Dagblaðið Vísir - DV - 14.03.2014, Side 40
Helgarblað 14.–17. mars 201412 Ferming
Þ
etta er mjög skemmtilegt og
ég er allavega spennt,“ segir
Matthea Lára Pedersen sem
fermist í Dómkirkjunni 13.
apríl næstkomandi. Hún
er búin að vera í fermingarfræðslu
í skólanum sínum undanfarið ár.
Dórótea Jóhannsdóttir, vinkona
hennar, mun hins vegar fermast
borgarlega í Háskólabíói 6. apríl.
„Ég trúi ekki á guð og fermist þess
vegna ekki í kirkju,“ segir Dórótea.
Halda veislurnar heima
Þær ætla báðar að halda veislu í til-
efni ferminganna. Misstórar þó. „Ég
verð með mína hérna heima og hún
verður alveg nokkuð stór, ég býð
frekar mörgum býst ég við,“ segir
Matthea. „Við erum ekki alveg búin
að ákveða hvað við verðum með
en allavega eitthvað gott en það er
ekki alveg komið á hreint,“ segir hún
brosandi.
„Ég ætla að vera með eitthvað
heima en bara svona fyrir nánustu
ættingja,“ segir Dórótea.
Fróðlegt og skemmtilegt
Eins og áður sagði fermist Dórótea
borgaralega. Bróðir Dóróteu, sem
er tveimur árum eldri en hún,
fermdist einnig borgaralega og
heillaði það hana. „Ég ákvað að
gera eins og hann. Þetta er mjög
skemmtilegt og við erum búin að
læra mikið. Við mætum einu sinni
í viku og fáum fræðslu um ýmislegt.
Það koma alltaf einhverjir gestir í
tímana að fjalla um eitthvað. Núna
síðast var til að mynda verið að tala
um fordóma og síðan hefur ver-
ið fjallað um skaðsemi eiturlyfja,“
segir hún.
Matthea hefur líka haft gaman af
sinni fermingarfræðslu. „Ég er búin
að fræðast meira um guð og það er
gaman. Við þurfum svo að mæta
í visst margar messur,“ segir hún.
Matthea fermist með nokkrum
góðum vinkonum en þær ákváðu
fyrir löngu að fermast sama dag.
Ætla báðar að vera í kjól
Fermingarklæðnaðurinn skiptir
fermingarbörnin oft miklu máli og
þær Matthea og Dórótea eru ekki
undantekning þar á. Báðar ætla þær
að vera í kjól í fermingunni. „Ég er
búin að kaupa minn. Ég keypti hvít-
an blúndukjól í Þýskalandi og jakka
og fyllta skó við,“ segir Matthea.
Dórótea er ekki búin að kaupa sín
fermingarföt. „Ég ætla að vera í
kjól og hælaskóm sem ég á eftir að
kaupa,“ segir hún.
Apple eða utanlandsferð
Vinkonurnar hafa ákveðnar skoð-
anir á því hvað þær langar að fá í
fermingargjöf. „Mig langar mjög
mikið í Macbook Pro eða Air,“ segir
Matthea og bætir við: „En ég veit
ekkert hvort ég fái þannig og svo
langar mig líka í ferð með vinkonu
minni til New York í ballettskóla.“
En Matthea æfir ballett.
„Mig langar í iPhone 5s,“ segir
Dórótea og finnst nokkuð líklegt
að draumurinn rætist og hún fái
draumasímann í fermingargjöf.
Vinkonunum finnst ekki líklegt
að margt breytist með ferm-
ingunni, en samt. „Með því að
fermast er ég að staðfesta skírnina
mína og verð búin að læra meira
um guð. En það kannski breytist
ekkert mikið,“ segir Matthea hlæj-
andi. n
„Þetta er mjög
skemmtilegt“
n Vinkonurnar Matthea og Dórótea fermast báðar í apríl n Önnur í kirkju en hin borgarlega
Viktoría Hermannsdóttir
viktoria@dv.is „Ég er búin að
fræðast meira um
guð og það er gaman.
Vinkonur Þær Matthea og
Dórótea eru báðar að fara
fermast; önnur borgaralega
– hin í kirkju. Mynd Sigtryggur Ari
B
orgaraleg ferming er valkostur
fyrir þá sem ekki eru tilbúnir
til þess að strengja trúarheit,
en vilja halda upp á þetta
tímabil í lífi sínu, eins og algengt er
í fjölmörgum samfélögum,“ segir
Siðmennt, félag siðrænna húman-
ista á Íslandi. Í hinum ýmsu samfé-
lögum ganga börn á fermingaraldri í
gegnum manndómsvígslur þar sem
þau takast á við ólík verkefni. Á Ís-
landi velja flestir að fermast oftar en
ekki í kirkju, en annar valkostur er
borgaraleg ferming. Siðmennt hefur
frá árinu 1989 haldið borgaralegar
fermingar hér á landi og hefur sókn
ungmenna í þær aukist ár frá ári.
„Ungmenni sem fermast borgara-
lega eru að styrkja þá ákvörðun sína
að vera ábyrgir borgarar í lýðræðis-
legu samfélagi,“ segir í upplýsingum
frá Siðmennt um borgaralegar ferm-
ingar. Allir geta tekið þátt í borgara-
legri fermingu og í ár verða um 300
ungmenni sem fermast.
Ungmenni sem vilja fermast
borgaralega sækja fræðslunámskeið
þar sem farið er yfir eitt og annað
sem ungmenni þurfa að hafa með
sér í farteskinu þegar þau takast á við
lífið. Þar er fjallað meðal annars um
siðfræði, gagnrýna hugsun, hvernig
á að taka erfiðar ákvarðanir, mann-
leg samskipti og mismunandi lífs-
skoðanir, lífsstíl og tilfinningar. Mikið
er lagt upp úr því að ungmennin taki
þátt í rökræðum og myndi sér skoð-
anir. Að vori er svo haldin athöfn þar
sem fermingarbörnin láta ljós sitt
skína og taka virkan þátt. Þá eru gest-
ir beðnir um að halda erindi og ung-
mennin fá svo viðurkenningarskjal
fyrir þátttöku sína. n
Læra um lífið og tilveruna
Taka þátt í rökræðum og mynda sér skoðanir„Ungmenni sem
fermast borgara-
lega eru að styrkja þá
ákvörðun sína að vera
ábyrgir borgarar í lýð-
ræðislegu samfélagi.
Fjölgun Þeim fjölgar mikið ár frá
ári sem vilja fermast hjá Siðmennt.