Dagblaðið Vísir - DV - 29.12.2010, Blaðsíða 30
30 | Annáll 2011 29. desember 2010 Áramótablað
1. janúar – 1. mars
Sérstakur saksóknari
Ólafur Þór Hauksson, sérstakur saksóknari efnahagshruns-
ins, hefur boðað að ákærur verði birtar á hendur sumum
þeirra sem grunaðir eru um efnahagsbrot og gerir ráð fyrir að
það gerist snemma árs. Saksóknarinn segist hafa um 80 mál
til rannsóknar en hann hefur hingað til aðeins skilað ákærum
í einu máli. Ljóst má vera að meintir fjárglæframenn skjálfa á
beinunum.
13. - 30. janúar
HM í handknattleik
Daganna 13. – 30. janúar má
búast við að íslenska þjóð-
in standi á öndinni. Heims-
meistaramótið í handknattleik
hefst eftir um tvær vikur og þar
eru Íslendingar að sjálfsögðu
meðal þjóða. Keppnin verður
aldrei þessu vant sýnd á Stöð 2
Sport en einhverjir leikir verða
í opinni dagskrá. Íslendingar
leika í riðli með Noregi, Austurríki, Ungverjalandi, Brasilíu og
Japan.
Janúar/febrúar
Icesave úr sögunni?
Alþingi afgreiðir Icesave í lok janúar
eða byrjun febrúar. Samþykki Al-
þingi samninginn reynir á hvort for-
seti Íslands, Ólafur Ragnar Gríms-
son, fullgildir lögin með undirskrift
sinni eða synjar þeim staðfestingar.
Ef hann gerir það fer málið í dóm
kjósenda – aftur.
15. febrúar
Stjórnlagaþing kemur saman
Stjórnlagaþing, skipað 25 fulltrúum tekur til starfa eigi síðar
en þennan dag. Þinginu ber lögum samkvæmt að koma sam-
an til að endurskoða stjórnarskrá íslenska lýðveldisins.
Þinginu er ætlað að undirbúa frumvarp að endurbættri
stjórnarskrá og hafa niðurstöður þjóðfundar 2010 til hliðsjón-
ar við þá vinnu.
15. apríl
Stjórnlagaþing
skilar tillögum
Þennan dag á stjórnlagaþing
að ljúka störfum en mögu-
legt er að starfstími þess verði
lengdur. Þegar stjórnlagaþing
hefur samþykkt frumvarp að endurbættri stjórnarskrá verð-
ur það sent Alþingi til meðferðar. Hin endurskoðaða stjórn-
arskrá tekur ekki gildi nema uppfyllt séu skilyrði núgildandi
stjórnarskrár og samkvæmt henni hefur Alþingi síðasta orðið
í tveimur afgreiðslum með kosningum á milli.
29. apríl
Konunglegt brúðkaup
Vilhjálmur prins og Kate Middleton
verða gefin saman með pompi og prakt
í Lundúnum. Vilhjálmur er eldri sonur
Karls prins og Díönu prinsessu og er
næstur til ríkiserfða á eftir föður sínum.
Þau skötuhjú trúlofuðu sig í Keníu okt-
óber.
13. maí
Harpan opnuð
Tónlistarhúsið Harpan
verður opnað formlega
þennan dag, ef áætlanir
ná fram að ganga. Hús-
ið verður vígt 4. maí en
talið er að kostnaður við
bygginguna muni hlaupa
á litlum 30 milljörðum
króna.
14. maí
Eurovision
Söngvakeppni allra söngvakeppna, Eurovision, fer fram í
Þýskalandi. Ekki liggur ljóst fyrir hvaða lag og hvaða flytjend-
ur verða fulltrúar Íslands en undankeppnirnar fara fram þann
10. og 12. maí. Frammistaðan í undankeppninni ræður því
svo hvort Íslendingar komast á svið á lokakvöldinu, 14. maí.
11. júní
Íslendingar
á Evrópumóti
Ísland hefur leik í Evr-
ópukeppni U21-lands-
liða í knattspyrnu karla.
