Dagblaðið Vísir - DV - 01.08.2014, Page 42
Helgarblað 1.–5. ágúst 201442 Skrýtið Sakamál
n Byran Koji Uyesugi þjáðist af ofsóknaræði n Hann ákvað að kenna ofsækjendum sínum lexíu
B
yran Koji Uyesugi fæddist
í Honolulu á Hawaii 1959.
Hann var að mati félaga
sinna rólegheita náungi og
seinþreyttur til vandræða.
Það breyttist þegar hann mætti
til vinnu hjá Xerox 2. nóvember
1999. Árið 1984 hóf Byran störf sem
tæknimaður hjá Xerox-fyrirtækinu
og dundaði í frístundum við áhuga-
mál sín sem meðal annars tengd-
ust eldi gullfiska og Koi-fiska. Einnig
hafði hann dálæti á skotvopnum og
átti árið 1999 25 byssur, sem allar
voru skráðar á hann.
Vandræði á vinnustað
Byran átti að sögn föður hans,
Hiroyuki, ekki við nokkur vanda-
mál að stríða fyrr en hann hóf störf
hjá Xerox og árið 1988, eftir að móð-
ir hans dó, fór Byran að kvarta yfir
ágengum höfuðverk. Byran hafði
á yngri árum fengið slæmt höfuð-
högg er hann lenti í árekstri í bif-
reið föður síns. Erfiðleikar Byrans
hófust fyrir alvöru eftir að hann var
fluttur milli deilda innan Xerox og
hann fór að brigsla vinnufélögum
um hitt og þetta að ósekju; ofsókn-
ir, skemmdarverk. Áttu vinnufélagar
hans sífellt erfiðara með að umbera
bræðisköst Byrans.
Líflátshótanir
Svo virðist sem Byran hafi að lokum
verið sniðgenginn og eðli málsins
samkvæmt upplifði hann einangr-
un og fjarlægðist enn frekar vinnu-
félagana. Reiði Byrans jókst hröðum
skrefum og sögðu sumir á vinnu-
staðnum að hann hefði hreinlega
hóta þeim dauða. Árið 1993 var Byran
gert að undirgangast geðmat og sækja
reiðistjórnunarnámskeið eftir að hafa
verið handtekinn fyrir skemmdar-
verk. Síðar kom í ljós að Byran hafði
talað um að fremja fjöldamorð á
vinnustað sínum fyrir 1995. Rann-
sókn geðlækna leiddi í ljós að Byran
þjáðist af persónuleikaröskun og of-
sóknaræði. Hann sagðist heyra raddir
og að hans var hann eltur af svörtum
skugga. Byran hafði á tilfinningunni
að vinnufélagar hans stunduðu ein-
elti og baktal í hans garð.
Skothríðin hefst
Að morgni 2. nóvember, 1999,
mætti Byran til vinnu og beið ekki
boðanna. Vopnaður 9 millimetra
Glock-skammbyssu gekk hann ber-
serksgang og þegar hann flúði af
vettvangi voru sjö vinnufélagar hans
liðin lík; Christopher Balatico, 33
ára, Ford Kanehira, 41 árs, Ronald
Kataoka, 50 ára, Ronald Kawamae,
54 ára, Melvin Lee, 58 ára, Peter
Mark, 46 ára og John Sakamoto, 36
ára. Lögreglan lokaði nokkrum göt-
um í miðbæ Honolulu og fyrir há-
degi hafði henni tekist að króa Byran
af. En björninn var ekki unninn því
það var ekki fyrr en eftir fimm tíma
þrjátefli, um þrjú leytið, sem Byran
játaði sig sigraðan og gafst upp.
Sakhæfur eða ekki?
Réttarhöld yfir Byran Uyesugi hófust
15. maí, 2000, og tóku einn mánuð.
Byran lýsti sig ósakhæfan sökum
geðveiki og sagði sér hafa liðið sem
úrhraki í vinnunni og hann hefði ótt-
ast að kollegar hans ætluðu að láta
reka hann. Geðlæknar sem verjend-
ur leiddu fram studdu fullyrðingar
Byrans, en geðlæknir saksóknara
sagði að þrátt fyrir að hann sjálfur
teldi Byran vera geðklofa hefði hann
framið fjöldamorðið í bræðiskasti –
hann hefði verið óttast að verða rek-
inn og fyllst reiði sem hann fékk síð-
an útrás fyrir.
Byran sakfelldur
Kviðdómur komst að þeirri niður-
stöðu að Byran væri sakhæfur og
sekur um sjö morð. Dauðarefsing er
ekki valkostur á Hawaii og fékk Byr-
an því lífstíðardóm án möguleika á
reynslulausn. Byran áfrýjaði dómn-
um og árið 2002 staðfesti Hæsti-
réttur Hawaii fyrri úrskurð. Aðstand-
endur fórnarlamba Byrans höfðuðu,
árið 2005, mál á Xerox-fyrirtækinu
og þeirri sjúkrastofnun sem stað-
ið hafði að geðmati Byrans fyr-
ir fjöldamorðið, á þeim grunni að
hvort tveggja hefði horft fram hjá
augljósum merkjum um geðrænan
óstöðugleika Byrans. Samkomulag
náðist með aðilum. Xerox-fyrir-
tækið lagði niður starfsemi í þeirri
byggingu sem breyttist í vígvöll árið
1999 og stóð hún auð til ársins 2004
þegar framleiðendur sjónvarpsþátt-
anna Lost komu þar upp aðstöðu til
að kvikmynda innisenur. n
Við réttarhöldin Byran (t.h.) bar við geðveiki en kviðdómur taldi hann vera sakhæfan.
„Síðar kom í ljós
að Byran hafði
talað um að fremja
fjöldamorð á vinnustað
sínum fyrir 1995.
XEROX-FJÖLDAMORÐIÐ
Í böndum Eftir
fimm tíma gafst
Byran upp fyrir
lögreglunni.
„Raspberry Ketones frá Natures Aid
hefur gert frábæra hluti fyrir mig
og ég mæli 100% með þeim.“
Eitt mest selda fitubrennsluefnið í heiminum í dag!
GMP vottað hráefni
Raspberry
+ grænt te
= meiri virkni og
betri brennsla
Aukakílóin burt
á heilsusamlegan hátt!
Sigrún Emma Björnsdóttir
einkaþjálfari og íþróttakona.
www.gengurvel.is
,,Sykurlöngunin hvarf og
mittismálið minnkaði!“