Dagblaðið Vísir - DV - 29.12.2010, Blaðsíða 55
minnti helst á helga menn fyrri tíma.
Sonur Péturs er Pétur, doktor í fé-
lagsfræði og guðfræði og prófessor við
Háskóla Íslands. Faðir Péturs biskups
var Sigurgeir Sigurðsson, biskup Ís-
lands.
Birgir Finnsson
forseti Sameinaðs Alþingis
f. 19.5. 1917, d. 1.6. 2010
Birgir fæddist á Ak-
ureyri en ólst upp á
Ísafirði. Hann gekk
ungur til liðs við Al-
þýðuflokkinn, var
bæjarfulltrúi á Ísa-
firði á árunum 1942–
66, eða í sex kjör-
tímabil, var forseti
bæjarstjórnar 1952–62, ritstjóri Skut-
uls 1949–71, var alþm. Vestfjarðakjör-
dæmis 1959–71, var annar varaforseti
sameinaðs Alþingis 1959–63 og forseti
sameinaðs Alþingis 1963–71, eða leng-
ur en nokkur annar í sögu þingsins.
Faðir Birgis var Finnur Jónsson, fé-
lags– og dómsmálaráðherra.
Benedikt Gröndal
fyrrv. forsætisráðherra
f. 7.7. 1924, d. 20.7. 2010
Benedikt var sagn-
fræðingur að mennt.
Hann var ritstjóri
Samvinnunnar
1951–58, Alþýðu-
blaðsins 1959–69,
forstjóri Fræðslumyndasafns ríkisins
1969–78, utanríkisráðherra 1978–79,
forsætisráðherra og utanríkisráðherra
í minnihlutastjórn Alþýðuflokksins
1979–80 og síðan sendiherra til 1991.
Hann var formaður Alþýðuflokksins
1974–80.
Benedikt markaði ekki djúp pólit-
ísk spor. Hann var þó mjög mótfallinn
ríkisstjórnarsamstarfi við sjálfstæðis-
menn 1980 og átti því sinn þátt í stjórn-
arkreppunni þá og myndun stjórnar
Gunnars Thoroddsen.
Ágúst M. Sigurðsson
sóknarprestur og rithöfundur
f. 15.3. 1938, d. 22.8. 2010
Ágúst var sóknar-
prestur í Vallanesi á
Völlum, í Ólafsvík, á
Mælifelli í Skagafirði,
sendiráðsprestur í
Kaupmannahöfn og
var síðan sóknar-
prestur á Prestbakka
í Hrútafirði frá 1989
og prófastur þar um skeið uns hann lét
af störfum vegna hrakandi heilsu árið
2002.
Ágúst var höfundur ritverksins
Forn frægðarsetur I.–IV. bindi, útg.
1976–82; bókaflokks um kirkjustaði á
Vestfjörðum, útg. 2005–2008, og ritsins
Öll þau klukknaköll, að hluta byggðu
á samnefndum útvarpsviðtölum við
prestskonur.
Eftir sr. Ágúst liggja fjöldi ritgerða
og tæplega tvö hundruð útvarpserindi
og fyrirlestrar um Ísland, þjóð, sögu
og menningu, sem hann flutti í Dan-
mörku 1981–89. Þá varð hann lands-
kunnur fyrir þátttöku sína í spurn-
ingakeppnum í útvarpi og sjónvarpi
á sjöunda og áttunda áratug síðustu
aldar.
Guðrún Vilmundardóttir
húsmóðir og stúdent í Reykjavík
f. 7.12. 1918, d. 15.8. 2010
Guðrún fæddist í
Kaupmannahöfn en
ólst upp á Ísafirði
og síðan í Reykjavík.
Hún lauk stúdents-
prófi frá Mennta-
skólanum í Reykja-
vík 1938.
Guðrún var blaðamaður um
skeið en lengst af húsmóðir á mjög
gestkvæmu menningarheimili sínu
og eiginmanns síns, fyrst í Garða-
stræti en lengst af að Aragötu 11.
Hún var dóttir Vilmundar Jóns-
sonar landlæknis og Kristínar Ól-
afsdóttur læknis – eiginkona Gylfa
Þ. Gíslasonar, formanns Alþýðu-
flokksins og menntamálaráðherra
um árabil, og móðir þeirra Þor-
steins heitins heimspekings, Vil-
mundar heitins ráðherra og Þor-
valdar prófessors.
Kristján J. Gunnarsson
borgarfulltrúi og fræðslustjóri í
Reykjavík
f. 29.11. 1919, d. 30.8. 2010
Kristján var skóla-
stjóri barnaskól-
ans á Hellissandi
1943–52, yfirkenn-
ari við Langholts-
skólann í Reykjavík
1952–61, skóla-
stjóri þar 1961–73
og fræðslustjóri í
Reykjavík 1973–82. Hann var borg-
arfulltrúi og borgarráðsmaður fyrir
Sjálfstæðisflokkinn 1970–73 og sat
í fræðsluráði Reykjavíkur í tæpa tvo
áratugi.
