Dagblaðið Vísir - DV - 01.08.2014, Blaðsíða 48
Helgarblað 1.–5. ágúst 201448 Lífsstíll
Eftirminnilegar
útihátíðir
n Atlavík, Viðey, Uxi og Eldborg
Nú þegar verslunarmannahelgin er runnin upp þeysast margir á útihátíðir
um allt land. Ekki er úr vegi að rifja upp nokkrar eftirminnilegar útihátíðir sem
haldnar hafa verið hérlendis í tilefni þess - misvel lukkaðar þó.
viktoria@dv.is
Saltvík 1971 Um hvítasunnuhelgina 1971 þustu ungmenni í Saltvík. Þar var gerð tilraun til þess
að leysa upp svokallað „hvítasunnuvandamál“ þar sem ungt fólk fór í drykkjuferðir um hvítasunnuhelgina sem
oft enduðu illa. Hátíðina sóttu um tíu þúsund manns. Var þar stærsti hópurinn ungmenni á aldrinum 15–20 ára. Í
fréttum frá helginni segir að mikil ölvun hafi verið á svæðinu bæði föstudag og laugardag. Þó meiri á laugar-
deginum þar sem þá hafi komið fólk eldra en tvítugt og áfengisneysla þeirra og ölvun verið mun meiri en yngra
fólksins. Af þessu sköpuðust nokkur vandræði. Eftir að skemmtistöðum var lokað í Reykjavík klukkan hálf tólf
um kvöldið kom líka straumur fólks með leigubílum úr borginni á hátíðina. Vegna þessa var öllum hliðum lokað
klukkan eitt um nóttina. „Var það mat þeirra, sem áttu mestan þátt í undirbúningi og framkvæmd hátíðarinnar,
að þessi tilraun hafi fyllilega átt rétt á sér, en hins vegar hafi ýmislegt farið verr en vonast hafi verið til,“ sagði
Morgunblaðið. Hljómsveitirnar sem léku voru Trúbrot og Mánar, Arkímedes, Dýpt, Tiktúra, Ævintýri, Tilvera,
Jeremías, Akropolis, Júmbó, Torrek, Trix, Náttúra, Ríó Tríó, Þrjú á palli, Kristín og Helgi, Lítið eitt, Tilvera, Roof
Tops, Haukur, Plantan, Bill og Gerry auk Árna Johnsen og Ingva Steins.
Atlavík 1984 Stuðmenn léku á útihátíð Atlavík árið 1982 sem var fest á
filmu í myndinni Með allt á hreinu. Tveim árum síðar bættu þeir um betur og drógu sjálfan
Ringo Starr með sér, sem spilaði á trommur með þeim á sviðinu. Með honum í för var
eiginkonan Barbara Bach sem leikið hafði í Bond-myndinni The Spy Who Loved Me. Margar
sögur hafa spunnist um komu Ringos, svo sem að hann hafi fúlsað við humar og frekar kosið
hamborgara, en fátítt var að stórmenni sæktu landið heim í þá daga. Tónlistarkeppni var
haldin og lentu Greifarnir í fjórða sæti en Gaukar með Egil Helgason innanborðs í því þriðja.
Uxi 1995 Það eru fáir
sem hafa ekki heyrt talað um
Uxa-hátíðina sem haldin var árið
1995 á Kleifum við Kirkjubæjar-
klaustur. Um fimm þúsund manns
sóttu hátíðina, flestir á sunnudeg-
inum en um fjögur þúsund dvöldu
allan tímann. Mikið blíðskapar-
veður var á staðnum og þurftu
nokkrir að leita sér aðstoðar á
heilsugæslu vegna sólbruna. Uxi
var ein fyrsta tilraunin til þess að
halda hér alvöru tónlistarhátíð að
erlendum sið. Björk kom fram á
hátíðinni ásamt hljómsveitunum
The Prodigy og Atari Teenage
Riot. Færri sóttu hátíðina en
vonast var eftir og talsvert var um
slagsmál og eiturlyfjaneyslu.
Eldborg 2001 Ein allra umdeildasta
útihátíð sem haldin hefur verið hérlendis er Eldborgarhátíð
sem haldin var árið 2001. Hljómsveitin Jet Black Joe kom
aftur saman á hátíðinni eftir margra ára hlé. Hátíðin átti
sér margar skuggahliðar. Fjórtán stúlkur leituðu til Neyðar-
móttöku eftir að hafa verið nauðgað og skipuleggjandinn,
Einar Bárðarson, var harðlega gagnrýndur fyrir að hafa ekki
eytt nógu miklu í öryggisgæslu. Mikil fjölmiðlaumræða var
eftir hátíðina sem þótti hafa farið úr böndunum.
Viðey 1984 Sömu helgi og Ringo
Starr mætti í Atlavík þá stóð Magnús Kjartansson
fyrir útihátíð í Viðey. Sú hátíð þykir því miður
ein sú allra misheppnaðasta sem staðið hefur
verið fyrir. Aðeins um 200 manns keyptu miða á
hátíðina og á sunnudeginum varð að blása allt af.
Magnús kenndi slæmri sunnanátt og neikvæðum
skrifum í Mogganum um. Þeir sem mættu í Viðey
fengu samlokur og sígarettur og svo aðstoðaði
Magnús fólkið við að komast aftur í land þegar
orðið var ljóst í hvað stefndi. Þeir sem þó mættu
fengu að hlusta á Björk og Sykurmolana spila í
hljómsveitinni Kukl áður en þau slógu í gegn.
Húsafell 1969 Verslunar-
mannahelgin 1969 var einkar mikil ferðahelgi.
Áætlað er að um einn af hverjum fimm Íslending-
um hafi farið á flandur þá helgina. Stærsta
útihátíðin það var árið var í Húsafelli þar sem
hljómsveitin Trúbrot spilaði. Það var fjölmenni á
hátíðinni og var sagt í fjölmiðlum eftir helgina að
allt hefði farið vel fram. Þó voru á þriðja hundrað
manns fjarlægð sökum ölvunar og sex tjöld
brunnu vegna vankunnáttu tjaldbúa á gastæki en
þó urðu ekki teljandi slys á fólki.
Óskum eftir nýlegum bílum á söluskrá og á staðinn.
Mikil eftirspurn og bílar að seljast á góðum
verðum! Við erum með gott sýningarsvæði og
bjartan innisal! Kíktu í kaffi til okkar að Funahöfða
1 og við tökum myndir og skráum bílinn.
Einnig hægt að skrá sjálfur á www.bilo.isw w w. b i l o . i s - F u n a h ö F ð i 1, R E y K j aV í K
567 4840