Dagblaðið Vísir - DV - 23.08.2013, Page 4

Dagblaðið Vísir - DV - 23.08.2013, Page 4
4 Fréttir 23.–25. ágúst 2013 Helgarblað Boðið er upp á tveggja vikna spænskunámskeið með menn- ingarlegu ívafi í Extremadurahéraði á Spáni. Kennt er í 3 tíma á dag utan þá tvo daga sem farið er í dagsferðir. Fyrri vikuna er dvalið í klaustri sem breytt hefur verið í þriggja stjörnu hótel í þorpinu La Parra. Þar gefst góður tími til slaka á, ná sambandi við náttúruna og kyrrðina og borða mat sem framleiddur er í héraðinu. Síðari vikuna er dvalið á undurfallegu fjögurra stjörnu hóteli á ráðhús- torginu í bænum Zafra. Leiðsögumaður og spænskukennari er Margrét Jónsdóttir Njarðvík, vararæðismaður Spánar. Haustbúðir á Spáni - fyrir fullorðna www.mundo.is 11. - 25. október 2013 Verð: 369.900 miðað við tvo í herbergi Verð: 410.000 miðað við einn í herbergi Nánari upplýsingar í síma 6914646 eða margret@mundo.is Innifalið: Flug, hótel, fæði (fullt fæði fyrri vikuna, hálft fæði síðari vikuna), rútuferðir, skoðunarferðir til Mérida og Sevilla, spænskukennsla 3 klst. á dag, gönguferðir við sólarupprás í 2-3 klst á dag, jóga þrisvar í viku, aðgangseyrir að Reales Alcazares í Sevilla og aðgangseyrir að söfnum í Mérida. U mhverfisstofnun gagnrýnir Landsvirkjun harðlega vegna athugasemda sem fyrirtækið gerði við friðlýs- ingarskilmála Þjórsárvera fyrr í sumar. Sendi þá forstjóri Lands- virkjunar umhverfis- og auðlindaráð- herra bréf þar sem hann furðaði sig á því að til stæði að skrifa undir skil- málana og dró í efa að stjórnsýsluferli ráðuneytisins og Umhverfisstofnunar hefði staðist lög. Í kjölfarið ákvað ráð- herra að fresta undirrituninni og fara aftur yfir málið. DV hefur undir höndum um- sögn um athugasemdirnar sem Um- hverfisstofnun útbjó að ósk ráðuneyt- isins. Þar er ferli friðlýsingarinnar lýst í smáatriðum og Landsvirkjun svar- að lið fyrir lið. „Af svari Umhverfis- stofnunar má ljóst vera að klögumál Landsvirkjunar áttu ekki við rök að styðjast,“ segir Árni Finnsson, for- maður Náttúruverndarsamtaka Ís- lands, í samtali við DV. Tvöfalt samþykki Alþingis Í umsögn Umhverfisstofnunar kem- ur fram að óskað hafi verið eftir af- stöðu Landsvirkjunar til Norðlinga- ölduveitu þann 22. febrúar árið 2010. Þá var Náttúruverndaráætlun 2009–2013 nýsamþykkt, en þar er kveðið á um stækkun á friðlandi Þjórsárvera. Náði stækkunin meðal annars til þess svæðis sem Lands- virkjun hafði viljað nýta vegna Norðlingaölduveitu, svo Landsvirkj- un var spurð hvort fallið hefði ver- ið frá henni. Svarið var á þá leið að beðið yrði eftir niðurstöðu ramma- áætlunar Alþingis. „Taldi Umhverfis- stofnun að með þessu væri komin sú afstaða Landsvirkjunar að niður- staða áætlunar um vernd og orku- nýtingu landsvæða yrði ráðandi um hvort af Norðlingaölduveitu yrði,“ segir í umsögn Umhverfisstofnun- ar. Bent er á að með samþykkt Al- þingis á þingsályktunartillögu um rammaáætlun þann 14. janúar árið 2013 var Norðlingaölduveita sett í verndarflokk. Þar með hafði Alþingi tvívegis ákveðið að stækka friðland Þjórsárvera. Ekkert neitunarvald Að mati Umhverfisstofnunar leikur enginn vafi á því að stjórnvöldum ber lagaskylda til að vinna að friðlýs- ingunni. Þá telur hún ljóst að virkj- unaraðilar á borð við Landsvirkj- un hafi ekkert neitunarvald um það hvort friðlýsingin fari fram. „Verði fallist á að samþykki slíkra aðila sé forsenda friðlýsingar verður vart séð hvaða tilgangi flokkun svæða í verndarflokk, á grundvelli framan- greindra lagaákvæða, þjónar,“ segir í umsögninni. Auk þess er bent á að ýmsir aðrir aðilar eigi hagsmuna að gæta á svæðum sem snerta ramma- áætlunina og eru útivistarfélög og eigendur skála nefndir sem dæmi. Leggur Umhverfisstofnun til að fundað verði með Landsvirkjun og fyrirtækinu gefið tækifæri til að skýra betur sjónarmið þess áður