Dagblaðið Vísir - DV - 29.08.2011, Blaðsíða 29

Dagblaðið Vísir - DV - 29.08.2011, Blaðsíða 29
Hamborgarahrottar Það er ekki gáfulegt að deila við Wahlberg-bræður. Fólk | 29Mánudagur 29. ágúst 2011 Ögrandi Rihanna hefur ekki verið þekkt fyrir annað en að vera ögrandi en hún segist þó ekki hafa komið nálægt kynlífsmyndbandinu. Kris Jenner fær vinnu í The Talk: Fræg fyrir að vera mamma Jenner er hvað þekktust fyrir að vera móðir ofurskutlunnar Kim Kardashian. Mamma Kardashian þáttarstjórnandi Rihanna og J. Cole segja Hustler ljúga: Bandaríski klámframleiðandinn Hustler segist vera með eintak af upptöku af kynlífi söngkonunnar Rihönnu og rapparans J. Cole. Upptakan á samkvæmt því sem Hustler segir að hafa verið á síma J. Cole sem týndist nýverið. Söngkonan og rapparinn hafa bæði sent frá sér yfirlýsingu á samskiptasíðunni Twitter þar sem þau neita tilvist upptökunn- ar. Þau staðfesta þó að sími J. Cole hafi týnst en að það hafi ekki verið nein kynlífsupptaka í símanum. Af yfirlýsingunum að dæma hefur Rihanna mun meiri húmor fyrir málinu en J. Cole. Merkir hún skilaboðin á Twitter #slow- newsday, sem á íslensku gæti útlagst sem gúrkutíð í fjölmiðlum. J. Cole kallar hins veg- ar bara eftir því að fyrirtækið hætti að ljúga. Rihanna og J. Cole hafa þekkst í nokkurn tíma en J. Cole sendi frá sér endurhljóðbland- aða útgáfu af Rihönnu-laginu S&M í byrjun árs. Þá fór rapparinn með Rihönnu á tón- leikaferðalag um Norður-Ameríku í sumar. Kynlífs- mynd- band með Rihönnu? Raunveruleikasjónvarpsstjarnan Kris Jenner kem-ur ný inn sem þáttarstjórnandi í bandaríska sjón-varpsþættinum The Talk. Þátturinn er sýndur á sjónvarpsstöðinni CBS en nýverið losnuðu tvær stöður í þættinum eftir að stjórnendurnir Leah Remini og Holly Robinson Peete ákváðu að endurnýja ekki samninga sína við sjónvarpsstöðina. Jenner verður meðstjórnandi í þáttunum fyrstu tvær vikurnar af næstu þáttaröð. Hún verður þar ásamt Julie Chen, Söru Gilbert, Kelly Osbourne og útvarpskonunni Sheryl Underwood, en hún er einnig ný í þáttunum. Ef allt gengur upp mun Jenner fá fast sæti við stjórnenda- borðið. Jenner verður einnig gestastjórnandi í spjallþætt- inum The Today Show síðar á þessu ári. Það er ekki ofsögum sagt að Jenner elski sviðsljósið og því kemur þessi tilkynning frá CBS ekki á óvart. Hún hef- ur verið raunveruleikasjónvarpsstjarna í nokkrum þátt- unum á bandarísku sjónvarpsstöðinni E! Hún er hvað þekktust fyrir að vera móðir ofurskutlunnar Kim Kar- dashian sem nýverið giftist unnusta sínum, körfubolta- manninum Kris Humphries. Frægð Kardashian má hins vegar rekja til kynlífsmyndbands sem birt var af henni stunda kynlíf með tónlistarmanninum Ray J. Mark og Donnie Wahlberg: Mark Wahlberg og bróðir hans Donnie úr New Kids on the Block eru eitthvað auralaus- ir þessa dagana. Þeir hafa því tekið til þess ráðs að opna hamborgarastað. Staðurinn heitir: Wahl- burgers! Hvað annað? Þeir bræður eru allt annað en ljúfir á manninn og hafa stað- ið í ströngu við að fá einkaleyfi á nafninu. Einhvers staðar í New York-borg reyndi athafna- maður að krækja í einkaleyfi á nafninu með því að nefna hamborgara á matseðli sín- um Wahlburger. Hann hefði ekki getað fengið verri hug- mynd en að reyna að græða aur á bræðrunum enda geta þeir verið mestu hrottar og þekktir fyrir hörkulega fram- göngu. Opna hamborgara- staðinn Wahlburgers! Verkstæði - Varahlutir - Smurþjónusta - Metan ísetningar www.birkiaska.is Birkilauf (Betulic) hefur góð áhrif á bæði vökvajafnvægi líkamans og húð, örvar starfsemi nýrna og þvagfæra. Hraðar efnaskiptum og losar vatn úr líkamanum, dregur úr bólgum og afeitrar líkamann (detox). Birkilaufstöflur www.birkiaska.is Minnistöflur Bætir skammtímaminnið. Nýtist fólki sem er undir álagi og fæst við flókin verkefni. Hentar vel fyrir eldri borgara, lesblinda og nemendur í prófum. Dregur úr streitu, eykur ró og bætir skap. Endurnærir og hreinsar ristilinn Í boði eru 60-150 töflu skammtar + Betr i apotekin og Maður l i fandi www.sologhei lsa. is OXYTARM Sól og heilsa ehf 30 = Losnið við hættulega kviðfitu og komið maganum í lag með því að nota náttúrulyfin Oxytarm og 30 days saman120 töflu skammtur days detox

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.