Dagblaðið Vísir - DV - 11.02.2014, Blaðsíða 3

Dagblaðið Vísir - DV - 11.02.2014, Blaðsíða 3
Fréttir 3Vikublað 11.–13. febrúar 2014 Íslenskt tal leiðbeinir notanda um allar aðgerðir Nú þegar eru fjöldi Íslendinga í fullu fjöri sem startað hefur verið í gang með hjartastuðtækjum frá Donnu. Samaritan PAD hjartastuðtæki kosta aðeins frá kr. 199.600 m/vsk. Stöngin seld á 25 þúsund krónur í Þingvallavatni n Orkuveitan leigir út vinsæl veiðisvæði n Bjarni Júlíusson óttast markaðsvæðingu silungsvatna á beitu (makríl o.fl.) fært sig í aukn- um mæli í Ölfusvatnsvík. Raunar ber flestum viðmælendum blaðsins saman um þetta. Elín segir að með því að leigja þetta eftirsóknarverða svæði út megi gera ráð fyrir stórbættri um- gengni á svæðinu; tekið verði fyrir stórfiskadráp og virkt eftirlit haft með veiðunum. Hún segir að sum- arhúsaeigendur, sem hafa veiði- rétt við bústaði sína, hafi tekið tíð- indunum fagnandi. Veiði fór úr böndunum Árni Þór Sigurðsson er formaður veiðifélagsins Ármanna, en í fé- laginu eru um 300 veiðimenn. Hann segir að veiði hafi farið úr böndunum í Ölfusvatnsvík í fyrra- sumar. Þar hafi í skjóli eftirlits- leysis verið stunduð ólögleg veiði á makríl. „Kostirnir við þetta eru verndunarsjónarmið gagnvart fiskinum,“ segir hann. Árni Þór telur ekki mikla hættu á að verðlagningin, 25 þúsund krón- ur á stöngina í maí, muni stuðla að verðhækkun í silungsvötnum á landsvísu – í það minnsta ekki til skamms tíma. „En ef þetta er það sem koma skal, þá guð hjálpi okk- ur,“ segir hann. Hann viðurkennir að hann sé hugsi yfir þessari til- raun. Þetta svæði Þingvallavatns verði með aðgerðinni 250 pró- sentum dýrara en dýrasta silungs- veiðivatnasvæði á Íslandi til þessa; Veiðivötn. „Maður verður auðvitað hugsi,“ segir hann. Árni Þór segir hins vegar að til- raunin sé áhugaverð og veltir fyrir sér hvernig veiðimönnum, sem borgi 25 þúsund krónur á dag, fyrir utan kostnað við gistingu, mat og leiðsögn, eigi eftir að semja við sumarhúsaeigendur, sem eigi bú- staði við Þorsteinsvík. Þess má geta að Elín hjá Orku- veitunni fullyrðir við DV að engir sumarhúsaeigendur megi veiða í Ölfusvatnsvík eða Þorsteinsvík, heldur séu bústaðirnir á milli víkanna og þar megi eigendur veiða. Sárt að sjá Bjarni Júlíusson, hjá SVFR, segist hafa fullan skilning á því að Orku- veitan sem veiðiréttarhafi vilji fá arð af þeim hlunnindum. Hann segist dást að því hvernig fyrir- tækið hafi staðið að útleigu Elliða- áa og aðgengi að Elliðavatni – sem sé hluti af veiðikortinu. Í Elliðaám hafi verði verið haldið niðri með það fyrir augum að óbreyttir launa- menn geti veitt þar lax fyrir hóf- legt verð. „Þess vegna finnst mér svo sárt að sjá þessa vondu þró- un. Hinn dæmigerði Íslendingur hefur getað farið á fólksbíl og veitt í næstum hvaða vatni sem er á Ís- landi; veitt með ódýrum en góðum græjum og litlum tilkostnaði. Þetta eru forréttindin við það að vera Ís- lendingur.“ Hann óttast að gangi þetta dæmi upp verði venjulegir Íslendingar smám saman útilok- aðir frá því að geta veitt í vötnum á Íslandi. „Þetta er gríðarlega stór breyting.“ n Verðskrá 2014 Samkvæmt svari leigutaka á flugur.is n Frá 1. apríl er dagurinn á 15.000 kr. n Frá 1. maí kostar dagurinn 25.000 kr. n Frá 1. júní–15. júní er veiðileyfi á 15.000 kr. n Frá 15. júní–15. september lækkar leyfið í 5.000 kr. n Við þetta má bæta að leiðsögumaður í einn dag kostar 50 þúsund krónur. Þingvallavatn Þorsteinsvík Ölfusvatnsvík Fyrrverandi þingkona ráðin forstöðumaður S æunn Stefánsdóttir, fyrr- verandi þingkona Fram- sóknarflokksins, hefur verið ráðin sem forstöðu- maður Stofnunar rann- sóknasetra Háskóla Íslands. Hún tók við starfinu nú um ára- mótin. Ráðning hennar hefur ver- ið nokkuð umdeild innan háskól- ans meðal annars vegna þess að hún hefur einungis BS-gráðu í við- skiptafræði meðan helstu undir- menn hennar eru allir með doktors- gráðu. Sæunn segir í samtali við DV að aðeins sé um hlutastarf að ræða; hún muni áfram starfa til helm- ing sem sérfræðingur á skrifstofu rektors Háskóla Íslands sem hún hefur gengt frá árinu 2007. „Ég hef verið tengiliður rektorskrifstofu við stofnunina frá því ég hóf hér störf. Forstöðumaðurinn fer fyrir stofn- uninni í samvinnu við rektor. Starfið felst í því að stýra daglegum rekstri, fjárhagsgerð, stefnumótun og starfsmannamálum,“ segir Sæunn. „Ég held að mín fyrri störf nýt- ist einmitt vel fyrir Stofnun rann- sóknasetra. Þetta snýst einmitt mikið um samskipti við sveitar- félög, samstarfsaðila og ríkis. Ég sinni ekki fræði- eða vís- indastörfum heldur fyrst og fremst stefnumótun. Ég er einmitt í diplómanámi í opinberri stjórn- sýslu og þau námskeið sem ég hef tekið þar nýtast mér vel í þessum verkefnum,“ svarar Sæunn spurð um þá tortryggni sem ráðning hennar hefur vakið vegna starfa hennar fyrir Framsóknarflokk- inn. Hún var þingmaður flokks- ins ár árunum 2006–2007 og aðstoðarmaður Árna Magnús- sonar, þáverandi heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra, á árunum 2003–2006. n Sæunn Stefánsdóttir segir sín fyrri pólitísku störf nýtast vel Hjálmar Friðriksson hjalmar@dv.is Fyrrverandi þingmaður Sæunn Stefánsdóttir hefur verið ráðin sem forstöðumaður Stofnunar rannsóknasetra Háskóla Íslands. Hún segir sín fyrri pólitísku störf nýtast vel í starfinu. Mynd Bragi Þór JóSeFSSon „Ég held að mín fyrri störf nýtist einmitt vel fyrir Stofnun rannsóknasetra

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.