en tekin verður ákvörðun um framhald máls- ins. Ráðherrar gegn rammaáætlun Miklar umræður hafa sprottið upp um Norðlingaölduveitu og Þjórsárver í sumar. Í lok júlí tók umhverfis- og auðlindaráðherra skyndiákvörðun um að hætta við að undirrita friðlýsingarskilmál- ana. Þótti þetta heldur neyðarlegt í ljósi þess að þá höfðu verið send út boðskort til fjölda fólks sem boðið var að vera viðstatt undirritunina. Athygli vakti svo í síðustu viku þegar iðnaðar- og nýsköpunarráðherra hvatti til þess að Norðlingaölduveita yrði nýtt til raforkuframleiðslu sam- kvæmt nýjum tillögum Landsvirkj- unar um breytta útfærslu. Eftir að hafa farið í skoðunarferð á vegum fyrirtækisins fullyrti hún í fréttatíma Stöðvar 2 að Norðlingaölduveita væri bæði hagkvæm og umhverfi- svæn. Nýta mætti virkjunarkostinn án þess að Þjórsárver biðu skaða af. Þrír fossar í húfi Þær ákvarðanir og yfirlýsingar sem hér eru nefndar hafa vakið hörð við- brögð meðal umhverfisverndar- sinna. „Ragnheiður Elín sýnir sitt rétta andlit sem blygðunarlaus nýt- ingarsinni. Hún kallar virkjun, sem myndi eyðileggja þrjá stórkostlega fossa um aldur og ævi, umhverfis- væna,“ sagði Svandís Svavarsdóttir, fyrrverandi umhverfisráðherra og þingmaður Vinstri grænna, í samtali við DV. Fossarnir sem hér er vísað til eru Dynkur, Gljúfurleitarfoss og Kjálkaversfoss, en ásýnd þeirra mun taka verulegum breytingum ef hug- myndir Landsvirkjunar og iðnað- ar- og nýsköpunarráðherra verða að veruleika. „Þau komast ekki í sultu- krukkuna nema með því að breyta fyrst rammaáætlun og náttúru- verndaráætluninni með pólitísku handafli. Lögin kveða á um stækkun friðlandsins í Þjórsárverum og sú stækkun hefði útilokað Norðlinga- ölduveitu,“ segir Árni Finnsson. n Landsvirkjun sendur tónninn n Rammaáætlun tilgangslaus ef virkjanaaðilar hafa neitunarvald Varaðir við Manning- mótmælum Bandaríska sendiráðið á Íslandi sendi í gær bandarískum ríkis- borgurum hér á landi bréf þar sem þeir voru hvattir til að halda sig frá svæðinu við sendiráðið að Laufásvegi í Reykjavík. Sendi- ráðið varaði við fyrirhuguðum mótmælum við sendiráðið í gær klukkan 17. Mótmælt var þung- um dómi sem Chelsea Manning, áður Bradley Manning, hlaut í gær fyrir að leka trúnaðarupplýs- ingum frá bandaríska hernum til WikiLeaks. „Við hvetjum bandaríska ríkis borgara til að forðast svæð- ið ef mögulegt er og að þeir fari varlega í námunda við hvers konar mótmæli sem kunna að fara fram,“ segir í aðvörunarbréf- inu. Þá var fólki bent á að fylgjast með íslenskum fjölmiðlum og „gæta ítrustu varúðar á sínu nán- asta umhverfi öllum stundum. Mótmæli sem eiga að vera frið- samleg geta vel farið úr böndun- um og leitt til ofbeldis.“ Er síðan í nokkuð löngu máli brýnt fyrir bandarískum ríkisborgurum að þeir fari vel yfir sín persónulegu öryggismál. Jóhann Páll Jóhannsson blaðamaður skrifar johannpall@dv.is Dynkur Ásýnd þessa foss mun taka verulegum breyting- um ef hugmyndir Landsvirkj- unar um Norðlingaölduveitu verða að veruleika. Forstjóri Landsvirkjunar Hörður Arnar- son sendi umhverfis- og auðlindaráðuneytinu erindi þar sem gerðar voru athugasemdir við friðlýsingarskilmála Þjórsárvera. Forstjóri Umhverfisstofnunar Kristín Linda Árnadóttir skrifar undir umsögnina. Brenndist úti á sjó Fiskibáturinn Grundfirðingur kall- aði eftir aðstoð Landhelgisgæsl- unnar rétt eftir hádegi á fimmtu- daginn. Báturinn var við veiðar rétt um 40 sjómílur norðvestur af Straumnesi og hafði einn skip- verja fengið yfir sig sjóðandi heitt vatn. Læknir Landhelgisgæsl- unnar taldi æskilegt að maðurinn yrði sóttur og var þyrla gæslunnar send af stað undir eins. Björgun- in gekk vel en hífa þurfti manninn á sjúkrabörum um borð í þyrluna. Maðurinn var kominn undir lækn- ishendur um fimm leytið.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.