Dagblaðið Vísir - DV - 29.12.2010, Blaðsíða 21
Fréttir | 21Áramótablað 29. desember 2010
FLEYGUSTU UMMÆLIN 2010
Apríl 2010 - Stefna slitastjórnar Glitnis
Hótanir Jóns Ásgeirs
„Þetta eru málin nenni
ekki að bögga ykkur á
hverjum degi með þessu
enda ætlast ég til að CEO
þessara félaga vinni sín
mál ef við komum þessum
málum frá þá er borðið
mitt hreint. Annars er
kannski best að ég verði
starfandi stjórnarformaður GLB.“
n Jón Ásgeir Jóhannesson, fjárfestir og þáverandi stjórnarformaður
FL Group, sendi tölvupósta til Lárusar Welding sumarið 2008 þar sem
hann ýtti á eftir því að gengið yrði frá milljarða króna fjármögnun á
viðskiptum með hlutabréf í bresku skartgripakeðjunni Aurum.
Slitastjórn Glitnis telur að þessi tölvupóstur, og fleiri frá Jóni Ásgeiri,
renni stoðum undir að hann hafi verið skuggastjórnandi hjá Glitni.
Maí 2010 - ÍNN
Ólöf og skýrslan
„Þessi rannsóknarskýrsla
og þetta allt saman er að
þvælast eitthvað fyrir
okkur tímabundið.“
n Ólöf Nordal, þingmaður Sjálfstæðis-
flokksins, tjáði sig um rannsóknarskýrsl-
una og framtíðarsýn sína á sjónvarps-
stöðinni ÍNN í maí, rétt eftir útgáfu
skýrslunnar.
Nóvember 2010 - DV
Gunnar eins og Clooney
„Hann er svo myndarlegur þessi maður. Það er
hans stærsta vandamál hvað hann er mynd-
arlegur. Hann er eins og George Clooney. “
n Jónína Benediktsdóttir, eiginkona Gunnars í Krossinum, tjáði sig
um eiginmann sinn í samtali við DV. Nokkrar konur höfðu stigið fram og
ásakað Gunnar um kynferðislega áreitni. Flestar ávirðingarnar á hendur
Gunnari snérust um að hann hefði áreitt stúlkurnar þegar þær voru
ungar að aldri. Jónína var hins vegar með svör á reiðum höndum um
ástæðurnar fyrir ásökununum.
Apríl 2010 - DV
Að ræna þjóð
„Stundum er vitnað í bókartitilinn „The Best
Way to Rob a Bank is to Own One“ (Besta
leiðin til að ræna banka er að eiga hann). Það
mætti ef til vill orða þetta svo að leiðin til að
ræna þjóð sé að eiga banka.“
n Rannsóknardómarinn Eva Joly sagði í viðtali við DV að íslenska
þjóðin hefði verið rænd af eigendum bankanna. Þar lék hún sér með
fræg orð sem bandaríski fræðimaðurinn William Black notaði meðal
annars sem titil á eina af bókum sínum um fjármálamisferli, The Best
Way to Rob a Bank is to Own One. Joly var afar áberandi í þjóðmálaum-
ræðunni þar til hún skyndilega sagði af sér sem ráðgjafi sérstaks
saksóknara síðla árs.
Júní 2010 - DV
Al-Thani
viðskiptin bull
„Þegar ég var búinn að sjá
þetta bull allt saman þá
missti ég algerlega trú á
bankanum og þá ákvað ég
að selja öll mín hlutabréf og
allt sem ég á í bankanum...“
n Halldór Bjarkar Lúðvígsson, starfsmað-
ur Kaupþings, var yfirheyrður hjá embætti
sérstaks saksóknara í tengslum við rannsóknina á málefnum
Kaupþings. DV greindi frá yfirheyrslunni þar sem Halldór Bjarkar sagði
meðal annars að hann hefði selt allt sem hann átti í bankanum í
kjölfarið á Al-Thani-viðskiptunum sem hann kallaði bull.
Apríl 2010 - Rannsóknarskýrsla Alþingis
Sigurður launalági
„Þau laun sem ég hef verið með
hjá þessum banka síðan 2003
hafa í öllum samanburði við þá
sem ég ber mig saman við
verið óheyrilega lág. Það er
nefnilega þannig.“
n Sigurður Einarsson, stjórnarformaður
Kaupþings, sagðist hafa verið með lág laun
hjá Kaupþingi í viðtali við rannsóknarnefnd
Alþingis. Sigurður var með um 140 milljónir
króna í árslaun hjá Kaupþingi árið 2007, eða
um 12 milljónir króna á mánuði. Ofan á þessi
laun bættust svo bónusar og starfstengd
fríðindi. Launin Sigurðar ein og sér voru um
12 sinnum hærri en laun forsætisráðherra
Íslands. Samt taldi Sigurður sig hafa fengið
lág laun.
Júní 2010 - DV
Hraði
Björ-
gólfs
Thors
„Ég réð ekki
við hrað-
ann.“
n Björgólfur Thor Björgólfsson, fjárfestir og
fyrrverandi eigandi Landsbankans, viðurkenndi í
viðtali við DV að hann hefði farið offari í viðskipta-
lífinu á árunum fyrir hrunið. Hann sagðist ekki hafa
ráðið við hraðann sem einkenndi viðskiptalífið á
þessum árum og að hann hefði misst yfirsýnina yfir
umsvif sín.
Júní 2010-DV
Velgengni Hraðbrautar
„Þetta er búið að ganga ákaflega vel hjá
okkur.“
n Ólafur Johnson, eigandi og skólastjóri Menntaskólans Hraðbraut-
ar, þegar DV ræddi við hann um tugmilljóna arðgreiðslur sem hann
hafði tekið út úr skólanum á síðustu árum. Ríkisendurskoðun skoðaði
bókhald Hraðbrautar og komst að raun um arðgreiðslurnar og
lánveitingarnar í kjölfarið. Við rannsóknina kom í ljós að um 50
prósent lægra hlutfall af tekjum skólans hafði farið í launagreiðslur
til kennaranna sem kvartað höfðu sáran undan því að vera á lægri
launum en gert er ráð fyrir í kjarasamningum Kennarasambands
Íslands.
Nóvember 2010 - Kastljós RÚV
Lofaði að svíkja loforðin
„Ef einhver hefur kosið mig út á það,
haldið að ég myndi einhvern veginn
redda málum, þá verð ég að biðjast
afsökunar á því... Ég sagði líka að ég
myndi svíkja öll loforð.“
n Jón Gnarr, borgarstjóri í Reykjavík, lofaði því í kosninga-
baráttunni fyrir sveitarstjórnarkosningar á árinu að hækka
ekki útsvar. Hann lofaði einnig ókeypis handklæðum í
sundlaugar, en sveik það og stytti opnunartíma sundlaug-
anna. Hann var spurður út í þessi kosningaloforð sín í
Kastljósinu og vísaði Jón þá til þess að hann hefði einnig
lofað að svíkja öll loforð sín. Jón getur því alltaf falið sig á
bak við það kosningaloforð sitt.