Hagskýrslur um atvinnuveg - 01.07.1975, Blaðsíða 20
18
lauslegum framreikningi til Irsmeðaltals 1974, þar sem undan-
skildar voru greinarnar, fiskiönaður, slátrun og kjötiðnaður og
mjólkuriðnaður, sýnist vergur hagnaður fyrir skatta sem hlutfall
af vergum tekjum hafa numið nálægt 5% samanborið við 7,3% árið
1973. Lauslegar hugmyndir um afkomu heimamarkaösgreinanna m.v.
rekstrarskilyrði í maímánuði s.l. benda hins vegar til, að hún
hafi verið svipuð því, sem hún var að meðaltali 1974. Á síðast-
liðnu ári urðu mjög örar hækkanir á innflutningsverðlagi hráefna
til iðnaðar. Talið er, að meðalverðhækkun hráefna til iðnaðar
frá ársmeðaltali 1973 til ársmeðaltals 1974 hafi numið um 40% í
íslenzkum krónum, og þá hefur verið tekið tillit til tolla-
lækkana þeirra, sem áttu sér stað á árinu. Einnig þurftu heima-
markaösgreinarnar að taka á sig mikla hækkun launa á sl. ári,
og lætur nærri, að sú hækkun hafi numið um 52%. Verulegar
hækkanir urðu einnig á öðrum kostnaðarliðum, t.d. orku, umbúðum
og vöxtum. Verri afkoma heimamarkaðsgreinanna sýnir ljóslega,
að verð- og magnbreytingar tekna hafa ekki náð aö vega upp þær
miklu kostnaðarhækkanir, sem áttu sér stað á árinu 1974, þrátt
fyrir, að verðhækkanir á afurðum þessara greina hafi orðið til
muna örari það ár en undangengin ár.
1 ársbyrjun 1974 kom til framkvæmda annar tollalækkunar-
áfangi skv. EFTA-samningunum og hinn þriðji tók gildi 1. janúar
1975. Eru verndartollar gagnvart EFTA- og EBE-löndunum nú
helmingur þess, sem þeir voru fyrir inngöngu Islands í EFTA 1.
marz 1970. Þá var ákveðið, að um sl. áramót skyldi fella niður
eða endurgreiða að hálfu söluskatt af vélum til iðnaðarfram-
leiðslu, samkvæmt heimild í fjárlögum ársins 1975. Hins vegar
ber að hafa í huga, að á árinu 1974 og fyrstu mánuöum þessa árs
lækkaði gengi íslenzku krónunnar verulega, þannig, að líklegt
má telja, að hækkun á verði erlends gjaldeyris hafi meira en
vegið upp áhrif ofantaldra tollalækkana á samkeppnisstöðu
innlends iðnaðar gagnvart innflutningi. Þess ber auðvitað að
gæta, að gengislækkun hefur í för með sér verðhækkanir á ýmsum
aðföngum innlendra iðngreina, þannig, að heildaráhrif gengis-
breytinganna á samkeppnisstöðu innlendu iðngreinanna eru óviss.