Dagblaðið Vísir - DV - 14.03.2014, Síða 43
Helgarblað 14.–17. mars 2014 Fréttir 15
FALLEGT FYRIR FERMINGARBARNIÐ – GEFÐU GJÖF SEM ERFIST Á MILLI KYNSLÓÐA
Veradesign.is | Veradesign by Guðbjartur og Íris | s:663-6969 | Garðatorgi 7 | Garðabæ
Sölustaðir: ICELANDAIR Saga Shop, Meba Kringlunni, Meba Rhodium kringlunni og Smáralind, GÞ skartgripir Bankastræti, Kastanía,
Gullauga Ísafirði, Georg V. Hannah Reykjanesbæ, Karl R. Guðmundsson Selfoss, Raven Laugavegi, Dýrfinna Torfa Akranesi
og JB Akureyri.
Góð förðunarráð fyrir fermingardaginn
L
ítið er meira. Fermingar
stúlkur eiga ekki að vera
mikið málaðar. Ekki mála
þig þannig þú sjáir eftir því
seinna meir. Það er miklu
snyrtilegra að vera náttúrulega farð
aður ef fermingarstúlkan vill vera
förðuð á annað borð. Hér eru nokk
ur góð ráð fyrir stóra daginn:
Notið brúnan maskara, sérstak
lega þær sem eru ljóshærðar og með
ljós augnhár. Svartur maskari getur
virkað of dökkur á augnhárunum.
Litað dagkrem. Það er betra að
nota litað dagkrem en farða. Það
er léttara og skilur síður eftir sig
óheppileg litaskil.
Ef ætlunin er að vera í hvítu að
ofan á fermingardaginn þá getur
verið gott að vera búin að fara í föt
in áður en förðun fer fram. Annars
gæti farið farið í fötin.
Ef nota á brúnkukrem þá er gott
ráð að bera það á með bómullar
skífu. Þannig er komið í veg fyrir
að brúnkukremið setjist á hendur
eða neglur. Berið það á daginn
fyrir og munið að bera á eyrun og
hálsinn líka.
Ljósir augnskuggar eru málið
fyrir fermingardömur. Hægt er að
kaupa augnskuggapallettur með
leiðbeiningum um hvernig bera
eigi augnskuggann á.
Það getur verið fallegt að nota
gloss með örlitlum lit í á ferm
ingardaginn. Varalitur er kannski
aðeins of mikið fyrir suma og svo
má líka setja örlítið af glossi á
kinnarnar og nota það þannig sem
kinnalit líka. n
ritstjorn@dv.is
Náttúruleg förðun er málið á fermingardaginn
Létt förðun Ljós augnskuggi og lítill farði er málið.
Hvað táknar
fermingin?
Athöfnin er mjög táknræn en
flestir siðir tengdir fermingunni
hafa einhverja þýðingu innan
kristinnar trúar. Til dæmis
táknar hinn hvíti fermingar
kyrtill hreinleika en ástæða
þess að hann er síður niður á
hæla er sú að hann á að minna
á skírnarkjólinn og þannig
mynda tengingu á milli skírnar
og fermingar, en fermingin er
einmitt staðfesting á skírninni.
Fermingarkyrtillinn var inn
leiddur á Íslandi fyrir rúmum
fimmtíu árum, þrátt fyrir að
fermingar hafi verið stundaðar
talsvert lengur.
En oblátan?
Fleira við athöfnina er mjög
táknrænt. Að neyta oblátunn
ar undir lok altarisgöngunnar
er til að mynda tilvísun í síð
ustu kvöldmáltíð Jesú Krists.
Þá víkur námið og trúin tek
ur við þegar brauðs og víns er
neytt, en það eru tákn fyrir lík
ama og blóð Jesú Krists. Jesús
er þá meðtekinn og trúin með
og fermingarbarnið ákveður að
hafa Jesú sem leiðtoga lífs síns.
Hvað merkir fermingin?
Upphaflega var fermingin ekki
aðgreind frá skírninni sem
vígsla inn í hinn kristna söfn
uð. Á 12. öld var fermingin
svo aðgreind frá skírninni sem
sérstakt sakramenti. Altaris
gangan táknar veginn til sjálf
stæðis en fermingin er einmitt
tákn um að fermingarbarnið
sé að slíta barnsskónum. Þessi
félagslegi atburður táknar það
að barnið sé tekið í fullorðinna
tölu í hinum kristna söfnuði og
að það sé hæft til að ganga inn í
leyndardóm sakramentisins og
verða gildur samfélagsþegn á
eigin forsendum.
Hvaðan er athöfnin
sprottin?
Hin lúterska ferming á rætur
að rekja til „confirmatio“
athafnarinnar hjá kaþólsku
kirkjunni. Sú athöfn er ein
göngu framkvæmd af biskup
um og, líkt og nafnið gefur til
kynna, merkir að skírn ferm
ingarbarnsins sé staðfest og
aðild þess að hinni kristnu trú
með. Fermingin þýðir í raun
að fermingarbarnið tekur trú
á eilíft líf fram yfir trú á dauð
ann og fellst um leið á réttmæti
kristinna gilda.