Dagblaðið Vísir - DV - 29.08.2011, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 29.08.2011, Blaðsíða 4
4 | Fréttir 29. ágúst 2011 Mánudagur S verrir Þór Sverrisson fjöl- miðlamaður brýtur að öll- um líkindum nýju fjölmiðla- lögin í útvarpsauglýsingum fyrir nýju kvikmyndina sína Algjör Sveppi og töfraskápurinn. Í auglýsingunni, sem spiluð er í út- varpi, ávarpar hann börn með bein- um hætti. Í fjölmiðlalögunum segir meðal annars að bannað sé að hvetja börn til þess að kaupa vöru eða þjón- ustu með því að notfæra sér reynslu- leysi þeirra eða trúgirni og að bannað sé að hvetja börn til þess að telja for- eldra sína eða aðra á að kaupa vöru eða þjónustu sem auglýst er. Gerði auglýsingarnar sjálfur Umrædd auglýsing er fyrir þriðju myndina í kvikmyndaröðinni Al- gjör Sveppi. Auglýsingarnar eru unnar af framleiðslufyrirtæk- inu Hreyfimyndasmiðjunni sem stendur á bak við allar myndirnar. Samkvæmt upplýsingum frá fyrir- tækinu vann Sverrir Þór auglýsing- arnar sjálfur í samstarfi við fram- leiðanda myndarinnar. Sverrir Þór segist aðspurður um málið ekki hafa kannað hvort auglýsingarn- ar brytu í bága við fjölmiðlalögin. „Ég mun breyta þessu ef það verður allt vitlaust,“ segir hann um málið. Hann segist ekki hafa farið af stað í gerð auglýsingarinnar með það í huga að reyna að komast upp með brot á reglum. „Það er allt annað hefði ég vitað þetta og þá farið að gera þetta.“ Sverrir Þór hefur starfað lengi í fjölmiðlum en hann hóf ferilinn á sjónvarpsstöðinni Popp Tíví. Allt frá þeim tíma hefur hann fyrst og fremst komið að dagskrárgerð fyr- ir börn og ungt fólk. Síðan þá hefur hann meðal annars leikið á sviði í barnaleikritum eins og Gosa og Al- gjör Sveppi - dagur í lífi stráks. Ekki nýtt af nálinni Ákvæðin sem auglýsingarnar brjóta líklega í bága við tóku gildi með fjöl- miðlalögunum sem samþykkt voru á alþingi 20. apríl. Strangar reglur voru settar um auglýsingar til barna og voru auglýsingar fyrir, eftir og í miðjum barnatíma bannaðar. Það er skýr til- gangur laganna að vernda börn fyrir ágangi auglýsenda. Þetta eru þó ekki einu ákvæðin sem vernda eiga börn gagnvart auglýsendum og markaðs- setningu en samkvæmt lögum um barnavernd og tilskipun um viðskipta- hætti kemur fram að ekki sé leyfilegt að stíla auglýsingar beint til barna. Þar sem fjölmiðlanefnd sem skip- uð hefur verið í samræmi við fjöl- miðlalögin tekur ekki til starfa fyrr en 1. september næstkomandi var ekki hægt að fá álit nefndarinnar eða ein- stakra nefndarmanna um málið. Bannað í öllum tilfellum „Það eru ákvæði í lögum um við- skiptahætti og markaðssetningu, um óréttmæta viðskiptahætti,“ segir Þórunn Anna Árnadóttir, sviðsstjóri neytendaréttarsviðs hjá Neytenda- stofu. Samkvæmt lögunum þarf ráð- herra svo að setja reglugerð um hvað telst til óréttmætra viðskiptahátta. Sú reglugerð er þýðing á sambæri- legri reglugerð Evrópusambands- ins. „Þar segir að láta felast í auglýs- ingu beina hvatningu til barna um að kaupa auglýsta vöru eða telja for- eldra þeirra eða aðra fullorðna á að kaupa auglýsta vöru handa þeim, að það sé bannað. Þetta er þá bannað í öllum tilfellum,“ segir Þórunn Anna en bendir á að ekki sé hægt að segja fyrirfram um hvernig hugsanlegt mál um auglýsingu vegna myndarinn- ar Algjörs Sveppa myndi fara. Sam- kvæmt heimildum DV er málið hins vegar komið á borð Neytendastofu og til skoðunar. Hefur ekki áhyggjur Sverrir Þór seg- ist ekki hafa miklar áhyggjur af málinu og að hann muni breyta auglýsingunni verði einhver læti vegna málsins. Mynd : Karl PEtErsson n sverrir Þór sverrisson fjölmiðlamaður á gráu svæði í auglýsingu n Ávarpar börn beint í útvarpsauglýsingum n segist ekki hafa kynnt sér lögin n neytendastofa kannar málið Sveppi í bobba vegna auglýsingar „Ég mun breyta