Dagblaðið Vísir - DV - 11.02.2014, Blaðsíða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 11.02.2014, Blaðsíða 10
Vikublað 11.–13. febrúar 201410 Fréttir S prenging var í framleiðslu kannabis á árunum eft- ir hrun. Á þeim árum fjölg- aði fíkniefnabrotum hlut- fallslega langmest allra brota, árið 2008 fjórfölduðust fíkniefna- framleiðslubrot miðað við meðaltal undanfarinna þriggja ára. Árið 2013 féll fjöldi ræktunar um tæpan fimmt- ung frá árinu áður. Þrátt fyrir það virðist hin gífurlega mikla aukning eftir hrun á heildina litið lítið hagg- ast. Árið 2007 var aðeins 31 rækt- un stöðvuð miðað við 161 árið 2013, samkvæmt bráðabirgðatölum emb- ættis ríkislögreglustjóra. Kortið hér er byggt á dómum sem hafa fallið árin 2012 og 2013 í málum þar sem kannabisplöntur voru gerðar upp- tækar. Kortið er ekki tæmandi þar sem sum mál enda með sektum og fara ekki fyrir dómstóla. Auk þess er líklegt að lögreglan finni aðeins brot af þeim stöðum þar sem kannabis er ræktað hér á landi. Langmest í Breiðholti Sjá má á kortinu að langalgengast sé að kannabisræktun sé stöðvuð í Breiðholti og Austurbænum. Á hinn boginn virðist vera minnst um rækt- un í Grafarvogi, Garðabæ og Foss- vogi. Engin augljós skýring er á því hversu mismargar ræktunarstöðvar eru upprættar eftir hverfum, en tekjur og íbúðaverð kann þó að eiga þar ein- hvern hlut að máli. Svo virðist sem á vissum svæðum á höfuðborgarsvæð- inu myndist gróðrarstía kannabis- ræktunar. Helst má þar nefna Bakk- ana í Breiðholti en þar hefur ræktun víða verið stöðvuð. Í Hamraborginni í Kópavogi hefur kannabisræktun ver- ið stöðvuð á alls fjórum stöðum síð- astliðin tvö ár. Svipaða sögu má segja um Holtin, austan Snorrabrautar, þar hefur ræktun verið stöðvuð á sex stöðum. Athygli vekur hve lítið er um kannabisræktun í miðbænum miðað við umtal síðastliðinna ára. Nokkur svæði á höfuðborgar- svæðinu virðast vera með öllu laus við kannabisræktun, í það minnsta hefur ræktun hvergi verið stöðvuð af lögreglu. Á Seltjarnarnesi hefur engin ræktun verið stöðvuð, sömuleiðis á Álftanesi og auk þess virðist Vest- urbærinn vera að mestu laus við kannabisræktun. Athygli vekur að í tveimur tilvikum komst upp um rækt- un í sama húsi tvö aðskilin skipti, í Breiðhellu og Síðumúla. Það bendir til þess að menn sem gripnir eru fyrir ræktun, láti ekki alltaf segjast. „Rosalegur gróði fyrir litla áhættu“ „Ég var ekkert smeykur við lögregluna því þetta var svo lítið sem ég var að rækta,“ segir maður sem ræktaði kannabis í 101 Reykjavík um nokkurt skeið í samtali við DV. Hann var með fjórar plöntur þegar mest var. „Mál- ið með þetta er að þetta er rosalegur gróði fyrir litla áhættu, ég meina kíktu bara á dómana, þeir sem eru böstaðir fá bara skilorð og smá sekt. Í rauninni er stofnkostnaðurinn bara að kaupa lampa sem þú borgar fyrir með fyrstu uppskeru,“ segir ræktandinn. Hann viðurkennir þó að umtalsverður hluti framleiðslunnar hafi farið í hann sjálfan. Hann er nú hættur kanna- bisræktun að eigin sögn vegna þess að heimilisaðstæður bjóða ekki upp á það lengur. „Ég kom samt alveg út í plús,“ segir hann. Áhersla á framleiðslu en ekki fíkla Karl Steinar Valsson, yfirmaður fíkni- efnadeildar lögreglunnar á höfuð- borgarsvæðinu, segir í samtali við DV að megináhersla lögreglunnar sé lögð á að uppræta framleiðslu á fíkni- efnum en ekki að handtaka fíklana sjálfa. „Við erum ekki með afskipti af neytendum nema það tengist ein- hverjum öðrum aðgerðum og hefur það verið þannig í mörg ár. Það er nú þannig þrátt yfir að það sé alltaf talað þannig í málflutningi um lögleiðingu og annað slíkt,“ segir Karl Stein- ar. Samkvæmt Karli Steinari byggist stöðvun á fíkniefnaframleiðslu á ábendingum borgara annars vegar og hins vegar hefðbundinni rann- sóknarvinnu lögreglunnar. „Þetta byggist mjög mikið á ábendingum en þetta er samt sambland. Ábending ein og sér er ekki nóg, það þarf að vinna úr henni.“ Ræktun að verða viðameiri Hann segir umfang kannabisræktunar hafa verið að breytast á seinustu árum. Ræktun sé að verða umfangs- meiri og stærri en áður. „Árið 2009, þegar það var mest, var meðal tal á plöntum í hverri ræktun um hundrað og þrjátíu. Það féll svo árið 2010 nið- ur í sjötíu, það var komið niður í þrjá- tíu og átta árið 2012. Nú er meðaltalið aftur farið að hækka, var fimmtíu á seinasta ári,“ segir Karl Steinar. Tilfærsla úr iðnaðar- húsnæði í íbúðir Karl Steinar segir að sprenging hafi orðið í kannabisræktun á Íslandi í kjölfar hrunsins. „Á tímabili, þegar þetta var mest, þá voru menn í iðnað- arhúsnæði en núna eru menn farnir að nota sérstök tjöld sem þeir koma fyrir annaðhvort í íbúðum eða öðru húsnæði,“ segir hann. Að hans sögn er áberandi í dag að ræktun sé að færast í æ meiri mæli inn í íbúðar- húsnæði. „Það hefur verið að þróast þannig á seinasta ári.