Dagblaðið Vísir - DV - 14.03.2014, Side 28

Dagblaðið Vísir - DV - 14.03.2014, Side 28
Helgarblað 14.–17. mars 201428 Fólk Viðtal Guðný Sigurðardóttir ætlar að hefja minningaferð á meðan aðrir sofa sunnudaginn 21. maí. Strax upp úr miðnætti ætlar hún að ganga af stað frá Landspítalanum í Reykjavík að sundhöllinni á Selfossi, þar sem hún ætlar að synda 286 ferðir, jafn margar og vikurnar sem dóttursonur hennar, Vilhelm Þór Guðmundsson, lifði – í lauginni þar sem hann drukknaði. Hún segir frá slysinu, sorgarferlinu og því hvernig hún lofaði Vilhelmi Þór heitnum að leita gleðinnar á ný. A ð morgni dags hittum við Guðnýju fyrir að heimili hennar á Selfossi. Hún mæt- ir okkur með bros á vör, rétt nýkomin úr ræktinni og bið- ur okkur að hafa sig afsakaða á meðan hún hefur sig til. Á meðan við, blaða- maður og ljósmyndari, bíðum skoð- um við myndir af barnabörnunum á veggjunum, innrömmuð handaför og lesum ljóð sem móðir hans orti við fráfallið og flutt var í jarðarförinni. Það hangir nú uppi á vegg. Heimilið er snyrtilegt og hvergi er óreiðu að sjá. Þegar Guðný kemur fram bend- ir hún á mynd sem tekin var kvöldið fyrir slysið og er eina myndin sem Guðný á af öllum barnabörnunum saman. Fjölskyldan var öll saman- komin hér í mat og þegar þau voru að fara þá sagðist hún ætla að ná mynd af þeim saman. „Vesenið á mér við að ná henni. Ég bara varð að fá þessa mynd.“ Við setjumst við eldhúsborðið þar sem hún segir að hugmyndin að minningaferðinni hafi orðið til í fyrrasumar. Þá var hún búin að vera mjög langt niðri allt frá fráfalli Vil- helms Þórs. „Ég stundaði mína vinnu en gerði lítið annað. Ég kom heim og háttaði mig og var yfirleitt rúmliggj- andi eftir klukkan fjögur á daginn. Í júlí var ég í sumarfríi og einn daginn gerðist eitthvað. Það var eins og mér væri sparkað í útifötin og ég fór út að ganga. Þá hafði ég ekki far- ið í göngutúr frá fráfalli hans og var nú ekki dugleg að hreyfa mig fyrir það heldur. Það var örsjaldan sem mann- inum mínum tókst að draga mig út í göngutúr. Þennan dag gekk ég fimm kíló- metra og kom við í kirkjugarðinum. Þar hét ég mér því að ef ég myndi halda áfram að hreyfa mig þá skyldi ég gera eitthvað gott úr því. Við leiðið hans Vilhelms Þórs átti ég gott spjall við sjálfa mig, almættið en aðallega Vilhelm Þór. Ég gaf hon- um loforð um að huga betur að heils- unni og velja lífið. Lífið sem hann fékk ekki að eiga með okkur. Ég lofaði að hugsa vel um mig svo ég gæti orðið amman sem ég vildi vera, svo ég gæti verið glöð og varið tíma með barna- börnunum, hoppað í pollum og á trampólíni með þeim.“ Aftur í laugina Daginn eftir fór Guðný aftur út að ganga og alla næstu daga þar á eft- ir. Með hverjum deginum óx henni ásmegin og hún var staðföst í að vilja ganga til góðs. Landssamtök foreldra og forráðamanna sem hafa misst börn fyrirvaralaust eru ung og Guð- nýju langaði að gera eitthvað í nafni þeirra og safna áheitum um leið. „Ég fór alveg á flug og ætlaði mér jafnvel að ganga hringinn. Vinkona mín dró mig aftur niður á jörðina og úr varð þessi ganga, þar sem ég fer öfuga leið við hans hinstu för með sjúkrabíln- um. Ég veit ekki af hverju ég ákvað að ganga öfuga leið, ég veit að ég sný hlutunum ekki við, en mér fannst það táknrænt. Það er einhver heilun í því. Sundið kom seinna. Ég hafði ekki farið í sund frá því að slysið varð þegar systir hans Vilhelms Þórs hringdi í mig síðasta sumar og spurði hvort ég væri til í að koma í s-u-n-d. Hún staf- aði þetta svo litli bróðir hennar yrði ekki fyrir vonbrigðum ef ég myndi segja nei. Ég gat ekki neitað henni og fór með þeim og móður þeirra í sund. Þá ákvað ég að ef ég gæti kom- ið mér einhvern tímann aftur ofan í innilaugina þar sem hann drukkn- aði myndi ég vilja synda í lauginni. Ég var mjög illa synd og gat aðeins fleytt mér á milli staða með því að halda mig nærri bakkanum. Þannig að ég réði mér einkasundkennara og lærði að synda og nú er ég farin að synda í lauginni.“ Hún viðurkennir reyndar að það gangi frekar illa að ná tökunum á skriðsundi og segir að hún ætli bara að koma sér á milli bakka. „Mér er alveg sama hvernig ég fer að því.