Dagblaðið Vísir - DV - 01.08.2014, Blaðsíða 64
Helgarblað 1.–5. ágúst 2014
59. tölublað 104. árgangur Leiðbeinandi verð 659 kr. dv.is/frettaskot askrift@dv.is Sími 512 7000
9 771021 825033
ISSN 1021-8254
Vantar allt
maltduft
í þig?
Saknar
maltduftsins
n Söngkonunni Leoncie var
heitt í hamsi á miðvikudag. Á
Facebook-síðu sinni kannaði
hún hvort vinir hennar vissu
hvar hægt væri að nálgast malt-
duft á Íslandi. Slíkt duft er ekki
harla ósvipað kakódufti. „Ég
finn hvergi Ovaltine eða Hor-
licks á þessu guðsvolaða landi,
Íslandi. Ég hef saknað þess svo
gífurlega frá því ég flutti frá
Bretlandi. Það eina sem er til
á þessum rándýra
stað er hund-
leiðinlegt og lé-
legt súkkulaði-
duft,“ skrifaði
Leoncie.
Líkti Heimdalli við
Klaufabárðana
n Grín Jóhannesar Þórs Sig-
urðssonar, aðstoðarmanns Sig-
mundar Davíð Gunnlaugsson-
ar, á Facebook á miðvikudag
um þá ályktun Heimdalls að
endurskoða þurfi ríkisstjórnar-
samstarfið misheppnaðist all-
hressilega, í það minnsta ef
litið er til „læka“. Líkti hann
ungliða hreyfingunni við pólsku
leirbrúðurnar geðþekku sem
kenndar eru við klaufaskap. „Já,
hahahaha, þessi heimsku börn
… að vilja í alvöru framfylgja
hugsjónum sínum um frjáls-
ræði í ríkisrekstri og skynsam-
lega efnahagsstjórn,“ skrifaði
Viktor Orri Val-
garðsson í
athugasemd
og hlaut
fleiri „læk“
en stöðu-
færsla Jó-
hannesar.
Furðar sig á 365
n Vigdís Hauksdóttir sagði á
Facebook-síðu sinni frá skrýtinni
upplifun sem hún sagðist hafa
lent í á miðvikudagskvöldi. Þar
sagði hún frá að hún hefði feng-
ið símhringingu frá fjölmiðla-
manni 365 sem hefði beðið hana
um viðtal til að spila í útvarps-
fréttum daginn eftir. Viðtalið átti
að fjalla um frétt sem birtast átti í
blaði miðilsins daginn eftir. „Ekk-
ert mál sagði ég og bað um að fá
blaðaumfjöllunina senda svo ég
gæti brugðist rétt við – nei þá var
það ekki hægt því hann mætti
ekki senda „blaðafréttir“ frá sér
út af trúnaði – ég afþakkaði þetta
góða boð og bauð
honum að hringja
þegar blaðið
væri komið út !!!
– er þetta nú-
tíma frétta-
mennska?“
spurði
Vigdís.
Kamarinn ekki mönnum sæmandi
Negldu fyrir kamarinn vegna fjölda gesta
S
veitarfélag Hornafjarðar brá á
það ráð á dögunum að negla
hurð, að kamri sem stendur
austan við Jökulsárlón, fasta.
Að sögn Björns Inga Jónssonar, bæjar-
stjóra Hornafjarðar, er ástæðan fyrir
því gífur lega mikil aðsókn sem varð til
þess að aðstæður voru ekki mönnum
bjóðandi. Ferðamaður einn sem hafði
samband við DV sagði að eftir lokun
kamarsins gangi ferðamenn örna
sinna úti í móa svo á sést. „Menn komu
þarna eftir nóttina og það sem var að
gerast – ég vil eiginlega ekki segja það
því ég er hræddur um að þú hafir það
eftir mér. Það var ekki fólki bjóðandi,
ekki neinum, hvorki þeim sem átti
að hreinsa það eða þeim sem komu
þarna inn. Það hefði orðið miklu verri
umræða ef þetta hefði verið opið,“ seg-
ir Björn Ingi í samtali við DV.
Björn Ingi segir að kamarinn hafi
verið tilraunaverkefni sveitarfélags-
ins til að reyna að bregðast við í sal-
ernismálum. „Það sem gerðist var
að umgengnin var svoleiðis, vegna
þess að það var svo mikil traffík, að
við gátum ekki haft þetta mannsæm-
andi. Okkur var nauðugur einn kostur
núna – að loka þessu. Við höfðum ekki
þann möguleika að bregðast við til að
geta haldið þessu opnu í sumar,“ seg-
ir hann. Björn segir að til bráðabirgða
hafi verið gerður samningur við Hala,
sveitabæ í nágrenninu, um að ferða-
menn geti fengið að kasta af sér þar.
Björn Ingi bendir á að salernismál
séu ekki skylduverkefni sveitarfélaga.
„Við erum að vinna í því að finna lausn
á þessu máli. Við náum ekki að gera
það einn, tveir og þrír.“ Hann bend-
ir sömuleiðis á það vandamál að sal-
ernismál séu í lamasessi nær allan hr-
ingveginn þar sem engin ber ábyrgð á
þeim. Markmiðið með kamrinum hafi
verið að bregðast við því vandamáli.
„Það er í rauninni spurning um hver á
að byggja upp salerni með fram þjóð-
vegi landsins. Vegagerðin er náttúr-
lega veghaldari. Ætti þetta ekki hrein-
lega að vera á hennar könnu?“ n
hjalmar@dv.is
Lokað Ferðamenn koma að lokuðum dyrum
hyggist þeir létta á sér á kamrinum austan við
Jökulsárslón. Ferðamönnum er bent á að fara
á Hala sem er í fjögurra kílómetra fjarlægð.
*Ekkert Etanól nivEamEn.com
ÞaÐ BYRJaR
HJÁ ÞÉR
Prófaðu nýju nivEa mEn Sensitive næringuna eftir rakstur.
Án alkóhóls og berst gegn sviða, kláða og roða.
ÞAÐ ER TIL BETRI LEIÐ
TIL AÐ RÓA HÚÐINA