Dagblaðið Vísir - DV - 29.12.2010, Side 24
24 | Erlendur annáll 29. desember 2010 Áramótablað
ist þess að hann verði handsam-
aður og jafnvel líflátinn. Nú bíður
Assange réttarhalda í Bretlandi,
þar sem skorið verður úr um hvort
hann verði framseldur til Svíþjóðar
þar sem hann er sakaður um kyn-
ferðisbrot. Bradleys Mannings bíða
einnig réttarhöld, en hann mun að
öllum líkindum verða dæmdur fyrir
landráð.
Desember
10. desember
Liu Xiaobo hlýtur friðarverðlaun
Nóbels
Á konunglegri verðlaunaathöfn í
Osló stóð stóll Lius Xiaobos auður,
en hann er handhafi friðarverð-
launa Nóbels árið 2010. Liu Xiaobo
situr sem fastast í fangelsi í Kína,
dæmdur fyrir niðurrifsstarfsemi
gegn ríkinu. Hans helsti glæpur er
að hafa krafist tjáningarfrelsis. Kín-
versk stjórnvöld settu mikinn þrýst-
ing á helstu bandamenn sína að
sniðganga athöfnina og urðu 19 ríki
við því. Mikill viðbúnaður var auk
þess í helstu borgum í Kína og var
lokað fyrir fréttaflutning erlendra
miðla daginn sem athöfnin fór fram.
Xiaobo er fyrsti friðarverðlaunahaf-
inn sem er fjarverandi við athöfnina
síðan nasistar komu í veg fyrir að
þýski blaðamaðurinn Carl von Oss-
ietzky gæti tekið við verðlaununum
árið 1935.
14. desember
Silvio Berlusconi verst falli
Forsætisráðherra Ítalíu, Silvio
Berlusconi, náði að standa af sér
vantrauststillögu á ítalska þing-
inu með miklum naumindum. Alls
studdu tillöguna 311 þingmenn, en
314 vörðu ríkisstjórn Berluscon-
is. Ríkisstjórnin stendur þrátt fyrir
það höllum fæti eftir að samstarfs-
maður Berlusconis til margra ára,
Gianfranco Fini, sagði sig úr henni
og stofnaði sinn eigin flokk. Líklega
verða haldnar kosningar á næsta
ári sem munu skera úr um framtíð
glaumgosans frá Sardiníu, sem hef-
ur verið áberandi í fjölmiðlum á ár-
inu vegna sífelldra kynlífshneyksla.
Hann kippti sér lítið upp við úrslit
vantrauststillögunnar og sagði ein-
faldlega: „Tutto bene!“
Þeir sem kvöddu á árinu 2010
11. janúar lést franski leikstjórinn Éric
Rohmer, fæddur 1920. Hann var einn
þekktasti leikstjóri frönsku nýbylgjunnar.
22. janúar lést breska leikkonan Jean
Simmons, fædd 1929. Hún átti sitt
gullaldartímabil á 5. og 6. áratug síðustu
aldar og hlaut óskarsverðlaun árið 1969.
27. janúar lést bandaríski rithöfundurinn
J. D. Salinger, fæddur 1919. Hann
öðlaðist heimsfrægð fyrir skáldsöguna
Bjargvættinn í grasinu sem kom út árið
1951.
10. febrúar lést bandaríski
stjórnmálamaðurinn Charlie Wilson,
fæddur 1933. Hann varð frægur fyrir að
styðja Afgana í stríði þeirra við Sovétmenn
á 9. áratug síðustu aldar.
11. febrúar lést breski tískuhönnuðurinn
Alexander McQueen, fæddur 1969. Hann
var risi í tískuiðnaðinum en ákvað að svipta
sig lífi.
10. mars lést kanadíski leikarinn Corey
Haim, fæddur 1971. Haim var einstaklega
vinsæll á 9. áratug síðustu aldar ásamt vini
sínum Corey Feldman.
8. apríl lést breski þúsundþjalasmiðurinn
Malcolm McLaren. Hann lét víða til sín
taka en verður sennilega minnst fyrir að
hafa verið umboðsmaður pönksveitarinnar
Sex Pistols.