“ Tilhlökkun í hópnum Slysið varð hinn 21. maí 2011 en Vil- helm Þór lést á Landspítalan um sólar hring síðar. Sundferðin var skipulögð með miklum fyrirvara og mikil eftirvænting var í barnahópn- um. Þetta var bjartur og fallegur dag- ur og gleðin var við völd. Til stóð að þær færu saman systurnar, Guðný og systir hennar, ásamt barnabörnum Guðnýjar og yngstu dóttur hennar. Þennan morgun vaknaði hún með svo háan blóðþrýsting að hún treysti sér ekki með. Rétt fyrir hádegi hringdi hún í systur sína og lét hana vita af því að hún kæmist ekki með og dóttir hennar ekki heldur. „Við ætluðum að fara þrjár með börnin en það kom eitthvað í veg fyrir það,“ segir hún. „Ég reyni að hugsa ekki um það hvort þetta hefði farið öðruvísi ef ég hefði verið með, enda get ég engu breytt.“ Þar sem Vilhelm Þór hafði verið með slæman hósta lét hún móður hans vita af því að hann gæti verið hjá henni en hann hafði hlakkað svo til sundferðarinnar að það hefði valdið honum miklum vonbrigðum. Klukkan tólf tók systir hennar mynd af barnahópnum fyrir utan heimili Vilhelms Þórs þegar þau voru að leggja af stað. Á myndinni er gleðin greinileg, hann stendur skælbrosandi í stígvélunum sínum með sundgler- augun á hausnum. Þremur korter um síðar var hringt í Guðnýju og hún kölluð á vettvang slyssins. „Þau voru nýkomin ofan í laugina þegar þetta gerðist. Systir mín náði að fara einu sinni með honum í rennibrautina.“ Alltaf passasamur Ekki er vitað fyrir víst hvað gerðist. Ör- yggismyndavélarnar lágu uppi í hillu og fóru ekki upp fyrr en í vikunni eft- ir slysið. „Ég er ekki að segja að þær hefðu komið í veg fyrir að þetta fór svona en þær hefðu getað sýnt okk- ur meira. Og kannski …“ segir hún og hikar, „en það er ekki hægt að hugsa um það.“ Hún telur að Vilhelm Þór hljóti að hafa dottið og rekið höfuðið í bakk- ann. Börnin voru úti í litla pottinum með systur minni en skutust svo inn í laugina. Þar máttu þau ekki vera ein svo hún sendi dóttur sína á eftir þeim. Þau sendu litla kút af stað til að spyrja hvort það væri satt, hann fór upp úr og tók kútana af sér á bakk- anum. Seinna fannst hann á sund- laugarbotninum. Þess vegna held ég að hann hafi dottið. Hann var passasamur að upplagi og óð ekki í hvað sem var. Hann var alltaf með handkúta og fór ekki einn í stóru rennibrautina. Hann var ekki gaur sem hefði hent sér í laugina. Jú, hann var uppátækjasamur grallari en kaldur var hann ekki. Það er til eftir- minnileg mynd af honum sem var tekin úti í Danmörku þar sem hann var að spila krikket með hnéhlífar og hjálm. Hann var alltaf mjög vel græj- aður og fór ekki í heita pottinn okkar án þess að hafa kúta. Þannig að það hlýtur að vera að hann hafi runnið á bakkanum og rotast. Laugin var full af fólki, bæði börn- um og fullorðnum, en enginn varð var við neitt. Það leið örugglega ekki langur tími frá því að hann drukknaði og þar til hann fannst.“ Systir Guðnýjar kom hlaupandi inn í innilaugina að leita að hon- um en þá höfðu tveir unglingspiltar fundið Vilhelm Þór. Hún hóf strax lífgunartilraunir en þar sem þetta var á laugardegi og veðrið var gott var margt í lauginni og hjálpin barst fljótt. Síðasti sólarhringurinn Guðný var skráður nánasti aðstand- andi systur sinnar og var kölluð strax á vettvang þegar slysið varð. Þegar hún kom að lá systir hennar fyr- ir utan sundlaugina þar sem hjúkr- unarfræðingur hlúði að henni. „Hún var bara í áfalli og talaði ekki við mig. Okkar samband hefur alltaf verið mjög sterkt og hún var mjög tengd þessum börnum.“ Inni var verið að gera lífgunar- tilraunir á Vilhelmi Þór og því var haldið áfram þar til sjúkrabíllinn kom og sótti hann suður. Guðný fór með lögreglunni á eftir sjúkrabíln- um með móður hans. „Á spítalanum var allt reynt til að bjarga honum en það var of seint. Hann var kældur nið- ur og settur í öndunarvél en súrefnis- skorturinn var of mikill.“ Guðný gerði sér ekki grein fyrir því í hvað stefndi heldur hélt hún stað- fastlega í þá trú að allt færi á besta veg. Fljótlega fann hún þó á dóttur sinni að hún gerði sér grein fyrir því hvað væri að gerast. „Við ræddum það ekki en þetta var einhver tilfinning sem ég fékk. Um miðnætti náði hún að sofna og ég sat hjá honum á meðan og sagði honum sögu. Yfirleitt bað hann mig um að segja sér sannar sögur og ég sagði honum söguna af því þegar hann fæddist, en ég var viðstödd Lofaði honum að velja lífið Ingibjörg Dögg Kjartansdóttir ingibjorg@dv.is „Ég gaf honum lof-orð um að huga betur að heilsunni og velja lífið. Lífið sem hann fékk ekki að eiga með okkur.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.