Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 29.12.2010, Qupperneq 8

Dagblaðið Vísir - DV - 29.12.2010, Qupperneq 8
8 | Fréttir 29. desember 2010 Áramótablað „Er dómskerfið bara fyrir suma og hafa börn útrásarvíkinga verið yf- irheyrð eða eignir þeirra haldlagð- ar?“ spyr maður sem bíður þess hvort hann verði ákærður fyrir fjölmörg skemmdarverk á eigum útrásarvíkinga með því að sletta rauðri málningu á bæði bíla og hús í þeirra eigu. Myndir af skemmd- arverkunum voru sendar fjölmiðl- um af manni sem kallaði sig Skap- Ofsa. Meðal skemmdarverka sem SkapOfsi vann var að ata Humm- er -jeppa Björgólfs Thors Björgólfs- sonar, sem stóð á bílaplani við Höfðabakka, rauðri málningu. Maðurinn sem er grunaður er iðnaðarmaður á fertugsaldri. Hann vill ekki koma fram undir nafni, en neitar allri sök í málinu og segist ekki vera SkapOfsi sjálfur. „Ég velti því fyrir mér hvort mál grunaðra mótmælenda og aktívista hafi for- gang í íslenska réttarkerfinu,“ segir maðurinn. Bæði Steingrímur Wernersson og Hreiðar Már Sigurðsson, sem urðu fyrir barðinu á SkapOfsa, hafa stefnt manninum sem um ræðir og krafist milljóna króna í bætur. Mað- urinn segir Steingrím fara fram á þrjár milljónir króna auk „sértækr- ar refsingar,“ eins og það er orð- að. Hreiðar Már krefst 1,5 milljóna króna. Rauðri málningu var slett á einbýlishús þeirra beggja. Ekki hef- ur náðst í Hreiðar og Steingrím, né í lögmenn þeirra til þess að fá þetta staðfest. Enskumælandi eiginkona Steingríms svaraði í síma hans og sagði hann ekki vilja ræða við blaðamenn. Lögðu hald á vélhjól Hinn grunaði var handtekinn í byrjun þessa árs og er mjög ósátt- ur við aðfarir lögreglu við hand- tökuna. „Þann 15. janúar brutu átta öskrandi lögreglumenn sér leið inn til mín, vopnaðir kylfum og hand- tóku mig harkalega að viðstöddum ungum syni mínum.“ Hann segir lögreglu hafa farið með son sinn á neðri hæð húsnæð- isins þar sem hann var handtek- inn „og yfirheyrðu mig þar í algjöru óleyfi og án aðkomu barnaverndar- nefndar. Síðan lögðu þeir hald á bif- reiðina mína, tölvur, myndavélar og mótorhjól í sex mánuði.“ Hinn meinti SkapOfsi segir hugs- anlega ákæru og komandi réttar- höld yfir sér vera erfiða tilhugsun. „Það er alveg ömurlegt fyrir mig og mína nánustu að þurfa að standa frammi fyrir þessu og það litla sem maður hefur ekki tapað við efna- hagshrunið þarf maður ef til vill að horfa upp á að hverfi í vasa mann- anna sem knésettu þjóðina. Það væri svo sem eftir öðru.“ En fyrst hinn grunaði þvertek- ur fyrir að vera hinn raunverulegi SkapOfsi, hvaða álit hefur hann þá á hinum dularfulla SkapOfsa? „Er SkapOfsi ekki bara að mótmæla á sinn hátt? Eftir allt sem á undan er gengið get ég ekki betur séð en að hann hafi verið að tjá hug sinn um það sem á okkur hefur verið lagt. Málningaslettur eru táknræn mót- mæli.“ Hann segir að auðmönnum hafi aldrei verið hætta búin þrátt fyr- ir skemmdarverkin. „Bjuggu þess- ir menn ekki allir erlendis á þess- um tíma og húsin því væntanlega mannlaus?