Dagblaðið Vísir - DV - 11.02.2014, Blaðsíða 21
Umræða 21Vikublað 11.–13. febrúar 2014
Spurningin
Allt sem hann
sagði var rangt
Ískalt og fullt af
útlendingum
Að skilja er eitt af því erfiðasta
sem ég hef reynt á ævinni
Fylgist þú með
Vetrarólympíuleik-
unum í Sochi?
Helgi Hrafn Gunnarsson þingmaður. – youtube.com Leoncie er mætt á klakann. – DV.is Ívar Guðmundsson útvarpsmaður. – DV
„Aldraðir
geta ekki
beðið
Myndin Gert klárt Ungir sveinar gera sig klára fyrir Reykjavíkurmeistaramót KR á skíðum sem fór fram í einmuna veðurblíðu í Skálafelli á sunnudag. Mynd SiGtryGGur Ari
„Nei. En ég fylgdist með fjölmiðlaum-
fjölluninni fyrir þá.“
Carla Matias
hótelstarfsmaður 44 ára
„Við mæðgurnar fylgjumst aðeins
með þessu.“
Guðrún Hildar Kolbeins
ritstjórnarfulltrúi
„Já, ég er alveg vitlaus. Ég fylgist
með öllu; þetta er alveg stórkostlegt.
Skautaíþróttin er skemmtilegust
áhorfs, eins og ballett á ís.“
Svanhildur Árney Ásgeirsdóttir
eftirlaunaþegi 76 ára
„Ég horfði á opnunarhátíðina. Þjóð-
verjarnir voru flottir.“
Kjartan Ólafsson
starfsmaður framleiðslufyrirtækis
„Nei.“
Daníel Freyr Kristínarson
atvinnulaus 31 árs
H
vernig hefur ríkisstjórnin
staðið sig í málefnum aldr
aðra og öryrkja? Hefur hún
staðið við kosningaloforðin,
sem hún gaf lífeyrisþegum?
Þessum spurningum verður svarað í
þessari grein.
Stutta svarið er þetta: Ríkisstjórn
in hefur staðið við hluta af kosninga
loforðunum, sem stjórnarflokkarnir
gáfu öldruðum og öryrkjum. En hún
hefur ekki uppfyllt stærsta kosn
ingaloforðið við lífeyrisþega, þ.e.
loforðið um að bæta lífeyrisþegum
að fullu og strax kjaraskerðinguna
og kjaragliðnunina, sem aldraðir
og öryrkjar urðu fyrir sl. 4–5 ár, þ.e.
á krepputímanum. Til þess að efna
þetta loforð þarf að hækka lífeyri um
20 prósent strax en það þýðir 43.700
kr. hækkun á mánuði á lífeyri frá TR
hjá einhleypum eldri borgara, sem
einungis hefur tekjur frá almanna
tryggingum. Það yrði mikil kjarabót
fyrir lífeyrisþega að fá þessa hækkun.
Bæði Framsóknarflokkur og Sjálf
stæðisflokkur samþykktu á flokks
þingum sínum, að leiðrétta ætti
lífeyri aldraðra og öryrkja vegna um
ræddrar kjaragliðnunar og að það
yrði gert, ef þessir flokkar kæmust til
valda. Nú er komið að því, að þess
ir flokkar, sem sitja í ríkisstjórn verði
að uppfylla þetta kosningaloforð.
Það þolir enga bið. Aldraðir geta ekki
beðið.
Ódýrustu málin framkvæmd
En hvað hefur ríkisstjórnin gert í
málefnum aldraðra og öryrkja? Hún
hefur gert þetta: Á sumarþinginu sl.
sumar lagði ríkisstjórnin fram frum
varp um að afturkalla skerðingu á frí
tekjumarki vegna atvinnutekna frá 1.
júlí 2009. Og um að hætta að reikna
greiðslur úr lífeyrissjóði með tekjum
við útreikning á grunnlífeyri en það
hafði einnig verið ákveðið í júlí 2009.
Margir eldri borgarar misstu grunn
lífeyri sinn við þá ráðstöfun. Það er
grundvallarstefnumál eldri borgara,
að þeir, sem fengið hafa grunnlífeyri
haldi honum en hann sé ekki tekinn
af þeim aftur. Þess vegna var „endur
reisn“ grunnlífeyrisins mjög mikil
vægt mál að mati eldri borgara.
Þessi tvö mál, sem ríkisstjórn
in framkvæmdi sumarið 2013,
voru mjög mikilvæg en það vant
aði þriðja málið þ.e. afturköllun á
skerðingu tekjutryggingar (hækk
un skerðingarhlutfalls úr 38,35% í
45%). Sú skerðing var einnig lögfest
í júlí 2009 og olli 19.000 eldri borg
urum kjaraskerðingu. Hvers vegna
tók ríkis stjórnin ekki þetta mál með
á sumarþinginu 2013?
