Dagblaðið Vísir - DV - 11.02.2014, Blaðsíða 18

Dagblaðið Vísir - DV - 11.02.2014, Blaðsíða 18
Vikublað 11.–13. febrúar 201418 Fréttir Erlent Lög nasista lifa enn n Konur fá þyngri refsingu n Mannæta „slapp“ næstum því með átta ára dóm Þ rátt fyrir að það séu nærri sjötíu ár frá falli Þriðja rík­ isins þá lifir arfleifð nas­ ista góðu lífi í lagabákni Þýskalands. Þrátt fyrir að þau stjórnvöld sem tóku við af Adolf Hitler hafi lagfært flest lög sem sett voru á valdatíma hans, svo sem dauðarefsingu, þá stendur enn reglugerð um refsingar í morð­ málum sem var lögfest árið 1941. Megininntak þeirrar reglugerðar snýr að því að ef fórnarlamb telst grandvaralaust þá á morðinginn von á þyngri refsingu en annars. Ein helsta afleiðing þess í dag er að konur í ofbeldissamböndum sem myrða maka sinn eiga von á þungri refsingu. Nasískt orðalag Landssamband þýskra lögfræðing hefur nýlega gagnrýnt orðalag þessarar ákveðnu reglugerðar harð­ lega. Raunar er það helst eitt orð sem veldur gagnrýninni, orðið „heimtückisch“ sem mætti íslenska sem það að vera lævís eða undir­ förull. Til dæmis um það þá er eigin maður sem myrðir konu sína að lokum eftir áralangt ofbeldi ekki talinn undirförull, meðan það á við um eiginkonu sem myrðir ofbeldis­ manninn meðan hann sefur. Doktor Stefan König, formaður hegningarnefndar Landssambands þýskra lögfræðinga, segir í samtali við BBC að ástæðan fyrir orðalaginu megi rekja til hugmyndafræði nas­ ista. Ein helsta kennisetning nasista var að sumt fólk væri einfaldlega veikgerðara en annað og að það væri réttur þess sterka að drottna yfir þeim veika. Afleiðing þessarar hugmyndafræði var að lagasetning ríkisins var sniðin að því að verja þá sterku. Auk þess voru hugmynd­ ir um undirferli óvina mjög sterkar meðal nasista samanber að þeir töldu gyðinga hafa stungið þýsku þjóðina í bakið og því hafi þjóðin orðið undir í fyrri heimsstyrjöld. Konur fá þyngri refsingu „Í þýskum refsirétti hvað varðar morðmál þá er sakborningur sekur um morð en ekki manndráp ef hann misnotar varnarleysi fórnar­ Hjálmar Friðriksson hjalmar@dv.is Mannæta Armin Meiwes slátraði og borðaði karlmann sem bauðst til þess. Hann fékk fyrst einungis átta ára dóm vegna reglugerðar nasista.  Deitmenning á Íslandi  Hvernig á að viðhalda blossanum?  Ótrúlegar ástarsögur  Kynntust á Facebook  ... og margt fleira Hafðu samband! Hjörtur Sveinsson hjortur@dv.is Berglind G. Bergmann berglind@dv.is Erna Sigmundsdóttir erna@dv.is Tryggðu þér auglýsingapláss! Sérblað um ást fylgir helgarblaði DV 14. febrúar lambsins, óháð öðrum kringum­ stæðum,“ segir König. Útkoman af lagasetningunni er að konur sem myrða ofbeldisfullan eiginmann eru nær alltaf dæmdar fyrir morð en ekki manndráp í Þýskalandi. König segir að sé tölfræðin í þýsk­ um morðmálum skoðuð komi í ljós að konur í þessum kringumstæð­ um fái að jafnaði mikið þyngri dóm en ofbeldisfullir karlmenn. „ Konur sem hafa þolað ofbeldi í árarað­ ir undirbúa sín morð. Ofbeldis­ fullir karlmenn, sem hafa ekkert að óttast, láta höggin einfaldlega dynja þar til konan deyr á endan­ um,“ segir König. Hann segir nú mjög mikilvægt að færa lagasetn­ ingu í Þýskalandi hvað þetta varðar nær nágrannalöndum. Mannætan sem næstum slapp Ein afleiðing nasísku reglugerðar­ innar er sú að mannæta slapp næstum með aðeins átta ára dóm. Árið 2001 auglýsti Armin Meiwes eftir velstæltum karlmann á aldr­ inum átján til þrjátíu ára sem væri reiðubúinn að verða slátrað og svo borðaður. Margir svöruðu en aðeins einn hætti ekki við á sein­ ustu metrunum, verkfræðingurinn Bernd Jürgen Armando. Svo fór að þeir hittust og skáru getnaðarlim Armando af. Meiwes eldaði liminn með salti, pipar, hvítvíni og hvítlauk og þeir átu hann svo í sameiningu. Armando lést fljótlega af blóðmissi og borðaði Meiwes þá það sem eft­ ir var af honum. Þegar réttað var yfir Meiwes þá snerist öll vörn hans um það að hann hefði ekki þving­ að Armando til neins. Því var ekki hægt að segja að atvikið hafi verið undirförult. Hann var því dæmd­ ur í átta ár fyrir manndráp en ekki morð. Svo fór að málið var endur­ rannsakað fyrir rétti og var Meiwes þá dæmdur fyrir morð með þeim rökum að ódæðið hefði átt sér rót í kynferðislegu óeðli. n Þörf á umbótum Lögmaðurinn Stefan König telur reglugerðina vera mismunandi og segir þörf á að fella hana úr gildi. Milljarðar í bónusa B ankastarfsmenn í Bretlandi hafa fengið bónusgreiðslur fyrir samanlagt 80 milljarða punda frá hrunárinu 2008. Þessi upp­ hæð samsvarar rúmum tólf þúsund milljörðum króna. Það eru samtökin Robin Hood Tax Campaign sem birtu tölurnar, en sam­ tökin hafa verið nokkuð fyrirferðar­ mikil í Bretlandi undanfarin miss­ eri. Eitt þeirra helsta baráttumál er að stemma stigu við óhóflegum bónus­ greiðslum í breskum bönkum og, eins og nafnið gefur til kynna, koma á sér­ stökum bankaskatti sem yrði nýttur til að aðstoða fátæka í Bretlandi. David Hillman er talsmaður sam­ takanna og segir hann að niðurstöð­ urnar séu sláandi. „Þessi peninga­ útbýting í fjármálastarfsemi sem nýtur ríkisábyrgðar er þjóðarskandall,“ segir Hillman og bætir við að bankar virðist vera að gefa í og bónusgreiðslur aukist ár frá ári. Hann kallar eftir því að stjórn­ málamenn fari að beita sér fyrir því að þessar greiðslur verði takmarkaðar. Niðurskurður hefur verið í útgjöld­ um hins opinbera í Bretlandi, en í síð­ ustu fjárlögum var skorið niður um 11,5 milljarða punda, rúmlega tvö þúsund milljarða króna. Hillman segir að sá niðurskurður hefði verið óþarf­ ur ef stjórnmálamenn hefðu unnið vinnuna sína. n einar@dv.is Breskir bankastarfsmenn moka inn seðlum

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.