Dagblaðið Vísir - DV - 11.02.2014, Blaðsíða 9

Dagblaðið Vísir - DV - 11.02.2014, Blaðsíða 9
Vikublað 11.–13. febrúar 2014 Fréttir 9 Hjördís Svan bíður dóms í Danmörku Rúm | Sængurver | Springdýnur | Púðar og rúmteppi | Kistur og náttborð Gaflar | Heilsukoddar | Dýnuhlífar og lök | Fylgihlutir Allt fyrir svefnherbergið RB rúm | Dalshrauni 8 | Hafnarfirði | Sími: 555 0397 Opið alla virka daga frá kl. 09.00–18.00, laugardaga 10.00–14.00, sunnudaga lokað www.rbrum.is | rum@rbrum.is | erum á Íslensk hönnun RÚM ára 1943-2013 Framúrskarandi fyrirtæki 2012 Framúrskarandi fyrirtæki 2011 Framúrskarandi fyrirtæki 2010 n Ákærð fyrir mannrán eftir harða forræðisdeilu n Börnin hjá ömmu n Segja velferð barnanna borgið dómara í Horsens sem setti hana í farbann í fjórar vikur á meðan fjallað er um brottnám barnanna fyrir dómi. Hún bíður nú þess sem verða vill, en fari svo að Hjördís verði fundin sek fyrir mannrán getur það varðað margra ára fangelsi. Börnin hjá ömmu Börnin eru enn á Íslandi og búa hjá móður Hjördísar og ganga í skóla. Lögmaður Kims á Íslandi, Lára V. Júlíusdóttir, sagði í samtali við Fréttablaðið í síðustu viku að eðli- legt væri að börnin yrðu nú þegar flutt til Danmerkur þar sem þau hafa ekki lögheimili hér á landi og hvorugt foreldra er statt á landinu. Lögmenn Hjördísar hafa hins vegar bent á að til þess að fá börnin aftur til Danmerkur þurfi Kim að höfða brottnámsmál. Enginn ágreiningur sé um að vel- ferð barnanna sé borgið. „ Börnin hafa fengið skínandi vitnisburð frá íslenskum skólayfirvöldum þar sem fram kemur að þau hafi haft góðan framgang í námi og búið við gott atlæti.“ Ekki náðist í Hjördísi, að- standendur hennar eða lög- menn, hvorki hennar né Kims við vinnslu fréttarinnar. n „Telur hann góðar líkur á sýknu þar sem Hjördísi Svan hafi ekki aðeins verið rétt heldur skylt á grundvelli nauðvarnar. 2014 Hæstiréttur staðfestir úrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur. Danskir lögreglumenn komu til landsins og fluttu Hjördísi nauðuga til Dan- merkur þar sem hún var færð fyrir dóm í Horsens. Hún hefur verið úrskurðuð í farbann og bíður dóms vegna ákæru um mannrán. 2014 Dæturnar verða ekki afhentar úr landi nema fyrir atbeina íslenskra stjórnvalda. Til þess þyrfti faðir þeirra að fara í nýtt brottnámsmál. 2014 Hanna Birna Kristjánsdóttir, innanríkisráðherra, segist harma hvernig málinu hefur fram undið. Ofurhugi ætlar yfir Vatnajökul „Enginn hefur reynt að fara yfir Vatnajökul á þennan hátt“ B reskur ofurhugi hyggst fara yfir Vatnajökul í apríl á þessu ári í sérbúnum snjósleða sem dreginn er áfram af fallhlíf. Ofurhuginn, Sean Rose, er lamaður fyrir neðan mitti og hef- ur látið útbúa fyrir sig svokallað- an flugsleða fyrir verkefnið. Hann hálsbrotnaði í skíðaslysi fyrir rúm- um þrettán árum, en hefur allar götur síðan haldið áfram keppni í jaðaríþróttum. Rose er meðal annars heimsmeistari á sjóskíðum og hefur keppt á Ólympíumóti fatlaðra. Þá vann hann til verð- launa á X-Games-keppninni. Verkefni Rose á Vatnajökli er einstakt og hefur að líkindum aldrei verið reynt áður. Sleðinn fer á 56 kílómetra hraða á klukkustund og má því ætla að yfirferðin taki hann um fjóra til tíu daga. Liður í verk- efninu er fjáröflun fyrir samtökin Wings for Life sem reyna að finna lækningu við mænuskaða, en það er Rose mjög mikilvægt. Hann hefur undirbúið sig í þrjú ár og er nú að leggja á lokasprettinn í undirbúningnum. Hann verður við æfingar í Noregi áður en hann kemur hingað til lands. „Enginn hefur reynt að fara yfir Vatnajökul á þennan hátt,“ segir Rose sem segist alltaf vera að leita sér að nýrri áskorun. „Maður þarf alltaf að leita sér að nýjum verkefnum og áskor- unum. Þetta hefur aldrei verið gert áður. Ég þurfti að undirbúa mig vel. Við höfum þróað búnaðinn sem ég þarf, enda eru svo margar breytur sem þarf að gera ráð fyrir. Þetta heillaði mig upp úr skónum,“ segir hann. n astasigrun@dv.is Sean Rose Sean hefur lokið mörgum verkefn- um sem aðrir myndu aðeins láta sig dreyma um.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.