Þórunn Gestsdóttir
ritstjóri og sveitarstjóri
f. 29.8. 1941, d. 5.9. 2010
Þórunn var dag-
skrárgerðarmað-
ur hjá RÚV, blaða-
maður á Vísi og
DV, ritstjóri Vik-
unnar, útgefandi
og ritstjóri Far-
vís og starfrækti
útgáfufyrirtæk-
ið Farveg hf., var upplýsinga- og
ferðamálafulltrúi Ísafjarðarbæjar,
aðstoðarmaður bæjarstjóra Ísa-
fjarðar, verkefnastjóri hjá Atvinnu-
þróunarfélagi Vestfjarða hf., sveit-
arstjóri Borgarfjarðarsveitar og
varaborgarfulltrúi fyrir Sjálfstæðis-
flokkinn um skeið.
Gunnlaugur Snædal
yfirlæknir og prófessor
f. 13.10. 1924, d. 7.9. 2010
Gunnlaugur var
læknir leitarstöðvar
Krabbameinsfélags
Reykjavíkur, síðar
Krabbameinsfélags
Íslands 1957–64,
sérfræðingur við
fæðingadeild Land-
spítalans 1959–64,
deildarlæknir þar 1964–75, yfirlækn-
ir 1975–85 og prófessor við lækna-
deild Háskóla Íslands 1985–94.
Gunnlaugur var m.a. formaður
Læknafélags Reykjavíkur, Krabba-
meinsfélags Reykjavíkur og Krabba-
meinsfélags Íslands og síðar heið-
ursfélagi þess, var formaður Félags
norrænna kvensjúkdómalækna, sat
í stjórn Læknafélags Íslands, BHM
og formaður Læknaráðs Landspít-
alans, var varaformaður Heilbrigð-
isráðs Reykjavíkurborgar og forseti
Nordisk Förening för Obstetrik och
Gynekology.
Jóhannes Arason
útvarpsþulur
f. 15.3. 1920, d. 26.9. 2010
Jóhannes var með
þekktustu útvarps-
þulum Ríkisút-
varpsins en hann
sinnti þularstarfinu
á árunum 1956–87.
Þá stundaði hann
prófgæslustörf við
Háskóla Íslands
um langt árabil. Hann var mikill úti-
vistar- og veiðimaður og söng með
blönduðum kórum frá tvítugsaldri,
s.s. Útvarpskórnum og Söngsveitinni
Fílharmóníu.
Hrafnkell Helgason
yfirlæknir á Vífilsstöðum
f. 28.3. 1928, d. 19.10. 2010
Hrafnkell var yf-
irlæknir á Víf-
ilsstaðaspítala
1968–98, starfaði
jafnframt á lyflækn-
ingadeild Landspít-
alans 1976–98 og
var hann dósent í
lungnasjúkdómum
við læknadeild Háskólans 1969–
98. Hann var mikill áhugamaður
um Sturlungu, þekkti það rit betur
en flestir aðrir, vakti þjóðarathygli
vegna sérþekkingar sinnar í þeim
efnum og hélt fjölda fyrirlestra og
sinnti leiðsögnum í Sturlungaferð-
um.
Hilmar Ingimundarson
hæstaréttarlögmaður í Reykjavík
f. 27.11. 1938, d. 22.10. 2010
Hilmar lauk emb-
ættisprófi í lög-
fræði við Háskóla
Íslands 1965, öðl-
aðist hdl.-réttindi
1966 og hrl.-rétt-
indi 1970. Hann
starfaði á lögfræði-
skrifstofu Þorvalds
Þórarinssonar hrl. á árunum 1966–
74 en starfrækti eigin lögfræðistofu í
Reykjavík frá 1974.
Hilmar var alla tíð mikill unn-
andi fagurbókmennta, var vel heima
í persónufræði og þjóðfræði og átti
stórt einkabókasafn.
Ingi R. Jóhannsson
skákmeistari og löggiltur endurskoðandi
f. 5.12. 1936, d. 29.10. 2010
Ingi lauk verslun-
arskólaprófi, öðl-
aðist löggildingu
í endurskoðun og
starfaði við endur-
skoðun nánast allan
sinn starfsferil.
Ingi var um
langt árabil í allra
fremstu röð skákmanna hér á landi.
Hann varð Íslandsmeistari í skák
1956, 1958, 1959 og 1963, varð skák-
meistari Reykjavíkur sex sinnum á
árunum 1954–61 og skákmeistari
Norðurlanda 1961. Ingi keppti marg-
sinnis á alþjóðlegum skákmótum,
þar á meðal ólympíumótum í skák.
