Hagskýrslur um atvinnuveg - 01.07.1975, Blaðsíða 9
7
I. Inngangur .
Hefti þetta hefur aö geyma margvíslegar upplýsingar um
þróun iðnaðar á undanförnum árum. Athuganir þessar ná til
þeirrar atvinnustarfsemi, sem fellur undir flokka 2 og 3 í
atvinnuvegaflokkun Hagstofu íslands, að undanskildum fiskiðnaöi,
þ.e. atvinnugreinum nr. 203, 204, 312, 313 og 314. Nokkuð
skortir á, aö allar aðrar iðngreinar séu teknar með í athuganirnar
og er tekið fram hverju sinni, hvaða greinar eru undanskildar.
T.d. hefur greinum 211, áfengisiðnaði og 220, tóbaksiönaði veriö
algjörlega sleppt við gerð rekstraryfirlita áriö 1973, þar sem
hér er um mjög fámennar greinar að ræða, auk þess sem afar erfitt
hefur verið að gera nákvæma grein fyrir rekstrarafkomu þeirra.
Einnig hefur ekki verið gert rekstraryfirlit fyrir slátrun og
kjötiðnað, en reynt hefur verið að taka tillit til mannafla-
og framleiðsluþróunar þessarar greinar við mat á þessum stæröum
fyrir iðnaðinn í heild. Hins vegar hefur verið reynt aö setja
fram talnaefni þaö, sem hér fer á eftir, á eins sambærilegan
hátt og kostur hefur verið. Á þetta einkum viö upplýsingar um
framleiðslu, vinnuafl og framleiöni í iðnaði á undanfarandi
árum. Talnaefnið nær fram til ársins 1973, enda er þess enn
ekki kostur að birta nákvæmar tölur um framvindu í einstökum
greinum iðnaðar á nýliðnu ári. Verður þó fjallað um helztu
niðurstöður áætlana um afkomu iðnaðarins á árinu 1974 og horfur
1975, auk þess sem fjallað verður nokkuð um afkomu einstakra
greina hans á árinu 1973.
II. Iðnaður 1973.
A árinu 1973 er talið, að iðnaðarframleiðsla (undanskilið:
fiskiðnaður) hafi aukizt um 14% (tafla 4.4.). f þeim iðn-
greinum, sem magnvísitala Hagstofu íslands nær til og eingöngu
eru vörugreinar, var aukningin 17,5%, en í öðrum iðngreinum,
sem að meginhluta eru viðgerðargreinar, auk slátrunar og kjöt-
iðnaðar, var aukningin 10,3%. Þess ber að geta, að mikill
hluti þessarar aukningar á rætur sínar að rekja til stækkunar
álverksmiðjunnar í Straumsvík, en framleiöslan þar nam 71.300
tonnum árið 1973 á móti 45.500 tonnum árið 1972. Sé álframleiðslan
undanskilin við mat framleiðsluaukningarinnar á árinu 1973, er