þessu ef það verður allt vitlaust. Óhuggulegt Ólafur segir glæpsamlegt af Jóni Baldvini að líkja Ísraelum við nasista. Ólafur Jóhannsson segir það glæp að líkja Ísraelum við nasista: Fordæmir ummæli Jóns Baldvins „Þetta er óhuggulegt, að gáfaður maður eins og hann er skuli segja svona lagað,“ segir Ólafur Jóhanns- son, formaður félagsins Zion, vinir Ísraels, um ummæli Jóns Baldvins Hannibalssonar í þættinum Sprengi- sandur á Bylgjunni á sunnudag. Jón Baldvin líkti Ísraelum við þýsku nas- istana og sagði þá beita sömu brögð- um. „Þetta er mesti harmleikur okk- ar samtíma því þarna er þjóð sem er afkomendur þeirra sem voru fórnar- lömb þýska nasismans [...] orðin al- veg eins og nasistarnir og beita sömu brögðum,“ sagði Jón Baldvin í þætt- inum. Áður en hann lét ummælin falla rakti hann aðgerðir Ísraela sem hann sagði kerfisbundið ræna Pal- estínu landi og svelta fólk til hlýðni. „Ég hef verið í Ísrael síðastliðin 33 ár, ég vinn þar og fer þangað á hverju ári. Ég vinn með Palestínumönnum, og ég vinn með Aröbum; múslim- um, kristnum og ótrúuðum þannig ég þekki hugsunargang þeirra gagn- vart gyðingum. Það ríkir mikill friður í Jerúsalem. Eini ófriðurinn þar núna er frá Gaza-svæðinu með sprengju- árásum yfir á Ísrael,“ segir Ólafur og veltir upp þeirri spurningu af hverju Jón Baldvin líkti ekki Ísraelum við kommúnista. Ólafur segir Íslendinga alla tíð hafa verið í góðum tengslum við Ísrael. „Ég sem Ísraelsvinur minn- ist þess að sá sem bar fram tillögu um nýtt ríki árið 1947 hjá Samein- uðu þjóðunum var Thor Jensen, Ís- lendingur,“ segir Ólafur sem bendir á að Ísrael sé í raun eina lýðræðis- ríkið í Mið-Austurlöndum. „Að líkja þeim við nasista, það er bara glæpur. Þetta er hugarhatur sem er óskiljan- legt á meðal Íslendinga. Ég trúi ekki að fjöldi Íslendinga hugsi svona.“ solrun@dv.is Nýr formaður SUS Davíð Þorláksson var kjörinn for- maður Sambands ungra sjálfstæðis- manna á landsþingi sem haldið var í Hveragerði um helgina. Alls greiddu 220 atkvæði í kosningunum en 15 atkvæðaseðlar voru ógildir og einn auður. Alls fékk Björn Jón Braga- son 77 atkvæði en Davíð Þorláksson fékk 127. Davíð er fæddur og uppal- inn á Akureyri. Hann útskrifaðist sem stúdent af náttúrufræðibraut Menntaskólans á Akureyri og með embættispróf í lögfræði frá Háskóla Íslands. Hann hlaut héraðsdómslög- mannsréttindi árið 2009. Hann sat í stjórn SUS 2003–2005 og frá 2009, sem 2. varaformaður 2009–2010 og umsjónarmaður málefnastarfs frá 2010. Davíð hefur áður verið gjald- keri Félags ungra sjálfstæðismanna á Akureyri, formaður Félags sjálf- stæðismanna í Vesturbæ og Miðbæ, í stjórn fulltrúaráðs sjálfstæðisfélag- anna í Reykjavík og ritari Varðbergs. Hödd Vilhjálms- dóttir á Stöð 2 Hödd Vilhjálmsdóttir bætist senn við hóp fréttakvenna Stöðvar 2 en hún kemur í Skaftahlíðina úr Hádeg- ismóum Morgunblaðsins þar sem hún hefur starfað sem fréttakona við netsjónvarp mbl.is. Hödd hefur verið öflug innan Sambands ungra sjálfstæðismanna en hún starf- aði sem framkvæmdastjóri Sam- bands ungra sjálfstæðismanna um tíma. Straumurinn virðist liggja frá Morgunblaðinu yfir á Stöð 2 en ekki er langt síðan síðan fréttamenn- irnir Jónas Margeir Ingólfsson og Hugrún Halldórsdóttir fluttu sig yfir. Hödd var um tíma þáttastjórnandi að þættinum Mér finnst... sem var á dagskrá ÍNN ásamt þeim Katrínu Bessadóttur og leikkonunni Vigdísi Másdóttur. Það er því ljóst að hún er enginn nýgræðingur þegar kemur að sjónvarpi. Aðalsteinn Kjartansson blaðamaður skrifar adalsteinn@dv.is 2 d lkar = 9,9 *10 Útsölulok Opið: má-fö. 12:30-18, lokað um helgar. Dalvegi 16a, Rauðu múrsteinshúsunum Kóp. 201 - S: 517 7727 www.nora.is facebook.com/noraisland Fyrir bústaðinn og heimilið

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.