Hann keppti átta sinnum fyrir hönd
Íslands á árunum 1954–82 og þar af á
fyrsta borði 1958 og 1968.
Egill Ágúst Jacobsen
yfirlæknir við Landspítalann
f. 19.8. 1933, d. 26.10. 2010
Egill var sérfræð-
ingur í þvagfæra-
skurðlækningum
við Landspítalann
frá 1977, var skip-
aður yfirlæknir í
þvagfæraskurð-
lækningum við
handlækningadeild
Landspítalans 1990 og starfaði þar til
eftirlaunaaldurs. Þá var hann einn af
stofnendum Læknahússins hf, árið
1983. Hann sinnti kennslu lækna-
nema við Háskólasjúkrahúsið í Lundi
og við læknadeild Háskóla Íslands.
Þá var hann skipaður prófdómari í
handlæknisfræði við Háskóla Íslands
1979.
Guðmundur Jónsson
píanóleikari
f. 13.11. 1929, d. 11.11. 2010
Guðmundur stundaði nám í píanó-
leik hjá Gunnari Sigurgeirssyni, lagði
stund á píanónám við Tónlistarskól-
anum í Reykjavík
og lauk þaðan prófi,
var í einkatímum
hjá Árna Kristjáns-
syni og Rögnvaldi
Sigurjónssyni, hóf
nám við Tónlistar-
háskólann í París
og lauk þaðan prófi
1953.
Guðmundur var píanókennari við
Tónlistarskólann í Reykjavík, skóla-
stjóri Tónlistarskóla Rangæinga,
söngkennari barna- og unglingaskól-
ans á Hvolsvelli og Hellu og píanó-
kennari við Tónlistarskólann í Kópa-
vogi 1971–94 er hann fór á eftirlaun.
Haukur Lárus Hauksson
blaðamaður í Reykjavík
f. 28.6. 1957, d. 21.11. 2010
Haukur Lárus
fæddist í Reykja-
vík og ólst upp í
Langholtshverfinu.
Hann lauk stúd-
entsprófum frá MT
og stundaði nám í
sálfræði við Háskóla
Íslands og Kaup-
mannahafnarháskóla.
Haukur Lárus var fréttaritari DV
í Kaupmannahöfn, blaðamaður við
DV 1988–2000 og 2001–2003 og ráð-
gjafi hjá AP- Almannatengslum frá
ársbyrjun 2004.
Haukur Lárus sat í stjórn Blaða-
mannafélags Íslands um skeið, var
formaður Félags blaðamanna á DV
og fór lengi fyrir ritstjórninni í starfs-
manna- og fagmálum hennar. Hann
var virkur í baráttu sinni við krabba-
mein, ferðaðist m.a. um landið með
fyrirlestur um glímu sína við sjúk-
dóminn og var einn stofnenda félags-
ins Framfarar en það stendur fyrir
átakinu Karlar og krabbamein.
Eftirlifandi eiginkona Hauks Lár-
usar er Hera Sveinsdóttir og eru börn
þeirra tvö.
Ingibjörg Rannveig
Guðmundsdóttir
formaður Landssamb. verslunarmanna
f. 19.8. 1949, d. 24.11. 2010
Ingibjörg fæddist
í Reykjavík og ólst
þar upp. Hún lauk
stúdentsprófi frá
Verslunarskóla Ís-
lands 1971 og starf-
aði lengi hjá Flug-
leiðum.
Ingibjörg sat í
stjórn Verslunarmannafélags Reykja-
víkur frá 1975, var formaður Lands-
sambands íslenskra verslunarmanna
frá 1989, fyrst og ein kvenna, sat lengi
í sambandsstjórn ASÍ, í miðstjórn
ASÍ, var varaforseti ASÍ 1992–2000
og 2003–2010, var aðalmaður í stjórn
Lífeyrissjóðs verslunarmanna 1995–
2009 og sat í skólanefnd Verzlunar-
skóla Íslands frá 1979, lengst af sem
varaformaður.
Ingibjörg var kona sátta og lausna
og barðist ötullega fyrir réttindum
launafólks og jafnrétti.
Trúin átti stóran sess í lífi hennar
og var hún formaður sóknarnefndar
Neskirkju er hún lést.
Þau kvöddu á árinu
n Þjóðþekktar persónur sem létust árið 2010
Minning | 55Áramótablað 29. desember 2010
Frá útför sr. Ágústar M. Sigurðssonar
Þá var viðhaldið þeirri gömlu hefð, að
líkfylgdin gengi úr Dómkirkjunni í Hólavalla-
garð við Suðurgötu.