Liðið leikur gegn Hvíta-
Rússlandi þann 11. júní,
gegn Sviss þann 14.
júní og gegn gestgjöf-
um Danmerkur þann
18. júní. Þetta er í fyrsta
sinn sem U21-landslið
Íslands kemst í lokakeppni Evrópumóts í knattspyrnu.
17. júní
Háskólinn 100 ára
Háskóli Íslands er ríkisháskóli sem var stofnaður á þessum
degi árið 1911. Fjörutíu og fimm nemendur voru við nám
fyrsta starfsárið en eru nú á bilinu þrettán til sextán þúsund.
Rektor skólans er Kristín Ingólfsdóttir, prófessor í lyfjafræði.
1. júlí
Pólverjar taka við ESB
Pólverjar taka forsæti í Evrópusambandinu af Ungverjum sem
stýra munu sambandinu fyrri helming ársins. Pólverjar eru
okkur Íslendingum hliðhollir og buðust snemma eftir efna-
hagshrunið til að lána okkur pening – ekki er óhugsandi að
það liðki fyrir samningaviðræðum um inngöngu Íslands í ESB.
Afar ólíklegt er þó að þeim viðræðum ljúki í valdatíð Pólverja.
6. júlí
Vettvangur vetrarólympíuleika
Alþjóðaólympíunefndin ákveður hvaða þjóð mun halda vetr-
arólympíuleikana 2018. Þess má geta að vetrarólympíuleik-
arnir 2014 verða haldnir í Rússlandi – þar sem Íslendingar
munu vafalaust eiga sína fulltrúa.
31. ágúst
AGS hverfur á braut
Samstarfinu við Alþjóðagjald-
eyrissjóðinn lýkur í lok ágúst.
Samstarfið hefur sætt mikilli
gagnrýni og þingmenn úr ýms-
um flokkum hafa talað fyrir því
að segja því upp. Alþjóðagjald-
eyrissjóðurinn kom til skjal-
anna skömmu eftir banka-
hrun en stofnunin hefur það
að markmiði sínu að minnka
atvinnuleysi og auka hagvöxt í
þeim ríkjum sem þeir vinna með. Það gerir hún með ráðgjöf
og lánveitingum til niðurgreiðslu skulda.
Í kjölfarið má búast við því að gjaldeyrishöftin verði afnumin.
12.-16. október
Ísland heiðursgestur í Frankfurt
Ísland verður heiðursgestur Bókasýningarinnar í Frankfurt
árið 2011. Bókasýningin í Frankfurt er stærsta bókasýning
og kaupstefna í heimi og sú langþekktasta. Þar gefst einstakt
tækifæri til að koma á framfæri íslenskri bókmenningu, bæði
við Þjóðverja og bókaheiminn allan, og líka til að kynna ís-
lenska menningu og listir almennt.
24. desember
Enn styttri jól
Jólin verða vinnandi
fólki enn verri en þau
voru núna. Þannig
verður aðfangadagur á
laugardegi og jóladag-
ur á sunnudegi. Mögu-
lega eru einhverjir í fríi
á mánudeginum 26.
desember. Að sama
skapi verður gamlárs-
dagur á laugardegi og
nýársdagur á sunndegi. Gera má ráð fyrir því að atvinnurek-
endur fagni.
31. desember
Bandaríkjaher
yfirgefur Írak
Stríðið í Írak hófst þann
20. mars 2003 með innrás
bandalags viljugra þjóða
– sem Ísland var aðili að –
með Bandaríkin og Bret-
land í broddi fylkingar. Nú
er stefnt að því að hersetu
Bandaríkjanna ljúki þann
31. desember á næsta ári. Þess má geta að innan bandaríska
hersins þekkist stríðið undir heitinu Operation Iraqi Freedom
eða „Aðgerð frelsi í Írak“.
baldur@dv.is
DV hefur tekið saman helstu viðburði sem fyrirséð er að gerist á næsta ári:
Þetta gerist árið 2011