10. apríl lést forseti Póllands, Lech
Kaczyñski, fæddur 1949. Kaczyñski lést
í flugslysi ásamt áhöfn og farþegum
forsetaflugvélarinnar sem var á leið í
minningarathöfn í Smolensk í Rússlandi.
19. apríl lést bandaríski rapparinn
Guru, fæddur 1969. Guru var einn af
frumkvöðlunum í svokölluðu bófarappi.
21. apríl lést spænski íþróttafrömuðurinn
Juan Antonio Samaranch, fæddur 1920.
Hann var forseti Ólympíusambandsins
lengst allra frá upphafi, frá 1980 til 2001.
9. maí lést bandaríska leik- og söngkonan
Lena Horne, fædd 1917. Horne vann til
fjölda verðlauna á ferlinum og var einnig
þekkt fyrir baráttu sína fyrir réttindum
minnihlutahópa.
29. maí lést bandaríski leikarinn Dennis
Hopper, fæddur 1936. Hopper átti langan
og farsælan feril sem leikari og leikstýrði
einnig hinni byltingarkenndu kvikmynd
Easy Rider
18. júní lést portúgalski rithöfundurinn
José Saramago, fæddur 1922. Vegna
trúleysis var hann umdeildur meðal hinnar
kaþólsku portúgölsku þjóðar. Hann hlaut
bókmenntaverðlaun Nóbels 1998.
19. júní lést súdanski
körfuknattleiksmaðurinn Manute Bol,
fæddur 1962. Eftir körfuknattleiksferil sinn
barðist Bol ötullega fyrir mannréttindum
í Súdan.
12. júní lést bandaríski
myndasöguhöfundurinn Harvey
Pekar, fæddur 1939. Um Pekar var gerð
kvikmyndin American Splendor, en hann
gerði einnig samnefndar myndasögur.
29. september lést bandaríski
leikarinn Tony Curtis, fæddur 1925. Curtis
lék í yfir 60 kvikmyndum, meðal annars
Some Like It Hot ásamt Jack Lemmon og
Marilyn Monroe.
10. október lést bandaríski
sálarsöngvarinn Solomon Burke,
fæddur 1940. Hann hafði gífurleg áhrif
á tónlistarsöguna og er þekktastur fyrir
lagið Everybody Needs Somebody (To
Love).
27. október lést argentínski
stjórnmálamaðurinn Néstor Kirchner,
fæddur 1950. Hann var forseti Argentínu
2003 til 2007.
28. október lést grænlenski
stjórnmálamaðurinn Jonathan
Motzfeldt, fæddur 1938. Hann var fyrsti
forsætisráðherra Grænlands.
2. nóvember lést rússneski
hljómsveitarstjórnandinn Rúdolf Barshai,
fæddur 1924. Einn frægasti útsetjari verka
Prokoffév og Sjostakovits.
28. nóvember lést kanadíski leikarinn
Leslie Nielsen, fæddur 1926. Hann var
einstaklega virkur á ferli sínum en öðlaðist
ekki heimsfrægð fyrr en hann sneri sér að
leik í grínmyndum á borð við Airplane og
Naked Gun.
13. desember lést bandaríski erindrekinn
Richard Holbrooke, fæddur 1941.
Hann, ásamt Carl Bildt, samdi um frið á
Balkanskaga á 10. áratug síðustu aldar.
15. desember lést bandaríski leikstjórinn
Blake Edwards, fæddur 1922. Hann
leikstýrði fjölda mynda en þekktastar eru
myndirnar um bleika pardusinn.
17. desember lést bandaríski
tónlistarmaðurinn Captain Beefheart,
réttu nafni Don van Vliet, fæddur 1941.
Hann fór sínar eigin leiðir í tónlist og naut
virðingar fjölda tónlistarmanna.
Lech Kaczyñski Blake Edwards Jonathan Motzfeldt Manute Bol
Tómur stóll Handhafi
friðarverðlauna Nóbels
situr í fangelsi.