Dagblaðið Vísir - DV - 28.01.2014, Síða 37
Fólk 37Vikublað 28.–30. janúar 2014
Á
rmann Kr. Ólafsson, bæj-
arstjóri í Kópavogi, opn-
aði kosningaskrifstofu sína
á laugardaginn. Ármann
ætlar að taka slaginn á ný
í Kópavogi og bjóða aftur kost á
sér. Fjölmargir mættu á opnunina
og mátti meðal annars sjá Bjarna
Benediktsson formann Sjálfstæð-
isflokksins, Vilhjálm Vilhjálms-
son, fyrrverandi borgarstjóra, og
Jón Kristin Snæhólm. Einar Mika-
el töframaður töfraði fyrir gestina
og Björn Thoroddsen töfraði fram
fagra tóna. n
Bjarni mætti til Ármanns
Kosningaskrifstofa Ármanns Kr. Ólafssonar opnuð
Hressir Vilhjálmur Vilhjálmsson, Ármann, Runólfur Oddsson og Bjarni Benediktsson.
Flott Matthías Björnsson og
Anette Schou.
Töfrandi tónar Björn
Thoroddsen spilaði fyrir gesti.
Með börnunum Töfrabrögð Einars Mika-
els slógu í gegn hjá börnunum í boðinu.
Vinir Jón Kristinn Snæhólm og
Hjördís Ýr Johnson.
Einar Ágúst
leynigestur
Söng með gömlu félögunum í Skítamórall í fyrsta skipti í 10 ár
H
ljómsveitin Skítamórall
kom saman á laugardaginn
á Spot í Kópavogi. Hljóm-
sveitin hefur ekki verið
starfandi í eiginlegri mynd
undanfarin ár en hefur þó kom-
ið einstaka sinnum saman og rifjað
upp gamla takta. Strákarnir í Skíta-
móral voru gífurlega vinsælir í kring-
um aldamótin og áttu ekki í neinum
vanda með að rifja upp gömlu góð-
in lögin á Spot um helgina. Það vakti
athygli að Einar Ágúst Víðisson, fyrr-
verandi söngvari hljómsveitarinnar,
var leynigestur kvöldsins og tók lag-
ið með sínum gömlu félögum í fyrsta
skipti í tíu ár. n viktoria@dv.is
Skítamórall Allt gengið saman. Einar Ágúst var leynigestur kvöldsins. Einar Bárðarson,
sem er guðfaðir bandsins, lét sig að sjálfsögðu ekki vanta.
Í fyrsta skipti í 10 ár Einar Ágúst
tróð upp með gömlu félögum sínum í
Skítamóral í fyrsta skipti í tíu ár.
Rifjuðu upp gömlu taktana Gömlu kempurnar í Skítamóral áttu ekki í neinum
vandræðum með að rifja upp gamla takta.
Töfraði fyrir gestina Einar Mikael sýndi
töfrabrögð við góðar undirtektir gesta.
Flokksbræður
Ármann Kr. og Bjarni
Benediktsson.
Margir gestir Fjölmargir lögðu leið sína í opnunina.