“ Rannsókn lokið Friðrik Smári Björgvinsson, yfirmað- ur rannsóknardeildar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, gat ekki veitt DV upplýsingar um stöðu málsins og vísaði á Karl Inga Vilbergsson sak- sóknara hjá ákærusviði lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Karl Ingi segir að ekki hafi verið tekin ákvörðun um hvort sá sem er grunaður um að vera SkapOfsi verði ákærður. „Rannsókn á málinu er lokið og það bíður ákvörð- unar um saksókn. Það má vænta þess að það liggi fyrir ákvörðun í janúar,“ segir Karl Ingi. Aðspurður um hvort lögreglan hafi sterk sönnunargögn gegn mann- inum sem liggur undir grun, vill Karl Ingi lítið um það segja. Hann vill heldur ekki tilgreina hvaða sönnun- argögn lögreglan hefur og segir að- eins: „Það eru einhver gögn í þessu.“ Verði meintur SkapOfsi ákærður, verður það fyrir skemmdarverk. Karl Ingi segir hins vegar allt of snemmt að segja til um hvaða refsingu hinn grunaði gæti fengið verði hann fund- inn sekur. n Auðmenn heimta milljónir af meintum SkapOfsa n Bíður ákvörðunar ákæruvaldsins n Hinn grunaði neitar því að vera SkapOfsi sjálfur „Ömurlegt fyrir mig og mína nánustu“ „Er SkapOfsi ekki bara að mótmæla á sinn hátt? Eftir allt sem á undan er gengið get ég ekki betur séð en að hann hafi verið að tjá hug sinn um það sem á okkur hef- ur verið lagt. Valgeir Örn Ragnarsson blaðamaður skrifar valgeir@dv.is Verk SkapOfsa Hummer-jeppi Björgólfs Thors Björgólfssonar stóð á bílaplani á Höfðabakka. Hann var ataður rauðri málningu. 101 gæðastund suðrænir smáréttir – allir drykkir á hálfvirði frá kl. 17.00 til 19.00 alla daga hverfisgata 10 sími. 5800 101 101hotel@101hotel.is www.101hotel.is Maður á sextugsaldri vann 75 milljónir: „Ætla að halda þessu fyrir mig“ Spenna var í loftinu á skrifstofu Happdrættis Háskóla Íslands þegar hringt var í heppinn miðaeiganda sem hlaut 75 milljóna króna vinning í jólaútdrætti happdrættisins. Marg- ar tilraunir þurfti til að ná í manninn þar sem sími hans var á tali. Vinn- ingshafinn, karlmaður á sextugs- aldri, trúði ekki sínum eigin eyrum þegar honum var tilkynnt að hann væri vinningshafinn. „Það er voða erfitt, ég held að það sé voða erfitt skal ég segja þér, að lýsa því hvernig viðbrögðin eru. Maður er ekkert al- veg búinn að átta sig á þessu,“ sagði maðurinn þegar DV fékk að ræða við hann í síma. Maðurinn sagðist einnig ætla að fara aðra leið en aðrir sem hafa unnið stóra happdrættisvinninga í gegnum tíðina og fara vel með peninginn. „Þeir verða fátækir eftir á, þeir fara ekki nógu vel með það sem þeir fá,“ segir hann. „Neinei, það veit enginn um þetta, ég ætla að halda þessu fyrir mig,“ sagði hann aðspurður hvort hann væri með ein- hvern hjá sér til að fagna tíðindun- um með sér. Bryndís Hrafnkelsdóttir, forstjóri Happdrættis Háskóla Íslands, sagði eftir símtalið að hún hafi ekki alveg vitað hvor hafi verið stressaðri, hún eða vinningshafinn, á meðan á sím- talinu stóð. „Þetta kemst örugglega upp í vana,“ sagði hún. „Þetta er alveg rosalegur peningur, en hann var einmitt að segja mér að þau voru fyrir tveimur dögum að tala um hvað myndi gerast ef að þau fengju 75 milljónir.“ Vinningurinn verður lagður inn á bankareiknings vinningshafans. Það verður þó ekki fyrr en á nýju ári, en eins og Bryndís sagði við hann, þá getur hann strax farið að ráðstafa vinningnum í huganum. Vinningur- inn er skattfrjáls með öllu og verður greiddur óskiptur, í beinhörðum peningum, inn á reikning vinnings- hafans. Lífi mannsins hefur óneitan- lega verið umturnað með þessu eina símtali. adalsteinn@dv.is Símtalið Bryndís Hrafnkelsdóttir sést hér ræða við vinningshafann heppna.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.