Dagblaðið Vísir - DV - 01.08.2014, Blaðsíða 42

Dagblaðið Vísir - DV - 01.08.2014, Blaðsíða 42
Helgarblað 1.–5. ágúst 201442 Skrýtið Sakamál n Byran Koji Uyesugi þjáðist af ofsóknaræði n Hann ákvað að kenna ofsækjendum sínum lexíu B yran Koji Uyesugi fæddist í Honolulu á Hawaii 1959. Hann var að mati félaga sinna rólegheita náungi og seinþreyttur til vandræða. Það breyttist þegar hann mætti til vinnu hjá Xerox 2. nóvember 1999. Árið 1984 hóf Byran störf sem tæknimaður hjá Xerox-fyrirtækinu og dundaði í frístundum við áhuga- mál sín sem meðal annars tengd- ust eldi gullfiska og Koi-fiska. Einnig hafði hann dálæti á skotvopnum og átti árið 1999 25 byssur, sem allar voru skráðar á hann. Vandræði á vinnustað Byran átti að sögn föður hans, Hiroyuki, ekki við nokkur vanda- mál að stríða fyrr en hann hóf störf hjá Xerox og árið 1988, eftir að móð- ir hans dó, fór Byran að kvarta yfir ágengum höfuðverk. Byran hafði á yngri árum fengið slæmt höfuð- högg er hann lenti í árekstri í bif- reið föður síns. Erfiðleikar Byrans hófust fyrir alvöru eftir að hann var fluttur milli deilda innan Xerox og hann fór að brigsla vinnufélögum um hitt og þetta að ósekju; ofsókn- ir, skemmdarverk. Áttu vinnufélagar hans sífellt erfiðara með að umbera bræðisköst Byrans. Líflátshótanir Svo virðist sem Byran hafi að lokum verið sniðgenginn og eðli málsins samkvæmt upplifði hann einangr- un og fjarlægðist enn frekar vinnu- félagana. Reiði Byrans jókst hröðum skrefum og sögðu sumir á vinnu- staðnum að hann hefði hreinlega hóta þeim dauða. Árið 1993 var Byran gert að undirgangast geðmat og sækja reiðistjórnunarnámskeið eftir að hafa verið handtekinn fyrir skemmdar- verk. Síðar kom í ljós að Byran hafði talað um að fremja fjöldamorð á vinnustað sínum fyrir 1995. Rann- sókn geðlækna leiddi í ljós að Byran þjáðist af persónuleikaröskun og of- sóknaræði. Hann sagðist heyra raddir og að hans var hann eltur af svörtum skugga. Byran hafði á tilfinningunni að vinnufélagar hans stunduðu ein- elti og baktal í hans garð. Skothríðin hefst Að morgni 2. nóvember, 1999, mætti Byran til vinnu og beið ekki boðanna. Vopnaður 9 millimetra Glock-skammbyssu gekk hann ber- serksgang og þegar hann flúði af vettvangi voru sjö vinnufélagar hans liðin lík; Christopher Balatico, 33 ára, Ford Kanehira, 41 árs, Ronald Kataoka, 50 ára, Ronald Kawamae, 54 ára, Melvin Lee, 58 ára, Peter Mark, 46 ára og John Sakamoto, 36 ára. Lögreglan lokaði nokkrum göt- um í miðbæ Honolulu og fyrir há- degi hafði henni tekist að króa Byran af. En björninn var ekki unninn því það var ekki fyrr en eftir fimm tíma þrjátefli, um þrjú leytið, sem Byran játaði sig sigraðan og gafst upp. Sakhæfur eða ekki? Réttarhöld yfir Byran Uyesugi hófust 15. maí, 2000, og tóku einn mánuð. Byran lýsti sig ósakhæfan sökum geðveiki og sagði sér hafa liðið sem úrhraki í vinnunni og hann hefði ótt- ast að kollegar hans ætluðu að láta reka hann. Geðlæknar sem verjend- ur leiddu fram studdu fullyrðingar Byrans, en geðlæknir saksóknara sagði að þrátt fyrir að hann sjálfur teldi Byran vera geðklofa hefði hann framið fjöldamorðið í bræðiskasti – hann hefði verið óttast að verða rek- inn og fyllst reiði sem hann fékk síð- an útrás fyrir. Byran sakfelldur Kviðdómur komst að þeirri niður- stöðu að Byran væri sakhæfur og sekur um sjö morð. Dauðarefsing er ekki valkostur á Hawaii og fékk Byr- an því lífstíðardóm án möguleika á reynslulausn. Byran áfrýjaði dómn- um og árið 2002 staðfesti Hæsti- réttur Hawaii fyrri úrskurð. Aðstand- endur fórnarlamba Byrans höfðuðu, árið 2005, mál á Xerox-fyrirtækinu og þeirri sjúkrastofnun sem stað- ið hafði að geðmati Byrans fyr- ir fjöldamorðið, á þeim grunni að hvort tveggja hefði horft fram hjá augljósum merkjum um geðrænan óstöðugleika Byrans. Samkomulag náðist með aðilum. Xerox-fyrir- tækið lagði niður starfsemi í þeirri byggingu sem breyttist í vígvöll árið 1999 og stóð hún auð til ársins 2004 þegar framleiðendur sjónvarpsþátt- anna Lost komu þar upp aðstöðu til að kvikmynda innisenur. n Við réttarhöldin Byran (t.h.) bar við geðveiki en kviðdómur taldi hann vera sakhæfan. „Síðar kom í ljós að Byran hafði talað um að fremja fjöldamorð á vinnustað sínum fyrir 1995. XEROX-FJÖLDAMORÐIÐ Í böndum Eftir fimm tíma gafst Byran upp fyrir lögreglunni. „Raspberry Ketones frá Natures Aid hefur gert frábæra hluti fyrir mig og ég mæli 100% með þeim.“ Eitt mest selda fitubrennsluefnið í heiminum í dag! GMP vottað hráefni Raspberry + grænt te = meiri virkni og betri brennsla Aukakílóin burt á heilsusamlegan hátt! Sigrún Emma Björnsdóttir einkaþjálfari og íþróttakona. www.gengurvel.is ,,Sykurlöngunin hvarf og mittismálið minnkaði!“
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.