Það voru tvær ástæður fyrir því:
1) Þetta var mjög kostnaðarsamt
mál. 2) Lögin um skerðingu tekju
tryggingar frá 2009 voru tímabund
in og áttu að renna út í árslok 2013.
Af þessum sökum fengu aðeins þeir
betur settu meðal lífeyrisþega kjara
bætur sumarið 2013 en hinir verr
settu fengu engar kjarabætur þá
þegar. Þeir verr settu urðu að bíða til
áramóta. En þegar kosningaloforðin
voru gefin öldruðum og öryrkjum,
voru engir fyrirvarar settir fram. Því
var lofað, að þessi loforð yrðu efnd
strax, ef stjórnarflokkarnir kæmust
til valda. Ríkisstjórnin valdi ódýrustu
leiðina. Það kostaði ríkissjóð litla
fjármuni að afturkalla skerðingu frí
tekjumarks vegna atvinnutekna og
að leiðrétta útreikning grunnlífeyris.
Í stjórnarsáttmála ríkisstjórnar
innar segir einnig, að afturkalla eigi
skerðingu á frítekjumarki vegna
fjármagnstekna. Það var ekki gert
á sumarþinginu og það hefur ekki
verið gert ennþá.
Endurskoðun almanna-
trygginga strand!
Ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur
lagði fram frumvarp um endur
skoðun almannatrygginga nokkru
fyrir þinglok fyrir síðustu alþingis
kosningar. Þar var m.a. gert ráð fyrir,
að dregið yrði verulega úr skerðingu
lífeyris aldraðra frá almanna
tryggingum vegna greiðslna úr líf
eyrissjóði. Mikillar óánægju gæt
ir í dag meðal lífeyrisþega vegna
þessara skerðinga. Lífeyrisþegum,
sem greitt hafa í lífeyrissjóð, finnst
ósanngjarnt, að í mörgum tilvikum
fái þeir ekkert meiri lífeyri en þeir,
sem aldrei hafa greitt í lífeyrissjóð.
Frumvarpið náði ekki afgreiðslu fyrir
alþingiskosningar. En fulltrúar nú
verandi stjórnarflokka gáfu til kynna,
að endurskoðun almannatrygginga
hefði hljómgrunn hjá þeim og yrði
afgreidd á nýju þingi. Ekkert bólar
þó á því. Talsverður kostnaður fylgir
endurskoðun almannatrygginga. Af
þeim sökum hefi ég enga trú á, að nú
verandi stjórnarflokkar framkvæmi
hana. Það er mjög slæmt, þar eð það
er réttlætismál að draga verulega
úr skerðingum. Óánægja magnast
ört vegna mikilla skerðinga á lífeyri
eldri borgara hjá Tryggingastofnun.
Margir láta óánægjuna bitna á líf
eyrissjóðunum. En það er ekki sann
gjarnt. Ekki er við þá að sakast held
ur stjórnvöld og almannatryggingar.
Flókin löggjöf um tr
Löggjöfin um almannatryggingar er
mjög flókin. Ríkisstjórnin virðist not
færa sér það, þar eð hún talar mjög
óljóst um þær breytingar, sem á að
gera á löggjöfinni. Þannig töluðu
ráðherrar um það á sumarþinginu og
í tengslum við það, að það væri verið
að afturkalla alla kjaraskerðinguna
frá 2009 en það var langur vegur frá
því, að það væri rétt. Aðeins var þá
verið að afturkalla hluta hennar. Hið
sama gildir um kosningaloforðin.
Stjórnarflokkarnir hafa aðeins fram
kvæmt hluta þeirra og það á eftir
að standa við stærsta kosningalof
orðið; leiðréttingu lífeyris vegna
kjaragliðnunar á krepputímanum. n
Stærsta loforðið við aldraða óuppfyllt
Björgvin Guðmundsson
form. kjaranefndar Félags eldri borgara
Aðsent
1 Svona fór neyslan með þau Sláandi „fyrir og eftir“ myndir af eiturlyfjaneyt-
endum.
2 „Ég er ekki frægur lengur“ Shia LeBeouf með poka á hausnum á frumsýningu
Nymphomaniac.
3 „Ég er alkóhólisti og eiturlyfjafíkill“ Shawn Pyfrom úr Desperate
Housewives tjáir sig um fíknina.
5 „Búin að gleyma því að ég var nakin undir búningnum“ Rússneska
skautadrottningin Olga Graf beraði sig
næstum á Ólympíuleikunum.
6 Þau gáfu mest Mark Zuckerberg var gjafmildastur Bandaríkjamanna á síðasta ári.
7 Drápu gíraffa og fláðu fyrir framan grunnskólabörn Gíraffinn Marius var
drepinn í dýragarðinum í Kaupmannahöfn.
Mest lesið á DV.is