Dagblaðið Vísir - DV - 29.12.2010, Blaðsíða 15
Innlendur annáll | 15Áramótablað 29. desember 2010
6 Fóru inn án leitarheimildar og handtóku 16 ára son hennar
Sigrún Steinarsdóttir lýsti því í sam-
tali við DV.is þegar lögreglan hringdi
í hana úr síma sextán ára sonar
hennar og tilkynnti henni að þeir
væru komnir heim til að handtaka
strákinn. Handtakan tengdist rann-
sókn lögreglu á ólöglegri dreifingu
á höfundaréttarvörðu efni á netinu.
Lögreglan var ekki með leitarheim-
ild þegar hún tók tölvu og síma son-
ar hennar og leitaði á heimilinu áður
en Sigrún kom heim. „Ég fór bara að
gráta,“ sagði hún aðspurð hvernig
henni varð við að fá símtalið.
7 Logi Geirsson leiddur á brott af lögreglu
DV.is greindi frá því í október að
handboltakappinn Logi Geirsson
hefði farið í skýrslutöku hjá lögregl-
unni. Mynd sem birtist á vefsíð-
unni Flick My Life sýndi lögreglu-
þjón leiða Loga inn í lögreglubíl
við skemmtistað í borginni. Í sam-
tali við DV.is sagðist Logi hafa farið
í skýrslutöku sem hugsanlegt vitni.
Sagði hann að einhverjar stympingar
hefðu átt sér stað í anddyri skemmti-
staðar. Heimildir DV hermdu að Logi
hefði sjálfur átt þátt í stympingun-
um en Logi sagði það vera rangt. „Við
vorum bara tekin í smá skýrslutöku.
Það var ekki meira,“ sagði Logi.
8 Kom að manninum sínum með Catalinu
Áhrifamikil kona í íslenskum stjórn-
málum lenti í því að koma að eigin-
manni sínum í hjónarúminu sínu
með vændiskonunni Catalinu Mikue
Ncogo síðla árs 2008. Þetta er með-
al þess sem kemur fram í bók Jakobs
Bjarnars Grétarssonar og Þórarins
Þórarinssonar blaðamanna um Ca-
talinu en DV.is greindi frá þessu í lok
nóvember.
„Þegar maðurinn hennar bauð mér
heim sagði hann, að konan væri í út-
löndum og því áttum við ekki von á
henni,“ sagði Catalina meðal annars
í bókinni.
9 Joseph Fritzl í viðtali: „Maður er bara heimsfrægur“
Austurríski hrottinn Joseph Fritzl
kom fram í sínu fyrsta viðtali síðan
hann var dæmdur í ævilagt fangelsi
í nóvember. Fritzl var dæmdur fyrir
að nauðga dóttur sinni meira en þrjú
þúsund sinnum, en hann hafði læst
hana í kjallaraíbúð sem hann hafði
útbúið undir íbúðarhúsi sínu. „Mað-
ur er bara heimsfrægur,“ sagði Fritzl
meðal annars í viðtalinu en þegar
hann var spurður hvort hann iðraðist
glæpa sinna var fátt um svör.
10 Jónína: „Stærsta vandamál Gunnars er hvað hann er
myndarlegur“
Jónína Benediktsdóttir, eiginkona
Gunnars Þorsteinssonar í Krossin-
um, kom eiginmanni sínum til varn-
ar í vetur þegar nokkrar konur stigu
fram og sökuðu hann um kynferð-
isglæpi. Jónína sagðist trúa á sak-
leysi eiginmannsins og sagði að hans
stærsta vandamál væri hve mynd-
arlegur hann væri. „Hann er svo
myndarlegur þessi maður. Það er
hans stærsta vandamál hvað hann
er myndarlegur. Hann er eins og
George Clooney.“
Mest lesnu fréttir á DV.is á árinu 2010
ÁR HAMFARA OG UPPGJÖRS
átti því þátt í að veikja Glitni nokkuð
á árinu 2008 og gerði það verkum að
lausafjárkreppa bankans varð enn
dýpri og alvarlegri en ella.
Í tilfelli Sjóvár skildi Milestone
eftir nærri 20 milljarða gat í eigna-
safni Sjóvár og leiddi þetta með-
al annars til þess að íslenska ríkið,
Glitnir og Íslandsbanki þurftu að
leggja Sjóvá til um 16 milljarða króna
á fyrri hluta árs 2009 til að bjarga fé-
laginu frá þroti.
Rannsókn sérstaks saksóknara á
Milestone og Sjóvá stendur enn yfir.
Ekki er búið að yfirheyra Bjarna Ben
vegna viðskiptanna eftir því sem DV
kemst næst.
Janúar-desember
Huldufélög dúkka upp
Allt árið 2010 sögðu DV og aðr-
ir fjölmiðlar fréttir af því að dúkk-
að hefðu upp ýmis huldufélög í eigu
þekktra manna í íslensku viðskipta-
lífi sem skulduðu milljarða króna
eftir bankahrunið 2008. Meðal þess-
ara félaga eru Baugsfélögin Milton
og Sólin skín sem hvort um sig skil-
ur eftir sig á annan tug milljarða í
skuldir án þess að nokkrar eignir séu
inni í þeim. Annað dæmi er eignar-
haldsfélag Milestone, Rákungur, sem
stofnað var til að kaupa um 2 pró-
senta hlut í Glitni fyrir tvo milljarða
króna fyrri hluta árs 2008. Enn eitt
dæmið eru félögin Consensus, sem
keypti skuldabréf FL Group af Glitni
svo hægt væri að lána félaginu meiri
fjármuni, og félagið A-Holding sem
keypti eignir í Lúxemborg af Baugi
fyrir um 27 milljarða króna síðla árs
2007. Svipaða sögu er að segja um
félögin Svartháf og Vafning. Dæmin
eru svo miklu fleiri.
Í nær öllum tilfellum eiga þessi
félög það sameiginlegt að ekkert var
vitað um þau áður en greint var frá
því í fjölmiðlum að þau skulduðu
milljarða króna og hefðu verið notuð
í viðskiptafléttum sem ekki standast
mikla skoðun. Nöfn þessara félaga
eru arfur frá hruninu 2008 og segja
sögur þeirra ansi margt um þá óráð-
síu sem einkenndi íslenskt viðskipta-
líf fyrir hrunið og í aðdraganda þess.
Febrúar
4. febrúar
Sex ára fangelsi fyrir
manndrápstilraun
Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi
Birki Arnar Jónsson, 23 ára Reyk-
víking, í sex ára fangelsi fyrir tilraun
til manndráps. Þann 15. nóvem-
ber 2009 fór Birkar Arnar vopnaður
haglabyssu að húsi við Þverársel í
Breiðholti og skaut fimm skotum að
húsráðanda sem náði að loka útidyr-
unum áður en hann hlaut verra af.
Tvo skotanna fóru í hurðina en þrjú
inn í íbúðina í gegnum rúðu við úti-
dyrnar. Húsráðandi hlaut áverka á
höfði en árásarmaðurinn taldi sig
eiga óuppgerðar sakir við hann.
10. febrúar
Bankarnir afskrifi strax
Í byrjun febrúar setti Árni Páll Árna-
son, þá félags- og tryggingamála-
ráðherra, fram þá skoðun sína að
bankarnir ættu að afskrifa skuldir
fólks og það strax. „Bankarnir hafa
hingað til unnið eftir því að afskrifa
Aska yfir öllu Askan úr
Eyjafjallajökli lagðist yfir jarðir
og híbýli á Suðurlandi og gerði
búskap erfiðan. MYND RÓBERT REYNISSON