“ Karl Steinar segir að ekki sé neitt ákveðið mynstur á því hvar kannabisræktun fari fram. „Þeir koma sér bara fyrir þar sem hentar þeim á hverjum tíma. Það hef- ur ansi mikið verið þannig,“ segir Karl Steinar. Komið til að vera Þórarinn Tyrfingsson, yfirlæknir á Vogi, segir kannabis vera komið til að vera á Íslandi. Að hans sögn er nær allt kannabis sem er í umferð á Íslandi ræktað innanlands. „Við fengum áður kannabisið frá Marokkó eins og all- ar Evrópuþjóðir, það var þá brúni Marokkóinn sem kom. Íslendingar voru náttúrlega mikið í þeim efnum. Þetta kom í gegnum Kristjaníu og var auðvelt að koma þessu hingað heim. Svo breytist þetta, kannabisið sem er í umferð núna fyrst og fremst, þetta sem er kallað gras, það er þá heima- ræktun,“ segir Þórarinn. Kemst upp um aðeins brot af ræktun Að sögn Þórarins þá má nota ákveðna formúlu til að áætla gróflega heildar- neyslu þjóðarinnar. Það er að marg- falda ársneyslu þeirra sem koma inn á Vog vegna kannabisneyslu með fimm. Rökin fyrir því eru að aðeins um fimmtungur þeirra sem eru í neyslu hverju sinni leitar sér aðstoð- ar. Þórarinn segir að árið 2013 hafi slíkir fíklar verið nærri sjö hundruð talsins og var meðalneysla þeirra um gramm af kannabis á dag. Því má ætla að heildarneysla íslensku þjóðarinnar á kannabis sé tæplega þrettán hund- ruð kíló á ári. Árið 2013 lagði lögreglan og tollgæslan hald á um hundrað kíló af kannabis á ýmsum stigum fram- leiðslu. Það er því nokkuð ljóst að sú ræktun sem lögreglan stöðvar er að- eins brot af heildarframleiðslu á Ís- landi. „Skekkt vegna rétttrúnaðar“ Þórarinn bendir á að þótt það hljómi mikið að kannabisneysla Íslendinga sé vel rúmlega tonn þá sé það þó ekki svo mikið. „Þú gætir aukið töluna um eitt tonn og það væri ekki mikið. Það fer eftir því hvernig menn líta á þetta. Ef maður veltir fyrir sér gámun- um sem eru að fara til Vestmanna- eyja um verslunarmannahelgi þá er þetta svo sem ekki mikið. Þetta er svo skekkt vegna rétttrúnaðar, þá finnst manni þetta vera mikið en auðvitað er þetta ekkert mikið. Það er fjöldi fólks sem er að fá sér jónu og geym- ir það bara í minningunni, það er ekkert mál. Það fólk kem- ur ekkert endilega hing- að,“ segir yfirlæknirinn á Vogi. „Maður verður bara samdauna þessu“ Hann segir að í gegnum árin hafi heildarfjöldi kannabisfíkla sem hafa komið inn á Vog verið á svipuðu reki. „Það hafa ekki orðið neinar veru- legar stökkbreytingar á þessu. Það sem kemur í ljós er að þær breytingar sem eru að verða á neyslu fíklanna minna er að nú eru færri ungir sem ánetjast þessu fyrir tvítugt. Aftur á móti hefur heildarfjöldinn ekkert gefið eftir, það er hlutfallið í sjúklingahópun- um sem breytist,“ segir Þórarinn. Að hans sögn er helsta aukningin í kannabisfíkn hjá eldri aldurshóp- um, þeirra sem eru á milli fertugs og fimmtugs. „Þetta er búið að vera í okkar þjóðfélagi í þessi ár, þetta er búið að vera frá sextíu og átta og alltaf sett meiri og meiri svip á allt. Maður verður bara samdauna þessu, þetta verður bara sjálfsagt. Þetta er orðinn mjög stór hluti af þjóðfélaginu,“ segir Þórarinn. Breiðhella 194 plöntur kannabisræktun mest í breiðholti n Þórarinn Tyrfingsson segir kannabis komið til að vera n Ræktandi segir áhættuna litla n Ræktun er að færast inn í íbúðarhúsnæði Hjálmar Friðriksson hjalmar@dv.is Flestir fá skilorð Þeir sem dæmdir eru fyrir kanna- bisræktun fá yfirleitt misþunga skilorðsbundna fangelsisdóma. Sem dæmi um það má nefna mann sem tekinn var með sjö plöntur á heimili sínu. Hann var dæmdur í þrjátíu daga skilorðs- bundna fangelsisvist og var gert að borga um hundrað þúsund krónur í sakarkostnað. Svipaða sögu má segja af öðrum sem var með tvö hundruð plöntur, hann fékk hálft ár í fangelsi skilorðs- bundið. Aðeins þeir sem eru hvað stórtækastir fá óskilorðs- bundna fangelsisdóma. Lengsti dómurinn í þeim málum sem eru hér til skoðunar var eins árs fang- elsisvist. Kannabisræktun á Akranesi Lögreglan á Akranesi fann fullkomna kannabis- ræktun við húsleit síðastliðinn október. Á heimili mannsins fundust tuttugu og fimm plöntur. Mynd LögRegLAn Á AKRAneSi

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.