið einn
allra besti bakvörður deildarinn-
ar og eftirsóttur eftir því. Frá því
hann kom til Everton hefur hann
lagt upp 38 mörk í ensku úrvals-
deildinni og ber þar höfuð og
herðar yfir aðra varnarmenn.
„Töpuðu fyrir
betra liði“
Guðmundur Guðmundsson,
fyrrverandi landsliðsþjálfari Ís-
lands í handknattleik og verðandi
þjálfari danska landsliðsins, seg-
ir að Danir hafi tapað fyrir betra
liði í úrslitaleik EM í handbolta á
sunnudag. Danir steinlágu, 41–
32, gegn Frökkum í úrslitaleikn-
um en Guðmundur var á meðal
áhorfenda á leiknum.
„Þetta var mjög erfiður leik-
ur fyrir Dani. Frakkarnir spiluðu
frábærlega. Danska vörnin átti
ekki góðan leik og markverðirn-
ir hafa átt betri dag. Heilt yfir
áttu Danir mjög gott mót og það
er engin skömm að því að tapa
gegn betra liði,“ segir Guðmund-
ur í viðtali á vef danska ríkisút-
varpsins. Guðmundur fær nú
það verkefni að taka við starfi
landsliðsþjálfara Dana, af Ulrik
Vilbeke sem lætur af störfum eft-
ir að hafa náð frábærum árangri.
Liðið varð Evrópumeistari 2012
en tapaði úrslitaleik HM í fyrra
gegn Spánverjum.
Chelsea að
landa Costa?
Forráðamenn Chelsea eru í bresk-
um fjölmiðlum sagðir hafa náð
„munnlegu samkomulagi“ við
Atletico Madrid um kaup á fram-
herjanum Diego Costa. Costa
hefur verið frábær í liði Atletico
á tímabilinu og skorað 24 mörk
í 29 leikjum. Í samningi hans er
ákvæði þess efnis að honum sé
frjálst að semja við annað félag
svo lengi sem það borgi 30 millj-
ónir punda, 5,7 milljarða króna.
Ekki þykir útilokað að Atletico
fái að halda markverðinum Thi-
bault Courtouis í staðinn, en
belgíski landsliðsmarkvörðurinn
hefur verið í láni hjá Atletico frá
Chelsea undanfarin þrjú tímabil.