Dagblaðið Vísir - DV - 29.12.2010, Síða 68

Dagblaðið Vísir - DV - 29.12.2010, Síða 68
68 | Sport 29. desember 2010 Áramótablað Fabio Capello – landsliðsþjálfari Englands England var nánast fullkomið í undankeppni heimsmeistaramótsins og eins og alltaf þegar kom að HM, eins og í sumar, voru enskir orðnir nokkuð bjartsýnir. Mótið byrjaði þó ekki vel og gerði liðið jafntefli gegn Bandaríkjunum eftir skelfileg mistök Roberts Green. England rétt skreið í undanúrslitin en var þar kjöldregið af frábæru þýsku liði. Capello missti allra stjórn á liðinu og andrúmsloftið í klefanum varð þungt. Capello tókst aldrei að virkja Rooney og Gerrard sem á endanum varð til þess að England gat ekkert og setti mótið stóra dæld á annars fullkominn þjálfaraferil Capellos. Capello, Rooney, Abramovic og franska landsliðið. Hvað eiga þessir menn og lið sameiginlegt? Þetta eru mennirnir og liðið sem lofuðu svo miklu fyrir árið 2010 en skiluðu svo engu. The Sun tók saman. Fótboltafloppin 2010 Joe Cole – miðjumaður Liverpool Liverpool-menn hoppuðu hæð sína í loft upp hver á fætur öðrum þegar staðfest var að Joe Cole hefði skrifað undir samning við liðið. Tímabilið hefur þó breyst í martröð fyrir hann en í fyrsta leik fékk Joe Cole rautt spjald. Auk þess hefur hann verið mikið meiddur og ekkert getað þegar hann loksins spilar. Félagsskiptin hafa ekki gert honum svo nokkuð gott. Alla vega ekki enn sem komið er. Roman Abramovic – eigandi Chelsea Þrátt fyrir að Carlo Ancelotti hafi komið Chelsea aftur á toppinn á Englandi á síðasta tímabili og unnið bæði deild og bikar gat Abramovic ekki stillt sig um að hræra aðeins í undirstöðum félagsins. Yfirmaður knattspyrnumála, Frank Arnesen, var rekinn og yfirgefur félagið eftir tímabilið og þá var aðstoðarstjóra liðsins, Ray Wilkins, sagt upp án ástæðu. Fyrir utan það hefur Ancelotti ekki fengið jafnmikið af peningum og aðrir stjórar Chelsea undanfarin ár. Sést það hvað best á varamannabekk Chelsea síðustu vikur sem er ekki burðugur. Wayne Rooney – framherji Manchester United Rooney skoraði 34 mörk á síðasta tímabili en átti þó afar erfitt uppdráttar vegna meiðsla undir lok tímabilsins. Miklar vonir voru þó bundnar við hann á HM vegna markanna sem hann skoraði. Á HM tókst honum þó ekki að skora mark og hefur hann aðeins skorað eitt mark síðan eftir síðasta tímabil. Það kom úr vítaspyrnu gegn botnliði West Ham. Rooney sagðist svo vilja fara fyrr í haust en var talið hughvarf að því talið er með launahækkun sem tryggir honum 250.000 pund á viku. Franska landsliðið á HM Sjaldan hefur nokkurt landslið orðið sér og þjóð sinni til jafnmikillar skammar og Frakkland á HM. Fyrir utan að geta nákvæmlega ekki neitt stóð liðið í innbyrðis deilum og neitaði meira að segja að æfa. Nicolas Anelka kallaði þjálfarann hóruson og komust stórstjörnur Frakka ekki einu sinni upp úr riðli. Laurents Blanc bíður erfitt verkefni að reisa þessar rústir við sem nýr landsliðsþjálfari. 25% afsláttur af hvítum háglans innréttingum Sérhæfum okkur í innréttingum fyrir heimili á lágmarksverði

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.